Vikan - 11.06.1970, Side 9
til þess að óeirðir brytust ekki
út á meðan á þessum leik
stæði. Aðeins tuttugu þúsund á-
horfendum var hleypt inn á völl-
inn, sem annars rúmar 110.000
áhorfendur og tvöþúsund vopn-
aðir lögreglumenn, sérstaklega
þjálfaðir til að bæla niður upp-
reisnir voru til staðar til að sjá
um að allt færi skikkanlega
fram. Tókst þeim að halda á-
horfendum í skefjum.
Um leikinn er það að segja
að E1 Salvador vann hann með
þrem mörkum gegn tveim og
hélt því áfram keppni.
I öðru tilfelli var hin alvar-
lega þjófnaðarákæra á hendur
hinum dáða fyrirliða West Ham
og enska landsliðsins, Bobby
Moore. Að flestra áliti var hér
um bragð að ræða til þess að
splundra einingunni, sem ríkti
innan enska landsliðsins og koma
óorði á liðið til að fá áhorfend-
ur á móti því.
Þetta bragð mistókst algerlega
og hefur nú komið í ljós eftir
fyrsta leik Englendinga gegn
Rúmenum að liðsandinn er jafn-
vel enn betri en áður. Og þá
er það ekki síður mikilvægt að
þetta virðist ekki hafa komið
neitt niður á getu Moore, því að
hann sýndi mjög góðan leik og
stjórnaði éinum mönnum frá-
bærlega vel í fyrsta leiknum.
Bobby Moore er álitinn bezti
fyrirliði sem nokkru sinni hefur
stjórnað enska landsliðinu. Hann
er tuttugu og níu ára gamall og
hefur allan sinn atvinnumanns-
feril leikið með West Ham. Hann
var fyrst valinn í A-lið félags-
ins árið 1958 í leik gegn Man-
chester United og hefur nú leik-
ið rúmlega fjögurhundruð leiki
með félaginu, lengst af sem fyrir-
liði þess.
Hann hefur verið fyrirliði allra
hinna ýmsu landsliða Englands:
unglingaiandsliðsins - lék átján
leiki með því, fyrst sautján ára
gamall, — landsliði skipað leik-
Drættirnir á andliti Bobby Charl-
tons sýna vel hversu mikið álag það
er að keppa um æðstu verðlaun
knattspyrnuíþróttarinnar. Jafnvel
þrautreyndir leikmenn eins og hann
eiga það til að falla alveg saman að
leik loknum og gráta.
4 Á þessari mynd sjást Jack Charlton
og Bobby Moore veifa til mannfjöld-
ans eftir sigurinn 1966.
Þetta er ekki Skoti, heldur Vestur- 4
Þjóðverjinn Gerd Múller. Hann klædd-
ist þessum skozka búningi fyrir leik-
inn gegn Skotum í Hamborg, sér og
öðrum til gamans.
mönnum tuttugu og þriggja ára
og yngri — með því liði lék hann
átta leiki, — og A-landsliðinu,
sem hann hefur leikið áttatíu
leiki með.
Hann var fyrst valinn í A-
landsliðið árið 1962 gegn Perú-
mönnum, en stjórnaði enska A-
landsliðinu í fyrsta sinn árið ‘63
í leik gegn Austur-Þjóðverjum.
Hann var kjörinn knattspyrnu-
maður ársins fyrir keppnistíma-
bilið 1963—64.
Árin 1964—66 tók Moore á
móti þrem af eftirsóttustu bik-
urum sem enskur leikmaður get-
ur unnið og var það í öll skiptin
á Wembleyleikvanginum. 1964
vann lið hans ensku bikarkeppn-
ina, árið eftir Evrópubikarkeppni
bikarmeistara og 1966 tók hann
á móti Jules Rimet styttunni úr
hendi Bretadrottningar. þegar
Englendingar urðu heimsmeist-
arar. í þeirri keppni var hann
kjörinn bezti leikmaður keppn-
Framhald á bls. 48.
4 Bobby Mciore fyrirliði cnska lands-
liðsins. Hann stjórnar sínum mönn-
um af mikilli festu og er traustasti
maður varnarinnar.
Á þessari mynd er landslið Vestur- t
Þjóðvcrja, scm sigraði Skotameðþrcm
mörkum gegn tveim í Hamborg I
forkcppninni. Með þessum sigri voru
Þjóðverjarnir öruggir um Mexicoför.
24. tbi. yiKAN 9