Vikan - 04.09.1969, Qupperneq 37
f------------------------N
HVAR ER
DRKIN HANS
NÓA?
Það er alltaf sami leikur-
inn í henni Yndisfríð okk-
ar. Hún hefur falið örkina
hans Nóa einhvers staðar í
blaðinu og heitir góðum
verðlaunum handa þeim,
sem getur fundið örkina.
Verðlaunin eru stór kon-
fektkassi, fullur af bezta
konfekti, og framleiðand-
inn er auðvitað Sælgætis-
gerðin Nói.
Síðast er dregið var hlaut verð-
launin:
Guðbjörg Kristjánsdóttir,
Kópavogsbraut 14, Kópavogi.
Nafn
Heimili
Örkln er á bls.
Vinninganna má vitja í skrif-
stofu Vikunnar. 36.
V_____________________________/
/-------------------------------------------------\
— Hvað? Bara börn? Elskar
þú mig ekki lengur?
V____________________________/
Hún ákvað að fara strax. Það
var ekkert vit í að vera hér
lengur. Hún hafði fataskipti, fór
í hvíta léreftsdragt, setti ofan í
töskurnar og stóð brátt ferðbú-
in á ganginum ásamt piccolóin-
um, sem beið við lyftuna til þess
að hjálpa henni með ferðatösk-
urnar.
Hún reyndi að herða sig upp
og púðraði sig í framan, meðan
lyftan var á leiðinni upp. Loks-
ins kom lyftan, piccolóinn tók
töskurnar fjórar, dyrnar lokuð-
ust. Það stóð maður í einu horni
lyftunnar. Hann horfði á hana
um leið og hún kom inn. Hann
virtist vera mjög taugaóstyrkur
— geðfelldur, en ósköp venju-
legur maður með brún alvöru-
gefin augu. Hún gizkaði á, að
hann væri 35 ára eða þar um
bil.
— Hann virðist vera jafnein-
mana og ég, hugsaði hún. Það
var að sjá, sem hann langaði til
að segja eitthvað við hana, en
ekkert varð úr því. Hann opn-
aði og lokaði munninum nokkr-
um sinnum, en sennilega hefur
alltaf komið kökkur í hálsinn á
honum. Lyftan var næstum
komin alla leið. Hann leit enn
til hennar og loks tókst honum
að stynja upp:
— Þér hafið falleg augu.
Hann forðaðist að sjá undrun
piccolósins og lyftuvarðarins og
hélt áfram:
—- Mjög falleg augu, falleg-
ustu augu, sem ég hef nokkurn
tíma séð.
Hún sneri sér snöggt við.
Hatrið skein úr augum hennar.
Hún sagði hörkulega:
— Þegið þér og fjandinn eigi
yður.
Lyftan var komin alla leið
niður.
Hún hraðaði sér út, — en
maðurinn stóð og starði furðu
lostinn ýmist á hana eða menn-
ina tvo, sem höfðu orðið vitni
að öllu saman. Hann horfði á
eftir henni, sá hvar hún borgaði
reikninginn sinn við afgreiðslu-
borðið, sá piccolóinn bera ferða-
töskurnar að leigubíl, sem beið
fyrir utan. Hann horfði á eftir
vagninum, þegar hann ók af
stað. Piccolóinn kom slangrandi
inn í afgreiðslusalinn og tróð
dollaraseðli í vasann.
— Skrítin þessi, sagði hann
og deplaði augunum framan í
manninn, sem sneri baki við
honum í snatri, en hélt áfram
að horfa út um gluggann, unz
vagninn hvarf úr augsýn.
Að því búnu gekk hann hæg-
um skrefum að blaðaturninum.
— Hún hafði falleg augu,
tautaði bann við sjálfan sig. —
Meira að segja óvenjuleea fal-
lep auCTu.
Hann keypti sér blað. sottist,
stundi bungan og fór að lesa.
Hann sat og las til miðuæ+tis Þá
nevddi<st. hann til að fara í ein-
manale°t herbergið si+t og hátta.
☆
ÞÍR SPARIB MINNST
ÞAR SEM ÍVA ER FYLLILEGA
SAMBÆRILEGT AÐ GÆÐUM
VIÐ BEZTU ERLEND
LÁGFREYÐANDI ÞVOTTAEFNI
'k íva er lágfreyðandi
★ Iva leysist upp eins og skot
k: íva skolast mjög vel úr þvottinum
★ íva þvær eins vel og hugsast getur
★ íva er lang-ódýrasta lágfreyðandi
þvottaefnið á markaðinum
HAGSYNAR HÚSMÆÐUR
VELJA ÞVÍ AUÐVITAÐ
ÍVA
fslenzk úrvalsframleiðsla
frá
FRIGG
36. tbi. VIKAN 37