Vikan


Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 31

Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 31
TlLF MIILJÖNIR MARKA FYRIR HAL8 Ennþá einu sinni hefir veriS greidd gífurleg upphæS fyrir málverk 1 tuttugu ár hefur Franz-Joseph II. þurft að ganga á málverkasafn sitt til að afla peninga, því að hann hefur eng- ar tekjur. — Nú síðast fékk hann tólf milljónir marka fyrir málverk eftir Franz Hals. Þetta málverk málaði Hals fyrir 350 árum, í heimaborg sinni Haar- lem, af kaupmanninum Willem van Heythuyzen, í líkamsstærð. Það hafa löngum risið deilur um hinn aldna Willem, ekki sízt þegar Liecthenstein, furstinn af Vaduz, samdi um kaup á málverkinu við fríríkið Bayern, án þess að fá leyfi þegna sinna. Síðan var komið á fót safni í kringum þetta málverk, og var það nokkuð dýrt fyrir hina fámennu Liechtenstein-búa. . .Nú hangir málverkið í Alter Pinakot- hek í MUnchen. Dr. Erich Steingraber, formaður ríkislistasafnsins í Bayern, er hamingjusamur. En prófessor Arnold Bode, frá listaháskólanum í Kassel er á öðru máli: Ég álít að fyrir þetta fé hefði verið hægt að byggja 80 hús og veita 120 listamönnum 100.000 marka styrk hverjum. Listamennirnir segja: — Seljið mál- verkið með fjögurra milljón marka ágóða, Paul Getty vill kaupa það. Þá er hægt að setja á stofn „Franz Halls skóla.“ En þessu málverki verður nú samt Franz-Joseph II. fursti af Lichtenstein seldi málverkiS, en Paul Getty viU kaupa þaS. Dr. Eric Steingrábcr (til hægrl) fékk málverkiS fyrir listasafniS í Miinc- hen. ekki ráðstafað í bili. Það hangir þarna í Munchen sem trygging fyrir þessum tólf milljón mörkum, sem Bayerischen Hypotheken-und Wechelbank snaraði út, því að árleg kaupgeta málverkasafns ríkisjns er ekki nema 650.000 mörk, og það var svo langt frá að duga til þess að kaupa málverkið af hollenzka kaup- manninum. ☆ 16 tw VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.