Vikan - 04.09.1969, Qupperneq 8
MIOA
PREIMTUIM
Takið upp hina nýju aðferð og
látið prenta alls konar aðgöngu-
miða, kontrolnúmer, tilkynning-
ar, kvittanir o.fl. á rúllupappír.
Höfum fyrirliggjandi og útvegum
með stuttum fyrirvara ýmis konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320
V____________________./
Septemberhefti Urvals er í þann veg-
inn að koma út, fjölbreytt að fróð-
legu og skemmtilegu efni eins og
venjulega. Bókin segir til dæmis frá
þeim sögulega atburði, þegar barni
Lindberghs flugkappa var rænt. Ar-
ið 1932 kom það hugum manna hvar-
vetna í uppnám. Maðurinn, sem naut
jafnmikillar aðdáunar og Armstrong
tunglfari nú, hafði orðið fyrir óhugn-
anlegum glæp. Af greinum má nefna:
Ilvað er framundan í geimferðum?
Staðreyndir um pípureykingar, Mestu
jarðskjálftar sögunnar, Konur í So-
vétríkjunum, Vinsældir stjörnuspá-
dóma fara vaxandi og ótalmargt fleira.
v.
Fuglamál
Heiðraði draumráðandi
Vikunnar!
Mig dreymdi eftirfarandi
draum aðfaranótt 17. júní síðast-
liðinn:
Ég kom fram í eldhúsið mitt,
og sá, að á gólfinu voru þrír
fuglar. Tveir voru á stærð við
sólskríkju, mjög fallegir, og þar
sem þeir stóðu mjög þétt saman,
tók ég eftir rauðum og hvítum
röndum á vængjum þeirra. Hinn
þriðji var einn úti í horni, afar
aumingjalegur og með lafandi
vængi. Hann var stærri en hin-
ir, á stærð við skógarþröst, að
mér fannst.
Litlu fuglarnir tveir voru að
tala saman og heyrði ég annan
þeirra segja:
„Við verðum að hjálpa hon-
<<
um.
Þá svaraði hinn:
„Við getum það, ef við gerum
það saman.“
Síðan færðu þeir sig enn nær
hvor öðrum og breiddu út væng-
ina, sem saman sneru, svo að úr
varð sæti, sem líktist gullstól.
Stóri fuglinn kom nú og settist
á hina útbreiddu vængi.
Litlu fuglarnir flugu síðan upp
í eldhúsgluggann, sem var op-
inn. Flaug þá stóri fuglinn út og
sýndist mér hann orðinn frískur
og fallegur.
Litlu fuglarnir komu aftur,
settust á sama stað á gólfið og
annar sagði:
„Við gátum hjálpað honum.“
„Já,“ svaraði hinn. „Það var
af því að við gerðum það sam-
an.“
Þar með lýkur þessum draumi,
og hvað segið þið nú?
Vinsamlega birtið þetta sem
fyrst og hafið undirskriftina:
Draumkona í Hólmavík.
Þetta er nokkuð sérstæður
draumur og engan veginn auð-
ráðinn. Að heyra fugla tala í
draumi er talið fyrir góðu, og
einhvern veginn finnst okkur,
að þessi draumur í heild hljóti
að vera mjög hagstæður. Þar
sem þig dreymir hann nóttina
fyrir þjóðhátíðardaginn væri
freistandi að álíta, að hann tákn-
aði að rætast muni úr vandamál-
um þjóðarinnar á næstunni með
sameiginlegu átaki allra. En lík-
legra er þó, að hann eigi við
málefni dreymandans eingöngu
og mundi þá tákna eitthvað
svipað: Bætt kjör og betri og
skemmtilegri daga.
Fundvísi
Mig dreymdi um daginn al-
deilis prýðilegan draum, að mér
fannst. Ég var ein að ráfa í bæn-
um á sólbjörtum degi og þá fann
ég umslag. Ég hafði ekki einu
sinni svo mikið við að opna um-
slagið, því að það var skítugt og
óhrjálegt, enda höfðu ótal veg-
farendur troðið á því. Ég stakk
því í vasann og opnaði það ekki
fyrr en ég kom heim. En þá varð
ég heldur betur undrandi: Um-
slagið var fullt af þúsundköll-
um. Þeir bókstaflega ultu úr því
í stríðum straumum og ég hugs-
aði með mér:
„Drottinn minn dýri! Ég er
bara orðin rík.“
Síðan vaknaði ég. Ég var
sannfærð um, að svona góður
draumur hlyti að boða mér ham-
ingju. En gömul og draumspök
frænka mín er ekki á sama máli.
Hún fullyrðir, að það sé fyrir
vandræðum að dreyma að mað-
ur finni mikla peninga. Er þetta
rétt?
Með beztu kveðju og þakk-
læti.
H.S.H.
Því miður, frænkan hefur rétt
fyrir sér. Þaff er fyrir góffu að
finna eitthvað í draumi — nema
peninga. Þeir boða vandræffi.
í hvítum kjól meS
gullspöng í hári
Kæri draumráðandi!
Ég hef verið að hugsa um
draum sem mig dreymdi fyrir
nokkru og nú langar mig að vita
hvað hann merkir.
Ég var að fara í brúðkaup og
var ég brúðarmey í síðum, hvít-
um kjól, með gullspöng í hár-
inu. Er ég var að óska brúðinni
til hamingju, fer hú nað gráta;
ég veit ekki hvort af sorg eða
gleði. Ég kraup á kén og hélt í
hendina á henni en alltaf grét
hún. Svo vaknaði ég.
Eg vona að þú svarir mér.
Jóna.
P.S. Eg þekki brúðhjónin.
Þessi draumur er fyrir því, aff
trúlofun þín verffur endaslepp,
og segir mér svo hugur, aff eins
fari fyrir brúffhjónunum.
Svar til Svenna svarta:
Þú ættir aff halda sambandi
þínu við þennan kunningja þinn
svo lengi sem þér er unnt; þaff
er aldrei aff vita nema þaff verffi
að raunveruleika aff hann eign-
ist svona mikla peninga!
8 VTKAN 36- tbl-