Vikan


Vikan - 14.08.1969, Side 25

Vikan - 14.08.1969, Side 25
stoða þá í nokkrum lögum á vasntanlegri hasg- gengri plötu. Rollingarnir höfðu aldrei séð þennan unga mann, þegar hann kom í upp- tökuna til þeirra. Þeir höfðu heyrt hann spila á hljómplötum með John Mayall, en Mick Jagg- er hafði svo talað við hann í síma. Taylor þótti spjara sig hið bezta í upptökunni; hann var fljótur að átta sig á þvi, hvað um var að vera, og það leið heldur ekki á löngu, þar til hann og Rollingarnir voru orðnir mestu mátar. Að upptökunni lokinni var honum boðið að ganga í lið með Rollingunum. — Þetta kom mér mjög á óvart, sagði Mick, þegar hann var spurður, hvernig honum fynd- ist, að vera orðinn hluti af þessari frægu hljóm- sveit. Og hann hélt áfram: Mér var sagt, að Brian væri að hætta. Ég sagði, að ég vildi gjarna gerast Rollingur — og þar með var það ákveðið. Mick Taylor (hann heitir réttu nafni Michael Kevin) er tvítugur að aldri og var því aðeins fjórtán ára, þegar Rollingarnir ^ Brian Jones — hann var oft einmana og utan- veltu. Úr sjónvarpsþættinum „The Rolling Stones' Rock And Roll Circus“. 5 sp ■ _ H ^ Mick Jaggcr minnist látins vinar, Brian Jon- es. Ifann les hér úr Ijóöum Shelley. 4 Mick þykir hafa líflcga sviðsframkomu, og þess- ar myndir bera það raunar með sér, cn þær voru teknar á útihljómleikum Rollinganna. létu fyrst að sér kveða fyrir sex árum með lag- inu „Come On". Hann hefur aldrei séð hljóm- sveitina, sem hann er nú kominn í, leika á hljómleikum. Hann lék með hljómsveit John Mayall, „Bluesbraekers" í tvö ár, en það eitt að hafa leikið með John Mayall þykja ærin meðmæli. Aðrir gítarleikarar, sem leikið hafa með John, eru m. a. Peter Green og Eric Clap- ton. Má af þessu ráða, að Mick hinn ungi er enginn aukvisi, enda er sagt, að hann hafi fengið fjölda atvinnutilboða í Bandaríkjunum, þegar hann var á ferð með John Mayall. Framhald á bls. 46 Frá útihljómleikum Rollinganna í Hyde Park. 33. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.