Vikan


Vikan - 02.04.1970, Side 25

Vikan - 02.04.1970, Side 25
2 hluti 3. KAFLI Þegar þau komu upp á þriðju hæð, sagði Peggy ekkert um, hvert þessir tveir gangar lægju. A þriðju hæð snéri Peggy sér við til að að- gæta, hvort Lori væri ekki með, gekk svo eftir ganginum og að dyr- um einum og lauk upp. Þetta var lítið baðherbérgi, sem bersýnilega hafði einhverntíma verið íveruherbergi. Dyrnar til hliðar lágu að her- bergi Lori. Þar inni var rúm, snyrtiborð, náttborð og körfustóll. En það fór æði lítið fyrir þessum húsmunum í stóru herberginu. í daufu skininu frá rúm- lampanum var herbergið ekki beint rautt á lit, minnti fyrst og fremst á storknað blóð. Slitið gólfteppið var yfirmynstrað rauðum rósum. Vegg- fóðrið var skreytt rauðum röndum og svörtum fjögurra laufa smárum. Rúmteppið og litlu þurrkurnar á snyrtiborðinu var ryðrautt með hvít- um hekluðum bryddingum. Gluggarnir voru fjórir, litlir en háir og gegn- um þunnar gardínurnar mátti greina Ijóta, græna, skerma yfir glugg- um aðalbyggingarinnar. í einu horninu var hringstigi upp að gati í loft- inu, og Lori varð Ijóst, að þarna fyrir ofan væri glugginn óhugnanlegi, sem hún hafði séð frá veginum. ,,Hálfsjö, Lori," sagði Peggy og horfði stíft á ferðatöskurnar hennar. ,,Komdu stundvíslega niður. Gamla konan er ( slæmu skapi." „Bíddu aðeins," bað Lori. „Rabbaðu dálítið við mig, meðan ég tek upp úr töskunum." „Ég verð að fara niður og leggja á borðið, eins og þú heyrðir." „Ert ert þú vinnukona hérna?" spurði Lori. Peggy hló háðslega. „Allir í þessu húsi, elskan mín, eru vinnufólk. En ég er reyndar ekki eins mikil vinnukona og þú heldur. Ég er systir konunnar hans Jims Kensington sálugu. Fólk heldur, að hún hafi dáið af manna völdum." „Myrt?" stundi Lori upp. „Já, svo er haldið, en enginn veit það með vissu. Við dagsljós er hægt að sjá blettinn á teppinu í anddyrinu rétt undir svölunum. Henni blæddi ekki mikið. Hún hálsbrotnaði, og það seitlaði aðeins dálltið blóð út úr munninum. En hún lá þar dálítinn tíma, svo það myndaðist blett- ur. Hún og Jim bjuggu hérna í húsinu, því hún hafði rétt nýlokið námi og var ekki komin í neina vinnu. Ég kom til að hjálpa til og hef verið hér síðan. Ég safna í mig kjarki með að vera hér. í sjálfu þorpinu er svo mikill kjaftháttur. Og hér finnst mér ég vera næst Mary systur." „Mary? Var það systir þín?" „Já, veslings barnið. Hún var ekki nema tuttugu og eins árs. Það eru tvö ár síðan. Þetta var sagt hafa verið slys, en þeir sem þekktu Mary vissu, að hún mundi aldrei hafa gengið beint frá baðherberginu og að handriðinu og dottið fram yfir það." „Heldurðu sjálf, að einhver hafi viljað losna við hana?'" „Ég veit ekki. Var þá stödd í Ardmore. Jim var í músikherberginu, og Frank, sem þú sérð við matborðið, var einhversstaðar úti. Aline var í eldhúsinu eins og venjulegast. Þegar Jim hætti að spiia, kom hann fram í ganginn og sá hana liggja þar. Ég reyni að hugsa ekki of mikið um þetta." „Þetta er leitt að heyra," sagði Lori angurvær. „Það er víst húsið. Mary var númer þrjú." „Númer þrjú? Hafa verið hér fleiri — dauðsföll?" „Louise, fyrsta kona föður þíns." Peggy benti á snúna stigann. „Sjálfs- morð. Og svo kona lelands frænda, mamma Jims. Jim var ekki nema tveggja ára og mamma hans gengin með á sjötta mánuð. Hún og Leland frændi höfðu einmitt lent í einu rifrildinu, og hún steyptist á höfuðið niður stigann. Slys var þetta kallað, en það er vitað, að frændi binn var mjög skapbráður. Þessvegna skaltu gæta þin, Lori." „Hvers vegna, — heldurðu ekki, að þessi ógæfa sé á enda?" „Ef óhapp hefur einhverja þýðingu fyrir þau, getur það alltaf komið fyrir," svaraði hún dularfull. „Jaeja, en nú er bezt ég fari niður og leggi á borð En hvað þú átt margt fallegt, Lori. Það hlýtur að vera draumur að vera rlkur!" Einu sinni enn datt yfir Lori, þegar hún sá Frank Adler. Henni hafði skilizt á Jim, að Frank væri pervisalegur, gamall og heilsuveill. En hún hlaut að hafa misskilið hann, því Frank var alls ekkert fyrirgengilegur, heldur þéttur að vöngum og með mikið grátt skegg. Augun voru geisl- andi blá og fjörleg, — og hann lét sem hann sæi ekki Lori. Og raunar létu þau öll sem þau sæju hana ekki nema þau Peggy og Jim, sem töluðu við hana um alla heima og geima. En enginn spurði hana neins um ráðagerðir hennar varðandi eignina. Jim hafði þvegið sér og snyrt og haft fataskipti. Borðsiðir hans voru óaðfinnanlegir. Lori þótti hann geta sýnt á sér ýmsar hliðar og taldi hann nú í góðu skapi og vildi því komast að hug hans. Hún sagði því við hann: „Mér skilst, að hér sé músikherbergi. Og að þú spilir á eitthvert hljóðfæri." „Slaghörpu," svaraði hann og skuggi leið yfir andlitið. „En ég spila reyndar ekki lengur. Lað á ekki við leigubílstjóra. Slagharpan hefur ekki verið stillt í tvö ár." „Hann spilar vel," greip Frank Adler fram í. „Jim," sagði Aline, „þegar þú kemur aftur frá þorpinu, geturðu þá ekki beðið Joel að koma hingað út eftir, því Lori hafði ekki tíma til að tala við hann áður en hún kom hingað." „A morgun, frænka," ansaði Jim og varð ekkert ánægjulegur á svip- inn. Þegar þau settus.t að kaffinu, ákvað Lori, að sýna myndugleika sinn og sagði við Jim: „Mig langar til að sjá músikherbergið." „Já, það ætti að vera hægt I fyrramálið. Peggy getur sýnt þér það. Framhald á bls. 47 14. tbi VIKAN 25

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.