Vikan


Vikan - 16.04.1970, Síða 36

Vikan - 16.04.1970, Síða 36
Niu rauðar rósir... væru tilvalin gjöf handa sérhverri húsmóður. En rósir standa ekki lengi, því miður. Á hinn bóginn eru skýrir litir og hvitari áferð OXAN þvottarins óendanlegur ánægjuauki fyrir allar hús- mæður. OXAN lágfreyðandi þvottaefni er gert fyrir konuna, sem hefur ánægju af rauðum rósum og fallegum þvotti. HRHREINN STJÖRNUSPÁ*^ y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert leiður yfir tilbreytingarleysi hversdagsins en þú ert samt störfum hlaðinn. Atburðir innan fjölskyldu þinnar verða til þess að þú verður að breyta um fyrirætlanir í sambandi við ferðalag. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Það er nauðsynlegt fyrir þig að eiga góða samvinnu við meðbræður þína, sérstaklega vinnuféiagana. Þú missir traust á sannsögli eins kunningja þíns. Lík- ur eru á að einhver góður maður hjálpi þér óbeðinn. * a fi Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vinur þinn er langt niðri eins og er, sennilega af völdum veikinda. Gerðu þér far um að létta honum tilveruna og hjálpa honum við verk sín. Þú færð atvinnutilboð sem þú ættir að íhuga nánar. © Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þér er alveg óhætt að ýta svolítið á eftir kröfum þfnum á vinnustað, því annars er hætta á að þeim verði stungið undir stól. Þú færð gott tækifæri til að sýna dugnað þinn og röggsemi. 9ir Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst); Þú hefur of mörg járn í eldinum og ættir hið bráð- asta að vinza þau verstu úr svo þér verði eitthvað úr hinum. Kunningi þinn er mjög ákafur í ein- hverjum áróðri og reynir að teyma þig með sér. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): •Sannindi um vissa persónu koma þér mjög á óvart og verða til þess að þú snýrð þér öðruvísi í ákveðnu máli. Þú græðir vel á hlutdeild í verki sem aðrir hafa aðallega unnið að. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú verður að fara mjög varlega í sakirnar ef þú vilt ekki að leiðindamál verði tekið upp að nýju, því svo sannarlega muntu ekki græða á því. Kunn- ingi þinn sýnir þér mikinn trúnað. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú ert einkar hrifnæmur og veikur fyrir breyt- ingum og nýjungum og ættir að geta fært þér þennan veikleika vel í nyt. Ættingjar þínir gera þér greiða sem þú kannt vel að meta. ** Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þér líður bezt þegar þú hefur nóg að starfa og þótt þú gerir ekkert til þess að afla þér verkefna hlaðast þau upp hjá þér. Atburðir innan fjölskyldu þinnar færa þér viss vandamál. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20 ianúar): Varastu að skipta þér að því sem þér kemur ekki við, jafnvel þótt þér finnist það geta verið til bóta. Vinur þinn er hjálparþurfi en skirrist við að leita hjálpar þinnar. Þú gefur vini þínum smágjöf. ^SESPr Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. íebrúar); Vinnufélagi þinn einn er mjög stríðinn og kann lagið á þér. Reyndu að gefa sem minnstan högg- stað á þér og taktu hlutunum eins rólega og þú getur. Þú færð fréttir af góðum kunningja þínum. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Vissa aðila er farið að lengja eftir að þú fram- kvæmir loforð þín. Þér berast óvænt tvö skemmti- leg verkefni sem þú leysir fljótt og vel af hendi. Likur eru á að þú farir í ferðalag. V 36 VIKAN 16-tbI-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.