Vikan - 16.04.1970, Qupperneq 47
Fabiola erfingi hennar, en nú
setti hún þaS sem skilyrði að
hún eignaðist son fyrir 1.
janúar 1970. Ef svo yrði ekki
átti allur auðurinn að ganga
til Paolu prinsessu. Nokkr-
um vikuin síðar dó gamla
konan, sem hafði verið gift
Alberti fyrsta.
„Rauða drottningin“
Samkonuilagið milli Fabi-
olu drottningar og ömmu
konungsin? hafði aldrei verið
gott. Þær voru mjög ólíkar.
Elisabeth, sem var prinsessa
frá Bayern. gekk oft fram af
konungsfjölckyldunni með
framferði sinu. Þegar hún
var 85 ára fór hún til Peking,
þar sem Mao Tse-tung tók
vel á móti henni. Þar áður
hafði hún farið flugleiðis til
Moskvu. Eftii þetta brambolt
var hún kölluð „rauða
drottningin“. Fabiola fann að
þessu við hana, sagði að hún
yrði að vera ögn varkárari i
framkomu, til að koma ekki
óorði á konungsfjölskylduna.
Gamla konan gat ekki með
nokkru móti séð að nokkuð
væri athugavert við þessi
ferðalög, og hélt áfram að
haga sér eftii eigin vild. Svo
sneri hún baki við Fabiolu
drottningu og lagði alla sína
ást á Paolu. Þeim kom prýði-
lega saman, og nú í ársbyrj-
un fékk Paola arfinn.
Fabiola diottning fer við
og við til Andalúsíu á Spáni,
þar sem hún á hús, og það
var jafnvel sagt að konung-
urinn ætlaði að afsala sér
konungstign, — láta bróður
sinn taka við, en það þykir
ekld líklegt í Belgíu. Kon-
ungshjónin eru vel látin, og
ekki ber á öðru en að þau
séu líka hamingjusöm, þrátt
fyrir vonbrigðin. Ríkiserfðir
eru líka tryggðar, Albert er
rikisarfi og böm hans eftir
hans dag. Það er sagt að kon-
ungshjónin munu ætla að
ættleiða barn, eða böm, en
þau myndu aldrei erfa rikið,
en Fabiola hefir svo mikið
yndi af börnum. Það er líka
sagt að það braki nokkuð
harkalega í hjónabandi
þeirra Paolu og Alberts, en
þau eiga þrjú böm....
☆
Fabiola er glæsileg kona.
ie. tbi. VIKAN 47