Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 10
Róbert ásamt Bryndísi Pétursdóttur i Góða t
dátanum Svæk, eftir Jaroslav Hasek. Fyrir
frammistöðu sína i því hlutverkl hlaut Róbert
silfurlampa leikdómenda.
Róbert Amfinnsson og Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir sem Gant-hjónin í Engill horfðu heim,
sem gert er eftir ævisögu skáldsins Thomasar
Wolfes.
Róbert Arnfinnsson (Salarinó), Baldvin Halldórsson
(Gratíanó) og Gunnar Eyjólfsson (Sólaníó) i Kaup-
mannlnum í Feneyjum sem Leikfélag Reykjavíkur
sýndi 1945. Svo skemmtilega vildi til að þetta var f
fyrsta sinn, sem þessir þrír ástsælu leikarar komu
fram á sviði, svo að nú á dögunum gátu þcir haldið
upp á aldarfjórðungs leikafmæli sameiginlega. -qp.
Tek Miller fram yfir Shakespeare
RÆTT VIÐRÓBERT ARNFINNSSON, LEIKARA
Texti: Dagur Þorleifsson
Róbert sem Guðmundur í kvikmyndinni Sjötiu
og níu af stöðinni, gerðrl eftir samnefndri skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar.
Sem Eddie Carbone í Horft af brúnni eftir
Arthur Miller. ■jm*
Sem Kári í Fjalla-Eyvindi ásamt Ingu Þórðardóttur f
hlutverki Höllu.
Hæpið er að nokkur núlifandi
leikara okkar njóti meiri vin-
sælda en Róbert Arnfinnsson. Nú
er liðinn aldarfjórðungur síðan
hann byrjaði að skemmta okkur
á sviðinu; fyrsta hlutverk hans
var Salarino í Kaupmanninum í
Feneyjum hjá Leikfélagi Rvíkur
1945. Síðan hefur hann leikið hátt
á annað hundrað sviðshlutverk,
auk ótal hlutverka í útvarpsleik-
ritum, einu sinni í kvikmynd
(Sjötíu og níu af stöðinni) og
jafnvel í sjónvarpi. Hann hlaut
silfurlampa Félags íslenzkra
leikdómara 1956 fyrir frammi-
stöðu sína í aðalhlutverkinu í
Góða dátanum Svæk eftir Jaro-
slav Hasek og aftur í fyrra
(1969) fyrir Puntila í samnefndu
leikriti og Tevje í Fiðlaranum
á þakinu og silfurskjöld fyrir
„fagran flutning íslenzkrar tungu
í útvarp“ úr minningarsjóði
Daða Hjörvar, árið 1961.
Róbert er fæddur 1923 og nam
leiklist hjá Lárusi Pálssyni og
síðan í leikskóla Konunglega
leikhússins í Kaupmannahöfn.
Hann hefur verið fastráðinn
leikari við Þjóðleikhúsið frá
stofnun þess 1949, en hefur auk
þess leikið hjá Leikfélagi Reykja-
víkur og fleiri aðilum, var til
dæmis um hríð með eigin leik-
flokk. Kvæntur er Róbert Ólöfu
Stellu Guðmundsdóttur frá Vest-
mannaeyjum.
Hér verður leikferill Róberts
ekki rakinn nánar, enda er hann
leikhúsgestum ógleymanlegur úr
miklu fleiri hlutverkum en hér
sé rúm upp að telja. Við gætum
rétt drepið á Eddie Carbone í
Horft af brúnni, Jón í Nashyrn-
ingunum, George í Hver er
hræddur við Virginíu Woolf,
Monsjör í Gíslinum, de Sade
markgreifa í Marat-Sade, Punt-
ila, Tevje, svo fátt eitt sé nefnt.
Sem stendur fer Róbert með
hlutverk Walter Franz í Gjaldi
Arthurs Millers og æfir jafn-
framt hlutverk Njáls í Merði
Valgarðssyni Jóhanns Sigur-
jónssonar. — Það var síðla einn
regnvotan laugardag að blaða-
maður Vikunnar brá sér niður í
Þjóðleikhús og hitti Róbert að
máli í búningsherbergi hans í
hléi milli æfingaatriða.
Það hefur heyrzt að Róbert
hafi í hyggju að flytja héðan af
landi alfarinn, og yrði það ein-
hver hryggilegasti viðburður í
allri sögu íslenzkrar leiklistar ef
svo færi. Ég spurði Róbert því
umsvifalaust hvort þetta væri
virkilega rétt, hvort hann væri
að fara.
— Ja, það hefur nú svona
verið að brjótast í mér, svaraði
Róbert. — En nú skilst mér að
standi til einhverjar breytingar
hérna, það er víst búið að skipa
nefnd til endurskoðunar og jafn-
vel uppstokkunar á lögum Þjóð-
leikhússins, og hugsanlegt að
leikarar njóti einhvers góðs af
því. Nú, mér skilst að eitt og
annað sé í endurskoðun þar fyr-
ir utan, og ég vil nú ekki full-
yrða neitt um utanferð fyrr en
sést hvað út úr því kemur.
— Hvaða breytingum er von
á?
— Þetta er enn á því frum-
stigi að ég get raunar ekkert um
það sagt ennþá. Það eru sérstak-
lega skipaðar nefndir sem vinna
að þessu. Frá Félagi ísl. leikara
og svo þingnefnd. Ég hygg þær
eigi að vinna saman að einhverju
leyti. En sú hlið þessa alls sem
einkum snýr að okkur leikurun-
um er launaspursmálið. Því það
er sannast sagna að miðað við
fjölda vinnustunda og laun á
tímann höfum við ekki einu
sinni Dagsbrúnarkaup. Vinnu-
vika okkar við leikhúsið, bara
starfið í leikhúsinu sjálfu, hún
er svona frá fimmtíu og fjórum
upp í sextíu vinnustundir í viku,
stundum meira, og tveir þriðju
hlutar þessa tíma er nætur-,
kvöld- eða helgidagavinna. Og
ef maður reiknar tímakaup út
eftir því, þá er hægt að ímynda
sér hver útkoman verður. En
hér er ekki innifalin öll sú mikla
vinna, sem hver og einn verður
að leggja á sig heimafyrir, í sín-
um frítíma. Ef maður er að læra
stór hlutverk, er ekki nóg að
lesa þau í gegn á æfingu, mað-
ur verður að eyða svo og svo
miklum tíma í það heima. Það
kemur oft fyrir að maður verð-
ur að lesa ýmsar bækur í kring-
um þetta. Þegar um söguleg leik-
rit er að ræða, þarf maður að
kynna sér tímabilið, sem þau
gerast á. Svo ég nefni dæmi, þá
las ég bókina um Tevje mjólk-
urmann eftir Sjolom Aleikem
þegar Fiðlarinn á þakinu var
æfður, og sömuleiðis heilmikinn
doðrant, ógurlegt torf, um Gyð-
ingatrú. Og þegar við lékum
héma Marat-Sade, þá urðum við
að fara að grufla í og rifja upp
frönsku byltinguna. Og núna er
eins gott að hafa einhverja hug-
mynd um Njálu, sem flestir
okkar kannast þó sjálfsagt eitt-
hvað við.
— Því hefur heyrzt fleygt, að
Þjóðleikhúsið hefði fullmarga
fastráðna leikara, en legði á þá
mjög misjafnlega mikla vinnu,
án þess að þeir, sem hvað mest
hafa verið í sviðsljósinu, hefðu
nokkru betri kjör en hinir, sem
sjaldan sjást þar.
— Ég segi það nú kannski
ekki að enginn munur sé hér
gerður. Þetta eru launaflokkar
samkvæmt launaskrá starfs-
manna ríkisins, en hlutföllin
milli launaflokkanna eru ekki
jafnmikil og milli þeirra leikara
sem mest eru notaðir og svo
annarra, sem eru minna notaðir.
Eg á að heita í hæsta launa-
flokki, en fæ engin óskapa laun
fyrir því. Það er að segja, það
er hæsti launaflokkurinn, sem
leikari við Þjóðleikhúsið getur
komizt í. Að sjálfsögðu eru
margir launaflokkar ríkisins þar
fyrir ofan. En bilið á milli þeirra
mörgu launaflokka, sem þar eru
fyrir neðan, það er ekki svo
voðalega breitt.
— Hvaða hlutverk hefur þér
þótt skemmtilegast?
— Ég get eiginlega ekki drep-
ið fingri á neitt sérstakt. Þar
gætu mörg komið til greina. En
maður vonar alltaf að næsta
hlutverk verði það skemmtileg-
asta.
— En manstu eftir nokkru,
sem þér hefur þótt sérstaklega
erfitt að fást við, umfram önn-
ur?
— Öll hlutverk í leikritum,
sem teljast til hinna meiri bók-
mennta, eru erfið, finnst mér.
Þau eru erfiðari að því leytinu
til að höfundurinn gerir miklar
kröfur. Eins og núna til dæmis í
Gjaldinu eftir Arthur Miller.
Hann kafar svo djúpt í sálarlíf-
ið. Og það er raunar mjög erfitt
að komast til botns í persónunni,
sem ég leik þar, svo að það verði
tæmandi. Svo geta önnur hlut-
verk, þótt þau séu nauðaómerki-
leg, í verkum eftir léleg leik-
skáld, aftur á móti verið enn
erfiðari, vegna þess að þar er
ekkert! Það sem í svoleiðis hlut-
verk verður að leggja, verður
maður að grípa í lausu lofti og
eiginlega dikta inn i. En þess
konar hlutverk geta verið svo
laus í reipunum, að það sé virki-
lega erfitt að fá nokkurn botn í
þau. Það er sem sagt erfitt að
setja nokkUrn kvarða á hvaC
erfiðara sé en annað.
— Hvaða leikskáld meturðu
mest?
— Ég er persónulega miklu
meira gefinn fyrir nútímaleik-
10 VIKAN 16-tbl-
16 tbl VIKAN 11