Vikan


Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 22

Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 22
JACK LONDON KVÆNIST EN EKKI STfiLKUNNI SEM HANN ELSKAR. Hamingjan hossaSi Jack um stundarsakir. Hann kvæntist og eignaðist eigið heimili og gat lifað af ritstörfum. En ekki leið á löngu, þar til nýir erfiðleikar dundu yfir hann .. . . Á þessum farartækjum fóru nýgiftu hjónin í Ianga brúðkaupsferS. Jack London hefur skrifað undir samning um útgáfu á bók með öllum þeim sögum, sem birzt hafa eftir hann i blöðum og timaritum. Ný öld er að hefjast, tuttugasta öld- in, öldin hans. Hann situr i svefnherbergi sínu og bíður eftir aldamótunum — með drög og uppköst að hundruð- um óskrifaðra skáldverka i fórum sínum. Klukkan henn- ar Flóru sló tólf. Hann spratt á fætur, klæddi sig í peysu, setti á sig hjólhestaspennurn- ar og hjólaði til San Josc um nóttina. Gat hann byrjað nýju öldina betur en með því að kvænast stúlkunni, sem hann elskaði, strax fyrsta daginn ? Ef synir hans og síð- an sonarsynir ættu að hugsa til hans með stolti að liundr- að árum liðnum, mátti hann engan tíma missa. Frú Applegarth hafði al- drei viljað fá Jack fyrir tengdason. Hún hafði ekki sett sig upp á móti trúlofun- inni, af því að hún vissi, að giftingin hlaut að byggjast á getu Jacks til að sjá fyrir eig- inkonu, og á henni hafði hún enga trú. En þegar Jack birt- ist skyndilega þennan nýárs- morgun, með próförk af sög- unni „Heimskautaóður“ sem tákn um vaxandi gengi á nýja árinu, þá gerbreyttist framkoma hennar. Jú, hún var fús til að gefa samþykki sitt til giftingarinnar, já, jafnvel samdægurs, en með einu skilyrði: Annaðhvort varð Jack að flytja til þeirra og gerast fyrirvinna heimilis- ins — maður hennar var dá- inn og Edward sonur hennar bjó ekki lengur heima — eða þá að hún varð að fá leyfi til að flytja með þeim til Oak- land. og hann varð að lofa því að skilja þær mæðgurnar aldrei að. Út af þessu varð hörð deila.. Jack hélt þvi fram, að móðirin hefði engan rétt til að bregða fæti fyrir ham- ingju dóttur sinnar, og frú Applegarth lét hann skilja á EFTIR IRVING STONE sér, að Mabel væri hlýðin dóttir, sem væri móður sinni þakldát fyrir allt, sem hún hefði gert fyrir liana og vildi ekki vilja yfirgefa hana i ell- 'inni — þó að sannleikurinn væri sá, að frú Applegarth væri miklu sterkbyggðari en dóttir liennar. Hún var samt farin að láta Mabel færa sér morgunmatinn i rúmið dag hvern. Mabel var eins og milli tveggja elda og gat sjálf ekki tekið neina afstöðu. Móðir hennar hafði alltaf kúgað hana, og það liafði sett mark sitt á hana. Þegar Jack kom aftur til Oakland um kvöldið, sár og gramur, biðu hans nýjar áhyggjur og vandamál. Flóra sagði honum, að nú væru peningarnir frá „Atlantic Monthly“ alveg búnir. Næsta morgun hjólaði hann gömlu leiðina lil veð- lánarans íneð (regnkápu Johns London á bögglaber- anum. Þegar hann kom út aftur, hafði hann nokkra dollara í vasanum, en hann varð að ganga heim, því að hann hafði veðsett hjólið sitt líka. Það yrði ekki mikilvægt fjárhagsatriði, þó að Mabel bættist við í fjölskylduna, en það mundu liða mörg ár, þangað til liann gæti séð fyrir tengdamóður sinni. - 8. GREIN Auk þess var það hrein- asta fjarstæða að láta sér detta í hug, að frú Applegarth og Flóra gætu búið undir sarna þaki. Strax fyrsta dag- inn mundu þær fara í hár saman. Þær voru aldar upp við gjörólíkar aðstæður og liugsunarhátt, sprottnar upp úr eins ólíkum jarðvegi og frekast var hægt að hugsa sér. Áreiðanlega mundi frú Applegarth vilja stjórna heimili hans. Og Mabel mundi fyrst og fremst vera dóttir frú Applegarth, en þar næst konan hans. Hann var bæði hryggur og Jack London sem ungur, efnilegur rithöfundur. Hann átti við mikla örðugleika að etja, en missti aldrei trúna á sigur. 22 VIKAN 12-tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.