Vikan - 02.04.1970, Page 23
Robert Redford í hlutverki útlagans Sundance Kid. Hann „sló í gegn“ í þvi
hlutverki.
En í stað þess fór hann að lesa lög. Hann
hætti því þó fljótlega og sneri sér að lista-
námi.
— Þessi skólaganga mín var hreinasta
blöff, ég var í skóla til að geta sagt að ég
gerði eitthvað.
Hann lærði ekki mikið um listir í háskól-
anum í Colorado, en hann lærði ýmislegt
annað og hættulegra. Hann stundaði fjall-
göngur og fór á bjarnarveiðar.
Hann lærði lika vel á skíðum, og það hef-
ur verið aðaltómstundaiðja hans alla tíð
síðan. Þegar hann var búinn að vinna sér
inn töluverða peninga, keypti hann land-
spildu í fjallahéraði í Utali. Þar er hann bú-
inn að byggja glæsilegt fjallahótel, og þar
unir hann hezt.
Iíona lians og tvö börn búa á fjallahótel-
inu mestan hluta ársins og þau sjá um rekst-
urinn, þegar hann þarf að vera fjarverandi
við kvikmyndaleik.
Þegar Rohert Redford var hættur í há-
skóla, ákvað liann að fara í leikskóla. Hann
komst inn í hinn fræga leikskóla Elia Kaz-
ans, Method School of Acting. Þar höfðu
meðal annarra Marlon Brando og James
Dean verið við nám.
Þessi skóli er allt annað en hefðbundinn,
þar er aðallega lögð stund á hina nýju leik-
tækni; — leikararnir eiga að vera eðlilegir,
leika sjálfa sig, þegar því verður komið
við.
Það gerði Robert Redford i lilutverkinu,
sem gerði liann frægan; hann lék sjálfan
sig.
Það er sagt að Robert Redford sé feim-
inn og hlédrægur. Hann hefur mikinn áliuga
á fatnaði og teiknar oft sjálfur fötin sin. Áð-
Framhald á bls. 45
w. tw. VIKAN 23