Vikan


Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 39

Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 39
56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill). Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ OÐINSTORG - SlMI 10322 hvað svipað því sem lýst er í heimsendaþönkum Thurbers: Músík-, bóka- og myndalaus manneskjan sat með kindarhaus gleði-, dáða- og gimdalaus. Glötunin virtist þindarlaus. Vonandi berum við gæfu til að hindra slík og þvílík ósköp. Vonandi berum við gæfu til að halda hjá okkur úrvalslista mönnum á borð við Róbert Am- finnsson, í stað þess að flæma þá úr landi með fávitalegu van- þakklæti oog afskiptaleysi um kjör þeirra og aðbúnað. dþ. Tangó Framhald af bls. 17. Hann tilkynnti að sjóður- inn hefði nú fest kaup á stóru íbúðarhúsi í miðri Kaup- mannahöfn. 1 því húsi eru 25 íbúðir, sem framvegis eiga að vera til reiðu handa efni- legum tónlistarmönnum, og létta þannig undir nám þeirra. Tangoinn var sem sé bú- inn að kaupa stórt hús. En lögfræðingurinn sagði að þetta væri aðeins upphaf, ætlunin væri að vera búin að afla að minnsta kosti fimm milljóna, þegar stefrétturinn rennur út eftir 45 ár. Stef- réttur fellur úr gildi 50 árum eftir lát höfundar. Lögfræðingurinn rakti svo sögu sjóðsins: — Lagið varð raunar vin- sælast í síðari heimstyrjöld- inni. Eftir stríðið gat Gade farið til Bandaríkjanna með konu sinni, og þar fékk hann rúmlega milljón danskra króna, sem hann átti inni- frosið í höfundarrétt. Nú mætti ætla að áhuginn á þessu lagi væri farinn að dofna, en svo er ekki. „Tango Jalousie“ er nú spilað oftar en nokkru sinni. Meira að segja Bítlarnir geta ekki stát- að af svona miklum vinsæld- um frá öllum heimshomum. Til dæmis koma stórar fúlg- ur árlega frá Japan. Ljóð afbrýðiseminnar heldur áfram á sigurgöngu sinni, og ekkert bendir til að frægð þess rýrni, og það eru miklar líkur til að sjóðs- stjórninni verði að óskum sínum; að geta úthlutað hálfri milljón í styrki árlega og eiga fimm milljónir í banka.... * Mynd af manni Framhald af bls. 15. sjálfur ekki trúaður á það. Ef nokkum mann hefur nokkru sinni skort hæfileika til að halda reikning, þá var það hann. Þessi upphefð hans var ekki annað en fyrirtæk- isstjórnmál. Ég hefði gaman að vita, hvort það væri þann- ig alls staðar. — Borðaðu nú alla skink- una og eggin, Harold, sagði móðir mín. Paula hló illgimislega. — Hann er þegar orðinn eins og smjörkúla, sagði ég. — Höfum við — hefur deildin — nokkuð áþreifan- legt til að styðjast við? spurði 0‘Brien. — Ég á við spor eða eitthvað í þá átt? Nokkuð dálítið meira en ágizkanir? Walters yfirlögregluþjónn varð dálítið ergilegur. — Nei fyrir utan „ágizkanir" höfum við ekkert. — Enginn fingraför? Walters hló. — Haldið þér virkilega, að maðurinn léki stöðugt lausum hala, ef við hefðum fingraför hans? — Ég átti aðeins við, að það fyndust ef til vill fingra- för, en að við hefðum þau ekki i safni okkar. Ekki einu sinni í Washington. — Nei! Það eru engin fingraför. Við rannsökuðum hvert einasta sprengjubrot, sem við gátum fundið. Og afgangurinn af umbúða- pappirnum og seglgaminu veittu okkur engar upplýs- ingar. 0‘Brien gekk á lagið. — Var Tysonmálið ekki upplýst með fingrafömm? Walters kinkaði kolli. — Jú! En í þvi tilfelli náðum við í heila sprengju — sem hafði ekki sprungið. Við fundum för eftir þumalfing- ur og vísifingur á vasaljós- rafhlöðunni. Hugur yfirlögregluþjóns- ins hvarflaði antartak aftur i«. tbi. vnCAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.