Vikan


Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 19.03.1970, Blaðsíða 30
HEYRA MÁ (þó lægra sé látið) MÁTTIIDA ÖMAR VALDIMARSSON Hff | | Btri Náttúra: Rafn, með indverska „tabla“, Sigurður, bassaleikari. Björgvin (ieikur á sítar syninum til dýrðar) og (þá sagði) ci onas. hann um afstöðu hans til þess- arar hrakspár. Og ])á sagffi Jón- as: Björgvin Gíslason, kompónistinn í bandinu með sítarinn. „Ég sé ekki marga orðið sem eru betri en Rafn,“ sagði Jónas. Nýlega var tekin upp fyrsta hljómplatan með hljómsveitinni Náttúru — hljómsveitar sem ber víst nafn með rentu, því allir segjast þeir félagar hafa gert sitt til að varna því að svo merkileg þjóð sem íslendingar deyi út. Síðast var það Björgvin Gísla- son, gítarleikari hljómsveitar- innar, sem gat af sér sveinbarn, yndisfrítt, að vísu með örlítilli hjálp heitmeyjar sinnar. í rauninni kemur þetta ekkert upptökunni við, en þegar hljóm- sveitin hóf að starfa í fyrrasum- ar, voru þeir margir sem töldu að hún væri einfaldlega ákvörð- un Jónasar Jónssonar, sem vildi sýna fyrrverandi samherjum sín- um í Flowers, að hann væri ekki hættur þó þeirra nyti ekki við. Þessir sömu aðilar gerðu óspart grín að nafni strengja- sveitar Jónasar, og einhverju sinni þegar hljómsveitin var að fara út á land, flugleiðis, hló heilt flugfélag í heilan dag — nafnið þótti svo sniðugt. Eg dró Jónas afsíðis og spurði „Þegar ég hætti í Flowers, var ég búinn að fá á mig orð fyrir að vera lélegur söngvari, og sjálfur vissi ég að mér hafði far- ið mjög aftur. En það er alls ekki rétt að ég hafi stofnað Nátt- úru með það fyrir augum að sanna eitt eða annað fyrir fyrr- verandi starfsfélögum mínum í Flowers. Mig langaði einfaldlega til að halda áfram að spila og syngja og ég hélt að þetta væru réttu mennirnir til að vinna með. Það hefur reynzt alveg rétt. Við höfum aldrei rifizt og ég hef aldrei unnið með neinum sem betra er að vinna með en þess- um þremur mönnum. Þeir eru hver öðrum betri, og ég veit satt að segja ekki um marga sem slá þeim við. Allir hafa tekið mikl- um framförum undanfarið og ég er virkilega hress yfir þessu öllu saman.“ „Nú fékkst þú ákaflega slæma dóma fyrir söng þinn á hinni frægu — og ágætu — plötu Flowers; ertu ekkert hræddur við að syngja inn á aðra plötu

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.