Vikan - 04.09.1969, Síða 24
LJOSMYNDIR:
BJÖRN BJÖRNSSON OG
JÖHANNES LONG
Einn af örfáum sólskinsdögum í júní-
mánuði kom hópur sjónvarpsmanna upp
að Keldum í Rangárvallasýslu. Tilgang-
ur fararinnar var að taka nokkur atriði
úr leikritinu Hrólfur eftir Sigurð Pét-
ursson, en það verður væntanlega sýnt
síðar í þessum mánuði.
Keldur er þekktur sögustaður úr
Njálu, eins og kunnugt er. Þar bjó Ing-
gjaldur Höskuldsson, sem frægur varð
fyrir að bregðast Flosa í aðförinni að
Bergþórshvolsfeðgum. A Keldum er
gamall skáli, sem talinn er elzta bygg-
ing sinnar tegundar á Islandi. Keldna-
bærinn er til sýnis íyrir vegfarendur og
þar er eins konar minjasafn, sem gefur
góða hugmynd um húsbúnað og lifn-
aðarhætti frá fyrri tímum. Og leikritið
Hrólfur eftir Sigurð Pétursson er með
elztu leikrituin, sem til eru á íslenzka
tungu. Það var flutt í Þjóðleikhúsinu
í hitteðfyrra. 1 sjónvarpsgerð þess eru
leikendur hinir sömu og þá, en að því
undanskildu er uppfærslan ný og sniðin
fyrir sjónvarp.
Það var mikið um að vera þennan
sólskinsdag að Keldum, og líklega hef-
ur ekki í langan tíma verið jafn líflegt
um að litast þar. í hópnum voru alls
tíu manns: Leikararnir Bessi Bjarna-
son og Jón Aðils, Flosi Olafsson, leik-
stjóri, Andrés Indriðason, sem stjórnar
upptökunni, aðstoðarstúlka hans, Sig-
rún Dungal, leiktjaldamennirnir Björn
Björnsson og Jóhannes Long, Þórarinn
Guðnason, kvikmyndatökumaður og
Oddur Gústavsson, hljóðupptökumaður.
Unnið var af kappi allan daginn, en at-
riðin taka þó ekki nema 6—7 mínútur,
þegar búið er að klippa þau og vinna.
Þetta gefur nokkra hugmynd um þá
geysilegu vinnu og tíma, sem gerð kvik-
mynda og sjónvarpsþátta útheimtir.
Þeim atriðum, sem tekin voru á Keld-
um, verður skotið inn í leikritið, sem
að öðru leyti verður tekið í sjónvarps-
sal.
Það gekk á ýmsu við tökuna og mörg
vandamál komu upp, sem leysa þurfti
á augabragði. Leikritið gerðist um vet-
ur, svo að tína þurfti öll sumarblómin;
breiða þurfti grasmottur yfir útihús,
sem sáust í fjarska og svo mætti lengi
telja. Hestar voru fengnir að láni í
Gunnarsholti og Flosi Ólafsson, sem er
mikill og snjall hestamaður, reið þeim
að Keldum.
Þegar kvöldsett var orðið á þessum
sögufræga stað, tóku sjónvarpsmenn
saman allt sitt hafurtask og héldu aftur
í bæinn eftir skemmtilegt kvikmynda-
ævintýri. Arangurinn af starfi þeirra
birtist okkur á skerminum áður en langt
um líður. ☆