Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 30
Ippp
Óvissa: NeSstur er Árni Friðriksson,
fyrir ofan hann er Sævar Benedikts-
son, þá Freysteinn Sigurðsson, Gunn-
ar Ringsten og Kristján Guðmunds-
son. (Ljósm. Páll Pálsson).
NORÐUR A AKUREYRI
ER STARFANDI
HLJOMSVEIT
SEM KALLAR SIG
OVISSU.
HLJOMSVEIT, sem
FLYTUR ALLS KONAR
POPP-TÖNLIST,
KOLUTYGGJOMÚSIK
OG LÖG (
FRAMÚRSTENUSTÍL.
VIÐ HEIMSÓTTUM
ÞA A AKUREYRI EKKI
ALLS FYRIR LÖNGU
OG FENGUM AÐ VITA
NOKKUR DEILI
A ÞEIM
HEYRA MÁ
(þó lægra sé látið)
OMAR VALDIMARSSON
Þegar ég var á Akureyri um dag-
ana heyrði ég á götuhornum stelp-
ur og stráka tala um óvissu. Þetta
var áður en farið var að tala um
Slippstöðina, svo ég fór að gerast
forvitinn um hvað var í rauninni í
óvissu í þessum höfuðstað norður-
lands. A endanum vatt ég mér að
ungri snót þar fyrir framan Hótel
Akureyri, og spurði hana hvaða
óvissa þetta væri sem fólk virtist
hafa svo mikinn áhuga á. Lengi vel
horfði hún á mig eins og ég væri
roðflettur rauðmagi frá KEA, en svo
tilkynnti hún mér að þetta væri
bítlahljómsveit, eins sú „skæsleg-
asta" á öllu Norðurlandi. Bittinú!
Þá vissi ég það-
Um kvöldið fór ég í „Siallann"
og þar töluðu þeir Eydal-bræður um
að þessi hljómsveit væri bara góð.
Það var mér nóg. Strax' í býtið
morguninn eftir, tókst mér að ná
sambandi við einn þeirra félaga og
lukkaðist að plata hann upp á hótel-
herbergi til mín, til að segja mér
Efri myndin var tekin af Kristjánl
þegar hann var í hljómsvcitinni
Bravó, og VIKAN fyigdi þcim svein-
um cftir í nokkra daga. Hin myndin
var tekin í siðasta mánuði, og gcri
nú hver sem er sinn samanburð.
eitthvað um þessa hljómsveit.
Eitthvað kannaðist ég við kauða
þegar hann kom, og er nánar var
að gætt, reyndist hann vera Sævar
Benediktsson, fyrrum bassaleikari
með hljómsveitinni BRAVÓ, sem
brezka hljómsveitin Kinks heiðraði
með nærveru sinni um árið. Sævar
heldur sig enn við bassann, og í
nóvember s.l. fékk hann í lið með
sér fjóra unga menn, alla á aldrin-
um 17—19 ára, og stofnuðu þeir
hljómsveitina Óvissu.
Hinir eru Kristján Guðmundsson,
gítar- og orgelleikari, en hann lék
llka með Bravó í sína t(ð, og er nú
farinn að semja lög sem þeir í
Óvissu flytja svo á dansleikjum við
„sæmilegar undirtektir" eins og
þeir sögðu.
Hinn gítarleikari Óvissu er Gunn-
ar nokkur Ringsten, sem áður lék
með hljómsveitinni Flakkarar, en
þar var einnig söngvari Óvissu og
Egill sá sem nú leikur með „hljóm-
sveitinni" COMBÓ, hér ( höfuð-
staðnum. Gunnar er bara glettilega
góður.
Trommuleikari Óvissu er Árni
FriSriksson, náungi sem er virkilega
athyglisverður. Hann mun líka hafa
leikið með þessari merkilegu Flakk-
arahljómsveit, og það er ábyggi-
legt að enginn verður svikinn af að
fá hann í „band" — jafnvel ekki
topphljómsveitirnar hér fyrir sunn-
an, sem puða í atvinnumennskunni.
30 VIKAN 14-tbl-