Vikan


Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 20

Vikan - 14.08.1969, Blaðsíða 20
1 EFTIR tÚPUS föl 1 Alþingiskosningar í Austur- Húnavatnssýslu hafa aðeins komið Islendingum á óvart tvisvar sinnum síðan Húna- þingi var skipt í tvö kjör- dæmi 1924. Fyrra skiptið gerðust þau tíðindi 1933, þegar Jón Pálmason bóndi á Akri felldi héraðshöfðingjann og þingskörunginn Guðmund Ólafsson í Ási. Jón drottnaði eftir það í sýslunni langan ahlur, varð forseti sameinaðs þings og landbúnaðarráð- herra og haggaðist aldrei í sínum háa sessi fyrr en sum- arið 1959. Þá féll hann fyrir Birni Pálssyni bónda á Ytri- Löngumýri og kaupfélags- stjóra á Skagaströnd. Þótti að vonum skellurinn ærinn, er Akragoðinn lá allt í einu kýlliflatur. Vann Framsókn- arflokkurinn j)ar með lanc- þráðan en torsóttan sigur í baráttunni um hylli kjósenda á þeim slóðum og hafði þó oft verið hart eftir leitað í orðasennum. "Ri'övn Pálsson fæddist 25. febrúar 1905 á Snærinvss+öð- um í Svínadal í Austur-Húna- vatnssýslu, sonur Páls Hann- essonar bónda þar og síðar á Guðlaugsstöðum í Blöndu- dal og konu hans, Guðrúnar Björnsdóttur, en þær ættir eru víðkunnar að gáfum og dugnaði. Föðurbróðir Björns var Guðmundur Hannesson læknir og prófessor, er sat eitt þing sem fulltrúi Húnvetn- inga, en móðurafinn Björn Eysteinsson, og báru þeir hvor á sinn hátt órækt vitni um þroska og rætur kvn- stofnsins. Ólst Björn upp í foreldrahúsum, en nam bú- fræði á Hólum í Hjaltadal og hlýddi kennslu í Sam- vinnuskólanum nokkra mán- uði veturinn 1925. Hann gerð ist bóndi á Ytri-Löngumýri í Svínavatnshreppi 1930 og hefur rekið búskap þar síðan, en var jafnframt kaupfélags- stjóri á Skagaströnd 1955— 1960 og hefur einniff feno-izt við litgerð frá 1957. Biörn Pálsson vair oddvftti Svína- vatnshrenns 1934—1953 og sýslunefndarmaður 1946— 1958. Hann sat og í stjórn Sláturfélags Austur-Iíún- vetninga og Kaupfélags Hún- vetninga um skeið og hefur látið ýmis félagsstörf til sín taka í sveit og sýslu. Björn Pálsson varð snemma eindreginn og kappsamur Framsóknarmaður, en þokað- ist seint í fylkingarbrjóst. Samherjar hans í héraðinu buðu fram á undan honum við alþingiskosningar gegn Jóni Pálmasyni, Hannes Páls- son á IJndirfelli, Gunnar Grímsson kaupfélagsstjóra á Skagaströnd og Ilafstein Pét- ursson á Gunnsteinsstöðum, en jjeir biðu allir lægra hlut, og virtust bvlturnar orðnar vani. Böðin kom loks að Birni á Löngumýri sumarið 1959 og ekki vonum fyrr. Brá þá til sögulegrar breytingar eins og áður getur. Sótti Björn kosninguna fast og hafði kjördæmamálið mjög á oddi. Bar liann sigur úr bvt- um með 548 atkv., en Jón Pálmason varð að láta sér nægja 520. Valdist Björn svo í jiriðja sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Norð- urlandskjördæmi v e s t r a haustið 1959 og var kosinn þingmaður þess með drjúg- um yfirburðum. Hann náði endurkjöri 1963 með aukinni fyrirhöfn og enn 1967, en þá munaði harla mjóu, þar eð atkvæði hans reyndust að- eins 18 fleiri en Jóns Þor- steinssonar frambjóðanda Al- þýðuflokksins. Eru því horf- ur á, að dregið geti til nýrra stórtíðinda norður þar, og mun Birni sú tilhugsun nokk- urt áliyggjuefni. Björn Pálsson er maður skarpgreindur að náttúrufari og prýðjlega menntað.ur af sjálfsnámi og lífsrevnslu. Ilugkvæmni hans er óvenju rík, og hann þekkir varla minnimáttarkennd. B j ö r n telst raunar enginn skörung- ur í ræðustóli, því að hann flytur mál sitt fremur óá- heyrilega, en samt mega and- stæðingar vara sig á honum. Hann kemur þeim iðulega í opna skjöldu, þegar minnst 20 VTKAN 33- tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.