Vikan


Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 19

Vikan - 14.08.1969, Qupperneq 19
KVÖLDSTUND MEÐ HJÖNUNUM SIGRÍÐI RÖGNU SIGURÐARDÖTTUR, SJÖN- VARPSÞUL OG KENNARA, OG HÁKONI ÖLAFSSYNl, VERKFRÆÐINGI. þeirra byrja alltaf á morgn- ana með því að segja mér frá því, sem gerðist heima hjá þeim kvöldið áður. IJað er oft stórskemmtilegt.“ Meðan þessu fer fram, hefur Sigríður verið að leggja á dúkað kaffiborð. Henni ferst það svo vel úr hendi, að sú spurning vaknar, hvort hún hafi einhvern tíma verið á húsmæðraskóla eða hvort þessi myndarskapur sé henni í blóð borinn. „Nei, ég hef nú aldrei bein- Sigríður og maður hennar, Hákon Ólafsson: Kynntumst á ákaflega venjulegan og órómantískan hátt . . línis verið á húsmæðraskóla, en ég sótti kvöldnámskeið í hússtjórn og matargerð, eins og allar ungar stúlkur ættu að gera. Þegar ég gifti mig í febrúarmánuði síðastliðnum, þá var matreiðslan eiginlega hið eina, sem ég var smeyk við.“ Sá ótti hefur ábyggilega verið ástæðulaus, ef matur- inn hennar er ekki síðri kaffi- meðlætinu. Og hússtjórnin er engu síðri. I mjög smekklegri íbúðinni er allt í röð og reglu, en samt segir Sigríður, að þau séu „ekki alveg búin að koma okkur fyrir enn . . Eiginmaður Sigríðar, Há- kon Ölafsson, verkfræðingur hjá Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins, kemur heim rétt í þessu og við viljum l'á að vita deili á honum líka. Hákon er frá Siglufirði og hefur búið þar mestan hluta ævinnar: gekk í barna- og gagnfræðaskólann á Siglufirði, en settist síðan í Menntaskól- ann á Akureyri. Að loknu stúdentsprófi fór hann til Noregs og lagði stund á verk- fræðinám, kom að því búnu heim og kvæntist skömmu síðar. „Hann er líka mikill skíða- maður,“ bætir Sigríður við, „og hefur oft tekið þátt í keppni. Og nú er hann búinn að koma mér á bragðið, og það svo rækilega, að eitt hið allra skemmtilegasta sem ég geri er að fara á skíði. Aður fór ég aðeins á skíði einu sinni eða tvisvar á ári og þá aðal- lega til að detta á botninn.“ „Hvar við kynntumst?“ Hákon færist undan að svara þessari spurningu og lítur kýminn á Sigríði. „Ætli það hafi ekki verið á ósköo svipaðan hátt og flestir aðrir,“ segir hún. „Mjög órómantískt og venjulegt — á Tlótel Sögu.“ „Brúðkaupsferð? Nei, það var nú eiginlega enginn tími til slíks,“ segir Hákon. „En við fórum til Isafjarðar um páskana, þar sem ég keppti á skíðamótinu. Og svo erum við á leið til Spánar nú í sumar, þar sem Sigríður á frænku, sem við ætlum að heimsækja í leiðinni.“ Svo er haldið áfram að spjalla og komið víða við Framhald á bls. 44 Á vissan hátt skil ég þetta vesalings fólk . . . . . . cn ég hef ckki trú á að það bjargi sér betur þar . . . Maður vcrður að sætta sig við að það koma erfið tímabil inn í milli . . . 33. tbi. VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.