Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 6
Mömmu finnst það
vera leikur að
þvo með C-ll
það er bæði
ódýrt og gott
segir hún
tenAteÁt eýttt
þ«attavée<vi
bakteriueyðandi
jiiiiii!i!iiíiiiiiiiiijiiiíiíiiiiíiíiiiiiiiiisiijiiitíiiíjiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiií)íiiiiiiiíiíiiiiiiií!íiiiiiiiiiiíiimiiíi)iíiiiiiiniiiiii
MPMÍBl
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSIÐ
SUÐURÍANDS-
BRAUT 10
*
SÍMI 83570
4
>
Hvers vegna ekki ég?
Kæri Póstur!
Mér hefur verið sagt, að það
hafi staðið í einhverju dagblað-
anna, að Vikan væri að fram-
kvæma skoðanakönnun á meðal
ungs fólks. Er þetta rétt? Og
hvers vegna hef ég þá ekki
fengið neitt í sambandi við þetta?
Ég hef verið kaupandi Vikunnar
í tvö ár og tel mig vera í hópi
dyggustu lesenda hennar. Og ég
er ekki enn orðinn tvítugur, svo
að ég get varla talizt of gamall.
Einnig langar mig að vita, hvers
konar skoðanakönnun þetta er
og til hvers hún er gerð
Með kæru þakklæti fyrir ým-
islegt gamalt og gott.
S. H.
Skoöanakönnun sú, sem hér um
ræðir, er framkvæmd á þann
hátt, að rösklega 300 unglingum
á ýmsum aldri og í ýmsum skól-
um va.r sendur spurningalisti.
Spurt var um allt milli himins
og jarðar, stjórnmál, ástir og
hjónaband, trúmál og ótalmargt
fleira. Spurningarnar miða allar
að því að fá fram á sem skýrast-
an hátt viðhorf ungu kynslóðar-
innar nú á dögum. Eins og gefur
að skilja gátum viff ekki komiff
því viff aff senda öllum ungling-
um á landinu spurningalistann
og við völdum af handahófi, svo
að „S. H.“ hefur engan veginn
verið viljandi hafður útundan.
Um þriðjungur þeirra sem
spurðir voru hafa þegar sent
svör sín, og enn eru ný og ný
svör að berast, svo aff allt útlit
er fyrir, aff árangurinn ætli aff
verða ágætur. Þegar þar aff
kemur munum viff vinna úr
svörunum og síðan verffur skýrt
frá niðurstöffunum, sem væntan-
lega verffa forvitnilegar.
Linsur í stað gleraugna
Kæri Póstur!
Mie langar til að biðja þig að
segja mér, hvort ekki sé hægt að
fá einhver gler, sem látin eru á
augun í stað gleraugna. Ég hef
heyrt, að þetta sé til, en aldrei
séð það og langar til að fá svo-
litlar upplýsingar um það, ef það
er þá rétt. Þarf einhvern vissan
aldur til að fá að nota þessi
gler? Eru þau ekki miklu dýr-
ari en venjuleg gleraugu? Og er
engin hætta á, að maður skemmi
augun með þeim?
Ég vona, að þið hafið rúm fyr-
ir þetta.
Með fyrirfram þökk.
Ein fjórtán ára.
P.S. Hvernig er skriftin?
Linsur í staff gleraugna eru til-
tölulega ný uppfinning. Notkun
þeirra er ekki mjög algeng hér
á landi enn sem komið er, en
mun þó vera nokkur. Þaff þarf
engan sérstakan aldur til aff nota
linsur og þær skemma ekki aug-
un hiff minnsta að sagt er. Hins
vegar munu þær vera nokkru
dýrari en venjuleg gleraugu. —
Skriftin mætti vera betri.
Frá blautu barnsbeini
Hjálpsami Póstur!
Ég ætla að biðja þig að hjálpa
mér með þínum góðu töfraráð-
um. Svo er mál með vexti, að
frá því að ég man fyrst eftir
mér, lék ég mér alltaf með strák,
sem er tveimur árum eldri en
ég. Hann gætti mín alltaf, og við
vorum orðin svo hænd hvort að
öðru, að við vorum orðin óað-
skiljanleg. Þegar ég var 9 ára,
fluttumst við í sitt hvorn bæjar-
helminginn. Ég hitti hann stöku
sinnum eftir það, og við heils-
uðumst alltaf.
Núna um daginn frétti ég, að
hann væri kominn til Ameríku.
Mig langar til að skrifa honum,
því að mér þykir mjög vænt um
hann. En ég veit ekki, hvort ég
á að þora það, því að það er
svo langt síðan ég hitti hann
síðast. Ég var víst ekki nema
fimmtán ára þá.
Kæri Póstur! Getur þú ekki
reynt að hjálpa mér? En í öll-
um bænum segðu ekki að ég sé
of ung. Og enga útúrsnúninga!
Viltu svo birta svar eins fljótt
og þú getur, því að ég get ekki
um annað hugsað en þennan
gamla leikfélaga minn.
Ein, sem er að verða 17 ára.
Þaff er býsna algengt aff þeir
sem leika sér saman í barnæsku,
stofni síðar á lífsleiðinni til nán-
ari kynna og giftist jafnvel. Það
er eins og þau bönd, sem bund-
in eru strax á unga aldri, séu
sterkari en önnur. Þú skalt því
óhikað skrifa honum, þótt hann
dveljist nú í framandi landi. Þú
ættir að finna strax á tóninum,
ef hann skyldi svara bréfi þínu,
hvern hug hann ber til þín. Það
er allt að vinna og engu að tapa,
fyrst þú getur ekki um annaff
hugsað en þennan gamla leikfé-
laga þinn.
Hvers konar
félagsskapur er
frímúrarareglan?
Kæri Póstur!
Ég ætla að biðja þig, - ef þú
getur það að segja, að svara
nokkrum spurningum fyrir mig
6 VIKAN
12. tbl.