Vikan


Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 37

Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 37
7? Og þó—þaö gæti veriO Mina aö koma úr'bænum, svo sennilega er betra aö ég fari... V Hana, fyrst dyrabjall-^ an og svo er það hippa- skrattinn aö lemja þesE -ar bongótrommur sinar/ 'tvA'JD 8oor^ gggp~s BOOM jgga Og Xoksins táöir í ) g..1T7 Rautt ör yfir.... Framhald af bls. 15 eigi við um gömlu skápana. En lofið mér að sýna yður þennan nánar. Fulltrúinn tók mjög vel eftir, meðan Salomon stillti lásinn og að vörmu spori var hurðin opin. — Jú, viðurkenndi liann. Það virðist vera sérstaldega fullkominn útbúnaður á þessum skáp. — Fullkominn! át Salo- mon eftir. Það er einmitt orðið. Ég er ekki vitund smeykur, þótt „Snillingur- inn“ sé kominn i bæinn. — Skápurinn virðist vera mjög öruggur, sagði fulltrú- inn. — Ég verð nú að viður- kenna það. Hann fylgdist mjög vel með hreyfingum Salomons, þegar hann var að læsa skápnum aftur. — Mér þykir leitt að liafa ónáðað yður, herra Salomon, hélt hann áfram. En við töld- um sem sagt réttast að að- vara yður. En nú verð ég að játa, að þér eruð albrynjað- ur gegn hvers konar innbrot- um. Ég vildi óska að hinir gimsteinasalarnir væru eins forsjálir og þér. Þá væru menn eins og „Snillingurinn“ atvinnulausir. — Mér var sönn ánægja að kynnast yður, lierra full- trúi, sagði Salomon harð- ánægður með hólið. Hann hneigði sig eins djúpt og ístr- an leyfði. Hann brosti þegar hann lokaði hurðinni og tautaði: — Samvaldir blábjánar. Það eru réttu orðin yfir jæssa lögreglumenn. Daginn áður en brúðkaup Cambells skyldi fara fram, ók Salomon í Ijómandi skapi á skrifstofuna sina -— í spán- nýjum bíl. Bílstjórinn bar höndina upp að húfu sinni um leið og höfðinginn steig út. Hið sama gerði dyravörð- urinn, sem hélt hurðinni op- inni fyrir liann, og stoltur og virðulegur gekk Salomon inn í skrifstofu sina. Hann leit á bréfin, sem lágu á borðinu og opnaði eitt þeirra, sem var með liol- lenzku frímerki á. Hann brosti ánægjulega um leið og hann las bréfið. Loks var allt undirbúið og hann gat farið með demantana til Amster- dam. Hann ákvað þegar að fara þangað í vikulokin. Hann las hin bréfin sem lágu á skrifborðinu, en opnaði síðan peningaskápinn. Um leið og hurðin opnaðist, hörf- aði hann undan og skelfing- aróp var komið fram á var- irnar á honum. Fljótt á litið virtist ekki hafa verið hreyft við neinu í slcápnum en í efstu hillunni lá nafnspjald, sem blasti við lionum. Hann skalf, þegar liann tók það og las: „Beztu kveðjur „Snillings- ins“ færa yður heim sanninn um það, að heimskingjar fara alltaf halloka fyrir snill- ingum!“ Svitinn bogaði af enninu á Salomon og liann titraði í hnjáliðunum. Hann dró fram skúffuna, þar sem hann hafði geymt demantana. Hann vissi það, áður en hann leit í hana, að hún rnundi vera tóm. Jú, demantarnir voru horfnir, en ekki hafði verið hreyft við neinu öðru í skápnum. í svipinn gat hann alls ekki gert sér grein fyrir, hvað liafði gerzt. En þegar sann- leikurinn varð honum ljós, var lionum öllum lokið. Hann vissi, að demantarnir liöfðu verið þarna í gær- kvöldi. Og jafnviss var hann um liitt: Að hann hafði læst skápnum. Samt voru dem- antarnir horfnir. Hann reyndi að gera sér grein fyr- ir þessu. Smám saman komst hann að fastri niður- stöðu um þrennt í þessu máli: Að þjófurinn hlaut að hafa vitað, að Cambell-dem- antarnir höfðu verið i vörzl- um Salomons. I öðru lagi, að demantarnir voru óvátryggð- ir og að tapið var hans og aðeins hans. I þriðja lagi gat hann ekki tilkynnt lögregl- unni þjófnaðinn. Aldrei á ævi sinni liafði liann lent í öðru eins. Hann gat hrein- lega ekkert gert í málinu. Allt í einu varð honum ljóst, að hann var í mikilli liættu. Einhver hlaut að vita 12. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.