Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 24
Urriða er bezt að nota í þennan
rétt, en einnig má nota aðrar fisk-
tegundir.
Fiskurinn nuddaður með salti og
sítrónusafa að utan og innan. Dýfið
honum í hveiti, þá í samanþeytt
egg og þá að lokum í saxaðar
möndlur eða hnetur. Látið fiskinn
bíða þannig aðeins um stund áður
en hann er steiktur við vaegan hita.
Berið fram með sítrónubátum og
agúrkusalati, sem sett er í útholaða
tómata. Berið fram með brúnuðu
smjörinu.
FISKUR MEÐ ÁVÖXT-
UM OG MÖNDLUM
Ristið möndlurnar. Steikið fiskinn
og haldið honum heitum. Steikið á
pönnunni bananasneiðar, rauða pap-
rikuhringi og appelsínusneiðar, sem
skipt er í fernt (hýðið á að vera á,
það gefur sérstakt bragð). Hellið
smjörinu og ávöxtunum yfir og
og berið strax fram, ásamt hrísgrjón-
berið strax fram, ásamt hrísgrjón-
um eða soðnum kartöflum.
UMSJÓN: DRÖFN H. FARESTVEIT, HÚSMÆÐRAKENNARI
MÖNDLUSTEIKTUR
FISKUR
HEITT KRABBASALAT
Þetta er amerískur forréttur og er
skemmtilegur til að bera á undan
t.d. köldum kjötrétti.
1 stór laukur
1 græn paprika
1 hvítlauksbátur
1 msk. söxuð steinselja
2—3 msk. smjör
2 msk. brauðmylsna
1 egg
2 harðsoðin egg
1—2 tsk. edik
1 tsk. worcestersósa
timian
tabasco (mjög sterk kryddsósa, sem
má sleppa. Notið pipar ef hún
er ekki fyrir hendi)
salt
1 dós krabbi.
Saxið lauk, papriku, hvítlauk og
steinselju og steikið í smjöri án þess
að það brúnist. Setjið lok á og látið
krauma við vægan hita í 5—8 mín-
útur. Tekið af hitanum og brauð
mylsnu, harðsoðnum söxuðum eggj-
um og samanþeyttu egginu bætt í
og kryddið eftir eigin smekk og er
krabbanum blandað seinast í. Sett
í eldföst mót (1 skammtur handa
hverjum) og látið standa í ofninum
þar til allt er orðið vel heitt.
RAUÐSPRETTUFLÖK
MEÐ SVEPPASÖSU
8—10 lítil flök (þ.e. klofin að endi-
löngu
25 gr smjör
25 gr hveiti
sveppasoð, hvítvín, sítrónusafi
rjómi (allt ca. 3V2 dl)
250 gr sveppir (meira ef vill)
salt, pipar
rasp
smjörbitar.
Fiskflökunum rúllað upp og þeim
fest með tannstönglum. Utbúið sósu
úr sveppasoðinu, hvítvíninu, og
rjómanum. Sveppirnir settir útí og
hellt yfir flökin. Raspi stráð yfir og
smjörbitum dreift yfir. Bakið réttinn í
ofni við ca. 200° í 20—25 mínútur.
Gott er að bera volgt brauð með
þessum rétti og þá gott að nota
heitan ofninn til þess að velgja það.
24 VIKAN 16-tbl-