Vikan - 04.09.1969, Blaðsíða 28
ANDRÉS INDRIÐASON
NÚTÍMABÖRN
Söngflokkurinn „Nútímabörn“
hefur getið sér gott orð fyrir góð-
an söng og skemmtilega sviðs-
framkomu. Þau hafa víða komið
fram og hvarvetna verið vel tek-
ið. Hljómplata er væntanleg með
söng þeirra innan tíðar. Kristinn
Benediktsson tók þessa mynd af
„börnunum" fyrir skömmu, þeim
Drífu, Ágústi, Sverri og Snæbirni.
JULIE DRI8C0LL
í ágústbyrjun sl. komu út
tvær hæggengar plötur í einu
umslagi frá Julie Driscoll og
tríói Brian Auger. Langt var
um liðið síðan heyrzt hafði
frá þessu ágæta fólki, sem
um eitt skeið naut svo mik-
ila vinsælda, en um leið og
þessi stóri „skammtur“ kom
á markaðinn, bárust þau tíð-
indi, að sennilega yrði þetta
síðasta plata þeirra. Verður
slíkt vart skilið á annan veg
en þann, að þau hafi í hvggju
að hætta leik saman.
Sú ráðstöfun, að setja tvær
plötur í einu umslagi í um-
ferð hefur sætt nokkurri
gagnrýni, en talsverð brögð
hafa verið að slíku að undan-
förnu. Bítlarnir byrjuðu á
þessu, en síðan sigldu aðrar
hljómsveitir í sama kjölfarið,
þ.á.m. Bee Gees með plötuna
„Odessa“. Og nú eru það sem
sagt Julie Driscoll og Brian
Auger. Plöturnar tvær nefna
þau „Streetnoise“, og eru á
þeim sextán lög. Julie þykir
syngja betur að þessu sinni
en nokkru sinni fyrr, og er
Framhald á bls. 30.
Illillfllll
IHIick Jamer í kviM
Hér sjáum við Mick Jagg-
er, söngvara Rollinganna, í
hlutverki sínu í kvikmynd-
inni um Ned Kelly. Leik-
stjóri er Tony Richardson.
Myndin er byggð á sannsögu-
legum heimildum, en Ned
Kelly var uppi á ofanverðri
síðustu öld og gerði þá marga
skráveifuna, sem fræg er orð-
in, enda er hann þjóðsagna-
persóna í augum Astralíubúa.
Þótti mörgum innfæddum
mjög ótilhlýðilegt, að Eng-
lendingur skyldi fenginn til
að fara með hlutverk hans í
myndinni. En Tony Richard-
son er þekktur fyrir að fara
sínar eigin leiðir, þegar kvik-
myndagerðin er annars vegar.
Mikki er annars hinn hress-
asti þessa dagana og hefur að
sögn haft mikla ánægju af
að leika í myndinni. Aðdá-
endum Rollinganna mun
þykja goðið harla ófélegt á-
sýndum, eins og það birtist í
hlutverki skúrksins, og ekki
er það ýkja hárprútt. Ekki
þurfti Mikki þó að láta skera
hár sitt vegna kvikmyndatök-
unnar, því að hann notast
við hárkollu. Með honum á
myndinni er leikkonan Di-
anne Craig, sem leikur eina
af systrum hans í myndinni.
Upphaflega var gert ráð fyrir
því, að Marianne Faithfull
færi með þetta hlutverk, en
af orsökum, sem ekki varð
við ráðið, varð svo ekki.
☆
28 VIKAN
36. tbl.