Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 31
IUPPTOKU
og geta jafnvel átt von á öðrum
eins dómum?“
„Nei. Það er ákaflega slæmt
að ná af sér stimplinum „Jdnas
er lélegur söngvari", en ég veit
það sjálfur að mér hefur farið
það mikið fram síðan í fyrravor,
að ég þarf ekkert að vera
hræddur við þetta. Það þýðir
ekkert að gefast upp. Ein ástæð-
an fyrir því að söngurinn kom
svona illa út á Flowers-plötunni
var sú, að svo til allur tíminn
sem við höfðum til upptöku fór
í upptöku hljóðfæraleiksins, og
þegar ég ætlaði að fara að hefja
upp raust mína var okkur skip-
að að pakka saman og fara heim
á klakann.“
„Og ertu hress yfir væntan-
legri plötu?“
„Ja, enn sem komið er er ég
Miönæturskemmtun í Háskólabíói
Þann tuttugasta og fimmta
marz næskomandi, verður hald-
in miðnæturskemmtun í Há-
skólabíói, þar sem koma fram
nokkrir af beztu skemmtikröft-
um og hljóðfæraleikurum lands-
ins. Meðal þeirra sem líklega
koma fram þarna verður hljóm-
sveitin Náttúra, Pops, Litli Mat-
jurtagarðurinn (!), Júdas, Ómar
Ragnarsson og jafnvel Ríó-tríó
og Þuríður Sigurðardóttir —- þó
í sitthvoru lagi.
Það er umboðsmaður Júdasar,
Sigurður Garðarsson, sem stend-
ur fyrir þessum viðburði, og
kveðst hann bjartsýnn á vel-
heppnaða skemmtun. Skemmtun
fyrir alla og með menningarbrag
— en það hefur því miður ekki
verið hægt að segja um allar
þær skemmtanir í þessum dúr,
sem haldnar hafa verið hér á
landi feðranna. — Kæmi jafnvel
til greina að setja lágmarksald-
ur, svo gestir losnuðu við leið-
inleg væl og óp þeirra sem halda
að svoleiðis nokkuð fylgi öllum
skemmtunum þar sem síðhærð
ungmenni koma fram. Það er
nefnilega hópurinn sem aðeins
þekkir Bítlaæðið af afspurn.
Ágóði af hljómleikum þessum
á að renna til Heyrnleysingja-
skólans.
☆
Sigurður Árnason, bassaleikarinn sem hóf feril sinn með Strengjum þar sem
voru einnig Arnar Sigurbjörnsson og Reynir Harðarson.
Jónas syngur, leikur á flautu og hefur gert báða textana.
það, en það er náttúrlega ekk-
ert hægt að segja um þetta fyrr
en maður hefur sjálfa plötuna í
höndunum. Lögin finnst mér
góð og er hrifinn af útsetning-
unum — sérlega þó laginu hans
Björgvins, Blekkingu, þar sem
hann leikur m. a. á sítar, Rabbi
á tabla og ég á flautu — Sig-
urður heldur sig að bassanum.
Hitt lagið heitir >,Þú hverfa
munt mér“ og var upphaflega
flutt af hljómsveitinni „King
Crimson“ og hét þá „Talk to the
Wind.“
Jú, við höfum hug á að gefa
út 12 laga plötu með vorinu —
Framhald á bls. 50.
Æðstaráðið: Pétur Steingrímsson, upptökumaður útvarpsins, Jón Þór Hannes-
son, sem hefur yfirumsjón með upptökum á plötum Fálkans, og Ólafur Har-
aldsson í Fálkanum.
12. tbi. VIKAN 31