Vikan - 02.04.1970, Blaðsíða 48
Skrifstofur
og
verzlanir
Gerum við allar tegundir af búðarkössum, ritvélum
og reiknivélum.
Einnig önnur skrifstofuáhöld.
Sækjum — Sendum
Hverfisgötu 72 - Sími 23843
Hún hafði búizt við, að hann tæki þetta illa upp, en í stað þess
brosti hann til hennar. „Þá erum við ekki frændsystkin," sagði hann
vingjarnlega. „Það breytir miklu, — fyrir mig."
„Líka fyrir mig," sagði Lori með hjartslætti. „Mér finnst ég vera
óvelkominn gestur hér."
„En til þess þarf ég að fá hjálp. Ég hef hingað til verið svo einmana
og utanveltu. Og nú hefur maðurinn, sem ég gat ekki annað en hatað,
arfleitt mig að öllum sínum auði." Framhald í næsta blaði.
HWAR ER SHIN HAHS NÍA?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
leiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
S!8ast er dregið var hlaut verölaunin
Kristbjörg Þórarinsdóttir, Hjarðarhaga 36, Reykjavík.
Nafn
Heimili
Örkin er á bls.
Vinninganna má vitja i skrifstofu Vikunnar. 14.
Frú Robinson
Framhald af bls. 33.
þar. Hann sturtaði úr koddaver-
inu á rúmið sitt og horfði á föt-
in um stund en fór svo í mat.
Þegar hann kom aftur fór hann
að hengja upp. Þegar hann var
rétt búinn, bankaði Elaine. Hann
opnaði.
— Komdu inn, sagði hann og
tók blautar buxur af stólbaki
svo hún gæti sezt. Hann henti
buxunum á rúmið sitt. — Fáðu
þér sæti, sagði hann.
Hún settist ekki en gekk að
lampanum á skrifborðinu og
starði á stuttbuxur sem hann
hafði hengt á skerminn.
— Varstu að þvo?
— Já. Fáðu þér sæti.
— Hvar þvoðir þú?
— Elaine, ég fór í sjálfsala-
hreinsunina á horninu. Viltu
gera það fyrir mig að setjast?
Hún settist. — Eru engir
þurrkarar þar?
Benjamín náði í annan stól og
settist við hlið hennar. Hann fór
í vasann og dró upp gullhring.
— Mátaðu hann.
Hún tók við honum. — Hann
er of stór.
— Viltu samt máta hann?
Hún setti hann á baugfingur.
— Jæja? sagði Benjamín.
— Hann er of stór.
— Leyfðu mér sjá, sagði hann.
Beniamín tók hönd hennar og
snéri hringnum nokkrum sinn-
um. — Já, sagði hann, — hann er
of stór.
— Sjáðu, sagði Elaine og setti
hringinn á þumalfingur. — Hér
passar hann fullkomlega!
— Já, ég tek hann aftur.
Hún tók af sér hringinn og
rétti honum hann. — Ég skipti
honum og fæ minni, sagði hann
um leið og hann setti hringinn
í vasann. — En líkar þér við
hann?
— Ha?
— Líkar þér við hönnunina á
honum? Litinn, breiddina og þar
fram eftir götunum?
Hún kinkaði kolli.
•—■ Gott, ég fæ þá aðeins minni.
— En Bcnjamín
— Já.
— Ég hef aldrei sagt að ég ætl-
aði að giftast þér.
— Nei, ég veit það. svaraði
hann, — en ég held þú gerir það
samt.
— Nú?
— Já. Mér finnst það eiginlega
óhjákvæmilegt og eðlilegt nú
sem komið er.
— Það finnst mér ekki.
Hann hrökk við og starði á
hana.
— Benjamín, ég hef verið að
hugsa um þetta
. — Og?
— Og ég held að það geti ekki
gengið.
— Jú! Auðvitað myndi það
gera það, Elaine!
Hún hristi höfuðið.
— Hvers vegna ekki?
Hún stóð upp og gekk að skrif-
borðinu þar sem hann hafði lagt
peysu til þerris. — Settirðu þetta
í þvottavél? spurði hún.
— Hvers vegna ekki? spurði
hann aftur.
Hún tók upp peysuna og bar
hana upp að augunum til að
skoða hana. — Hún er ónýt,
sagði hún.
— Elaine, láttu ekki svona'
Hvers vegna getur það ekki
gengið?
— Það bara myndi ekki gera
það.
— Ja
— Ja hvað?
— Þú komst hingað inn í gær-
kvöldi og þá var ég að fara. Ég
af hverju gerðir þú það?
— Ég veit það ekki. sagði hún.
— Ég átti bara leið framhjá.
— En Elaine. . . .
Hún setti peysuna aftur á
skrifborðið og sléttaði úr henni.
— Ég verð að viðurkenna,
sagði Benjamín, — að ég hélt
að þér þætti vænt um mig. Eft-
ir að þú komst í gærkvöldi.
Elaine svaraði ekki.
— Þykir þér vænt um mig?
— Já.
— Gott og vel. Okkur þykir
vænt hvoru um annað. Þá skui-
um við giftast.
— Geturðu ímyndað þér for-
eldra mína? sagði hún og snéri
sér við til að horfa framan í hann.
— Foreldra þína?
— Geturðu ímyndað þér
hverníg þeim liði?
— Meinarðu móður þína?
— Nei. Pabba.
— O, hann, sagði Beniamín og
benti á vegginn. — Elaine, hann
yrði hamingjusamasti maður í
heiminum ef við giftumst.
— En ef hann kemst að því
sem skeði?
— Hann kemst ekki að því.
Hún starði á hann og sagði
ekkert.
— Elaine, hann reynir allt
hvað hann getur til að koma
okkur saman. Einu sinni sagði
hann mér að ég væri eins og son-
ur hans.
— En ef hann kemst að þessu?
— Nú, og hvað með það? Ég
bið hann afsökunar. Ég segi
honum að þetta hafi verið kjána-
legt og hann segir þá að hann
hafi orðið fyrir örlitlum von-
brigðum með mig en hann skilji
mig og svo er það bara búið.
— Þú ert barnalegur, sagði
Elaine. Hún settist aftuí.
— Sjáðu nú til, sagði Benja-
mín, — gleymdu foreldrum þín-
um. Hann settist við hlið henn-
ar. — Eitthvað annað sem mælir
á móti því að við giftumst?
— Já.
— Og hvað er það?
— Þú ert ekki undir það bú-
inn að giftast strax.
— Hvers vegna ekki?
— Nú?
48 VIKAN 14-tbl-