Vikan - 04.09.1969, Qupperneq 16
KING
ER LÁTINN
EN CORETTA LIFIR
Þaö er komiö á annaö
ár síðan Martin Luther
King var myrtur, og
á þeim tíma hefir
ekkja hans orðið ein
af fremstu baráttu-
mönnum borgaralegra
réttinda. Lágróma,
áköf og með óendan-
legum dugnaði heldur
Coretta King áfram
baráttunni fyrir því
málefni, sem eigin-
maður hennar lifði og
dó fyrir, hinum sjálf-
sagða rétti negra til
jafnréttis við hvíta
meðbræður sína ....
]6 VIKAN 36 tbL
Coretta hefir skapað sér eigin per-
sónuleika. Það er hlustaS á hana
með virðingu. Hvort sem það er
úr ræðustóli, í negrahverfunum,
eSa frá sviðinu í Constitution Hall.
Coretta King er sjaldgæf kona.
Hún er tónelsk, hefir mikla leik-
hæfileika, tilfinningarík listamanns-
sál. Þessutan er hún svo vel máli
farin, að stjórnmálamenn mættu öf-
unda hana af því, hún hefir líka
mikla stjórnunarhæfileika, og
brennandi trú.
Hún er mikill persónuleiki, sterk
og ákveðin kona, sem snemma
ruddi sér braut til frama, en lagði
alla eiginhagsmuni til hliðar, þeg-
ar hún kynntist Martin Luther King,
fórnaði honum og börnum þeirra,
og síðar baráttunni fyrir jafnrétti,
starfskröftum sínum á óeigingjarn-
an hátt.
Unga stúlkan, Coretta Scott, fékk
í arf frá foreldrum sínum seiglu
og mikla starfsorku. Foreldrar
hennar verzluðu með landbúnað-
arvörur í Alabama, og báru ekki
mikið úr býtum. Föður hennar var
oft hótað lífláti, vegna þess að
hann barðist fyrir jafnrétti negra,
og fór ekki eftir kröfum þeirra
hvítu.
Coretta varð að berjast fyrir því
að fá sig innritaða í Antioch há-
skólann í Yellowsprings, þar sem
systir hennar var fyrsti þeldökki
stúdentinn. Eftir prófið fór hún í
tónlistaháskólann í Boston, og
henni var spáð miklum frama sem
söngkonu. En í Boston hitti hún
Martin Luther Kino ir., og bá skeði
það, sem hún hefði þó áður svar-
ið fyrir, hún gift'H pre'ti, oq bað
áður en hún hafði lokið við nám
sitt.
Eftir það varð hennar líf hans
líf líka. I fiórtán ár var hún eigin-
„Við sigrum", var baráttusöngur
hans, og ekkia hans sér um að
baráttunni verði haldiS áfram.