Vikan - 04.09.1969, Blaðsíða 33
JACOB’S
Meira en 100 ára reynsla og kunnátta í
að framleiða Jacob's Cream Crackers,
er ástœðan fyrir bragði og gæðum
þessarar afbragðs vöru. Kaupið pakka
af Jacob's Cream Crackers og þér
sannfærizt um bragð og gæði.
Made In EngUnd by
W 4 R Jacob & Co (l’poo’) Ltd. Llvtrpool England
English.
Cream
Crackers
NCT WEIGHT 7I/2 OZ • 213 g
ortenlng, Malt, Salt, Baklng Powder&Yeait. MtapfNNA.ocfr.A«L
Jacob’s Crtam Cracktrs fœsi i nœsiu búð. Tfltsi stlda ktxið á markaðinum
ist Billy þá miklar vinsældir.
Það var einmitt við upptöku
á þessum þætti, að fundum
Billy Prestons og Rey Charles
bar saman. Ray þótti mikið
til Billy koma, og bauð hon-
um að koma í hljómsveit sína.
Billy Prestons og Ray Charles
um tvisvar! Meðan Billy lék
með Ray Charles kom hann
fram á hljómleikum og í sjón-
varpi. Það var einmitt í sjón-
varpsþætti Ray Charles, að
George Harrison tók eftir
Billy.
— Þessi náungi er frábær,
sagði hann. Gerið boð eftir
honum!
Síðan ekki söguna meir, þar
til einn góðan veðurdag, að
bankað er uppá heima hjá
George. Þar var Billy Preston
kominn. Mikil vinátta tókst
með þeim félögum, og George
fór að undirbúa upptöku á
tveggja laga plötu, þar sem
hæfileikar Prestons skyldu
virkjaðir. Hann var ekki í
neinum vandræðum með að
útvega undirleikara. Hann
fékk Eric Clapton, Ginger
Baker, Keith Richard og
Klaus Voorman. Og þegar
þess er gætt, að þessir snill-
ingar aðstoða Billy Preston
á nýju plötunni hans, er eng-
in furða, þótt útkoman sé
góð.
☆
Frumleg plötuumslög
Framhald af bls. 29.
verzlunum, sem ekki vildu
selja plötuna með hinu ósið-
sama umslagi, að hafa annað
umslag um plötuna, og geta
kaupendur valið, hvort þeir
vilja umslag með strípimynd
eða ekki. En hugkvæmnin
birtist í fleiri myndum en
strípimyndum, góðu heilli.
Meðfylgjandi mynd er eitt
dæmi þess. Myndin er á um-
slagi utan um nýja hæggenga
plötu hljómsveitarinnar
Jethro Tull. Hljómplötufyrir-
tækið, sem gefur plötuna út,
segir svo í auglýsingum: „Við
hefðum getað notast við brún-
an pappírspoka sem umslag
og samt hefði þessi plata ver-
ið hin bezta, sem Island Re-
cords hafa gefið út“!
Ása Finnsdóttir
Framhald af bls. 11.
förum við algjörlega eftir því sem
stjórnandi viðkomandi dagskrár, —
eða fréttamaður, — segir til um.
Við höfum verið þrjú í þessu, og
vinnum á vöktum, þannig að ég
hef til dæmis unnið á jólum, pásk-
um, hvítasunnu og fleiri tyllidög-
um.
— Þularstarfið er svo auka. Það
vinn ég á tímakaupi, og kann vel
við. Einu sinni var ég send til Finn-
lands, til að vera þula á íslenzku
kvöldi f finnska sjónvarpinu. Ég
skemmti mér alveg konunglega.
Þeir vinna það töluvert öðruvísi þar;
ég var til að mynda ekki förðuð
nærri eins mikið þar og hér og þeir
taka meira en þessa einu mynd sem
sést hér á skerminum.
— Sú finnska var til dæmis
ófrísk, og þeir tóku myndir af henni
frá öllum köntum og hliðum, og
enginn sá neitt athugavert við það.
Mér þætti gaman að sjá hvernig fólk
hér yrði í framan ef birtar yrðu
myndir af mér á skerminum eins og
ég lít út frá hvirfli til ilja eins og
stendur.
Svo samdi hún allar kynningar
sjálf, og í lok þessa íslenzka kvölds,
sem var laugardagskvöld, óskaði
hún þeim sem voru ef til vill að
fara eitthvað að skemmta sér, góðr-
ar skemmtunar og svo framvegis.
— Tæki ég upp á að gera svona rós-
ir hér, myndi fólk ábyggilega halda
mig í kippnum!
— Ef ég er ekki að vinna, þá er
ég hér heima að hugsa um heimil-
ið; dunda við að sauma út og
prjóna. Ég lærði vefnað meðan ég
var í Svíþjóð, og hef hug á að læra
það eitthvað meira. Þá langar mig
einnig að fara á sauma- og sníða-
námskeið, en það hefur bara aldr-
ei gefizt tími til þess. En kannske
eftir að börnin eru komin á legg."
Hún hlær dátt. Ása er ákaflega
brosmild stúlka, kát og fjörug og
hefur gaman af pop-músik. Þýðir
tónar, sem sumir kalla raunar
„bítlagarg", líða um stofuna, upp
eru teknir vindlar og drukkið meira
kókakóla.
Jóhannes og Ijósmyndarinn eru
í hrókasamræðum um, ja, hvað
annað en Ijósmyndun?, en mér
tekst þó að skjóta á hann einni og
einni spurningu.
Hann er fæddur og uppalinn
Reykvikingur, og varð stúdent frá
M. R. árið 1966.
Svo fór ég f lögfræðideild Há-
skólans, hreinlega af þvf að ég vissi
ekki hvað mig langaði f. Enda kom
38. tbj. VIKAN 33