Vikan - 04.09.1969, Blaðsíða 21
þarna í fjöllunum. — Aumingja stúlkurnar
mínar koma líklega til með að morna og
þorna í jómfrúdómi til eilífs nóns, sagði
hann við blaðamenn, er sóttu hann heim
nokkru áður en tókst að útvega manns-
efnin.
Erfiðleikar furstaættanna á þessum slóð-
um eru mjög svipaðs eðlis og kóngafólks-
ins í Evrópu: þær hafa í aldanna rás marg-
blandazt hver annarri og reglurnar setja
vissar takmarkanir varðandi skyldleika-
hjónabönd.
Dætur furstans voru nærstaddar, er hann
rakti raunir sínar fyrir blaðamönnunum, og
lögðu við eyrun, sem eðlilegt mátti kalla.
— Að minnsta kosti sú eldri, sem Kalih
heitir, verður að giftast inn í tigna fjöl-
skyldu. Annars getur akkert barnabarna
minna orðið höfðingi. Þá er sögu ættar
minnar lokið.
En stúlkurnar létu greinilega á sér skilja
að sitthvað væri þeim meira virði en hrein-
leiki ættarblóðsins. Önnur þeirra, sú yngri,
kastaði sér að hnjám gamla mannsins.
-— Lofaðu mér nú loksins að eignast
mann, bað hún og bar sig illa.
— Annars ríf ég hringana úr eyrunum!
bætti hún við ógnandi.
Furstinn varð ævareiður og henti báðum
stelpunum út. Hótun þeirrar yngri var al-
varlegri en ókunnugum hefði mátt virðast.
Hjá Konjökum bera ungar stúlkur sem sé
því aðeins eyrnahringa að þær vilji ekkert
hafa með karlmenn að gera.
Þegar ein furstadóttir er ioksins gift og
gengin út, er ómögulegt að leysa upp hjóna-
bandið. Þetta greinir hana líka frá kyn-
systrum hennar í ættbálknum. Þær geta
hvenær sem er stofnað til bráðabirgðahjóna-
bands með hverjum þeim manni sem þeim
líkar við. Jafn auðvelt er að leysa upp
slík hjónabönd. Unga fólkinu er frjálst að
þreifa fyrir sér í eins mörgum slíkum
skyndihjónaböndum og því sýnist, unz það
að lokum dettur niður á maka, sem það
vill eiga fyrir lífið. Bráðabirgðahjónabönd-
in standa mislengi yfir, allt frá einum degi
upp í ár og lengur. Meðan þau standa yfir
er eiginmaðurinn skyldugur til að sjá fyrir
konunni, en hinsvegar getur hann neitað
að ala önn fyrir börnum, sem koma undir
á tímabilinu. Þeirrar undanþágu nýtur hann
ekki í ,,alvöru“hjónabandi.
Þegar einu sinni er komið út í alvöru-
hjónaband, er líka mjög erfitt að fá skiln-
að. Það tekst þó ef annað hjóna er staðið
að hjúskaparbroti, strýkur að heiman eða
ef eiginmaðurinn er mjög vondur við kon-
una, ber hana og svo framvegis. Eiginmað-
urinn getur og sagt skilið við konuna ef
hún elur honum ekki börn. Opinberlega
er ábyrgðin á þessu látin hvíla á konunni
eingöngu, þótt svo hugsazt geti að það sé
karlmaðurinn, sem sé ófrjór.
Af þessum sökum þykir konum Konjaka
það mikið mein að eignast ekki börn og
hefur þetta leitt til þess að ákveðin stétt
galdramanna hefur náð miklum vinsældum
meðal ættbálksins. Þetta eru yfirleitt ung-
ir menn og vel á sig komnir, og frjósemis-
særingar sínar fremja þeir í kofa sjúklings-
ins, að engum öðrum viðstöddum. Meðan
á særingunum stendur innan dyra verður
maðurinn konunnar að ganga hringinn í
kringum kofann með bjöllu, sem hann
hringlar og dinglar án afláts. Fullyrða
Furstadæturnar í Waha Kori bcra ríkulegt höfuð-
skraut. Eyrnahringirnir tákna að þær séu jómfrúr
og vilji ekkert hafa mcð karlmcnn að gcra. Aðrar
galdramennirnir að þeim sé ómögulegt að
framkvæma særingarnar að nokkru gagni
án þessarar tónlistar, sem vitaskuld yfir-
gnæfir öll þau hljóð, sem göldrunum kunna
að fylgja. Sagt er að sjaldan bregðist að
þessar læknisaðgerðir hafi tilætluð áhrif:
barn að níu mánuðum liðnum.
En aftur til furstadætranna í Waha Kori.
Nokkrum vikum eftir áðurnefnda heim-
sókn litu blaðamennirnir aftur við hjá furst-
anum, sem þá var í heldur betra skapi og
skálaði við þá í rísvíni.
— Ég hef fundið lausn, ekki góða að vísu
en brúklega, sagði furstinn. — Þótt það
sé neyðarúrræði, ætla ég að leyfa yngri
dóttur minni að giftast ótignum manni héð-
an úr þorpinu jafnskjótt og sú eldri, Kalih,
er gift.
— Hafið þér þá fundið handa henni höfð-
ingjason? spurðu blaðamennimir.
stúlkur ættbálksins mega taka af sér hringinn hve-
nær sem þeim bezt líkar, en um prinsessurnar gegn-
ir allt öðru máli.
— Já, sagði furstinn stoltur. — Tongai
heitir hann og er af þekktum ættbálki.
Fólkið hans býr í frjósömum dal hinum-
megin fjallsins. Síðan brá skugga fyrir á
andliti gamla mannsins. — En Tongai er
því miður aðeins tólf ára, bætti hann við
hryggur.
En Kalih kærir sig kollótta, og systir
hennar segir blaðamönnunum orsökina.
Þegar furstadóttir hefur loks fengið
mann við sitt hæfi, fylgja því óneitanlega
viss fríðindi. Ef eiginmaðurinn er ómyndug-
ur, er konu hans heimill og frjáls aðgangur
að frændum hans, mágum og öðrum ætt-
ingjum unz hann sjálfur hefur náð viðun-
andi þroska.
Því Konjakar vita að holdið er veikt og
heimtar sitt, þótt svo að um það kunni að
renna heilagt blóð.
dþ.
36. tbi. VIKAN 2J