Vikan - 25.06.1970, Síða 20
SVONA
ER
UNGA
FÓLKIÐ
„Sá gamli getur
aðeins hugsað sér
breytingar innan
kerfisins, en sá
ungi einnig á
kerfinu sjálfu.“
„Æskan í dag er
óþvingaðri hiðytra,
en hefur við fleiri
vandamál að
stríða hið innra.“
að börn alist upp í hópi jafnaldra en þar hlýtur auk-
ins frjálsræðis að gæta.“
„Allar hömlur sem settar eru á einstaklinga eru til
ills, ef þeir skilja ekki gildi þeirra og nauðsyn. Á
ungling á mínum aldri eru aðeins settar þjóðfélags-
legar og félagslegar hömlur, misjafnlega fáránlegar."
13. Álítur þú að ,,gjá“ sé á milli unglinga og fólks
sem komið er yfir 35 ára aldurinn?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
54 56 5
Eins og sjá má eru skoðanir mjög skiptar í þessu
máli, en þó eru þeir örlítið fleiri sem telja að gjáin
sé ekki til. Einn úr þeim hópi svaraði: „Nei, ekki
nema ef viðkomandi aðilar trúa statt og stöðugt á
það.“
Annar kvaðst ekki trúa á ,,gjána“ en taldi það
„pínulítið bil sem minnkar með degi hverjum“, og
sá þriðji taldi þetta eingöngu vera örlitla „laut“.
Einn gerði þó nokkra grein fyrir því hvert hann
teldi þetta bil vera: „Sá gamli getur aðeins hugsað
sér breytingar innan kerfisins, en sá ungi einnig á
kerfinu sjálfu."
14. Finnst þér fullorðna fólkið þröngsýnt og gamal-
dags?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
50 45 20
Nokkur meirihluti virðist vera á þessari skoðun og
er það alls ekki neitt furðulegt. Breytingar eru örari
en nokkru sinni fyrr og alls konar frjálslyndi „veður
uppi“ ef svo má segja. Ekki vildi unga fólkið þó gefa
neitt afgerandi svar í þessum efnum, og má nefna
sem dæmi einn sem sagði: „Já, langflest, en að vísu
eru til heiðarlegar undantekningar."
Það er athyglisvert hversu margir eru óákveðnir,
og er skýringin á því sú, að þeir sögðu „sumt og sumt
ekki“. Eitt ungmenni var þó alls ekki á sömu skoðun
og meirihlutinn og fer svarið hér á eftir: „Mér finnst
við, unga fólkið, helmingi þröngsýnna en gamlingj-
arnir.“
15. Hver heldur þú að sé munurinn á jafnöldrum
þínum og æskunni fyrir 20 árum?
„Þetta atriði er ákaflega tegnt þjóðfélagsaðstæðum
og ríkjandi hugsunarhætti á hverjum tíma. Ég held að
allir unglingar, hvort sem árið er 1754, 1970 eða 2050
hljóti að einhverju leyti að rísa upp á móti ríkjandi
háttum. Það er ákaflega eðlilegt,“ sagði einn.
Skoðanir voru annars mjög skiptar og nefndi fólk
mörg dæmi — en tæpur þriðjungur hélt að munur-
inn væri enginn. Eitt svar fengum við sem okkur þótti
forvitnilegt, nú á tímum stressins: „Æskan í dag er
líklega óþvingaðri hið ytra, en hefur að sama skapi
við fleiri vandamál að etja hið innra.“
Aðrir nefndu sem dæmi að unga fólkið í dag væri
frjálslyndara og hefði meira frjálsræði (33), hefði
meiri peningaráð (21), væri þroskaðra (15), sjálf-
stæðara (15), menntaðra (13), víðsýnna (12), rót-
tækara (5), lífsleiðara (3), óöruggara (3), kröfuharð-
ara (3), frjálslyndara í ástum (2), nyti meiri mögú-
leika á flestum sviðum (2), hefði minni ábyrgð gagn-
vart þjóðfélaginu (2), væri ósjálfstæðara (2), kær-
leiksríkara (1) og ósvífnara (1).
29 héldu því fram að munurinn væri enginn, eins
og fyrr segir og 6 að allt væri háð lögmáli tímans:
Tímarnir breytast og mennirnir með. Einn vildi og
meina að munurinn væri svo margvíslegur að það
hreinlega tæki því ekki að vera að tala um það.
16. a) Finnst þér róttækar aðgerðir stúdenta víða
um heim hafa verið til einhvers góðs?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
68 38 9
b) Vissir þú alltaf hvers vegna þeir slógust?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
47 59 9
Eftirfarandi svar er dæmigert fyrir þá, sem töldu
stúdentauppreisnirnar hafa verið til góðs, án þess að
vita alltaf hvers vegna „slegizt" var:
„Já, þær voru skilyrðislaust til góðs, og hafa ekki
átt hvað minnstan þátt í að vekja þann þjóðmála-
áhuga sem nú fer sífellt vaxandi. Einnig vöktu þær
athygli á fjölmörgum agnúum þjóðfélagsins sem þag-
að var um. íslenzk fréttaþjónusta hefur ekki séð sér
nægilega skyldu til að kanna orsakir óeirðanna og
koma þeim á framfæri. Engu að síður var auðvelt að
geta sér til um hver ástæðan var og er.“
Stór hópur var þó á móti þessu og telur ekki að
neitt gott hafi af aðgerðunum leitt, og margir létu í
ljós þá skoðun, að það hlyti að hafa verið hægt að
geia þetta á einhvern annan hátt en með þessum
,,látum“ eins og einn orðaði það. Annar hélt því fram
að mótmælin hafi yfirleitt aðeins verið „mótmælanna
vegna“ og bætti við að „ofbeldi gerir aðeins illt verra,
í hvaða tilefni sem það er.“
Sjálfsagt á sagan eftir að leiða í ljós, á enn betri
hátt en nú er vitað, hvort baráttan hefur verið til
einhvers.
17. a) Trúir þú á Guð effa einhverja almáttuga
handleiðslu? JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
67 37 11
b) Trúir þú á Krist?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
54 55 6
Hér á eftir fylgja nokkur svör við þessum spurn-
ingum, sem okkur bárust:
„Ég vil ekki ennþá taka neina afstöðu. Ég trúi á
Krist sem róttækan byltingarsinna er barðist fyrir
lýðræðishugsjón."
„Ég veit það ekki. Ég trúi á hið góða.“
„Einhver æðri máttarvöld eru til. Kristur var ekki
til í þeirri mynd sem sagt er frá í Biblíunni."
„Já, því „ . . . svo elskaði Guð heiminn að hann
gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.“ Jóh. 3:16.“
„Ég trúi á Guð, föður sonar og heilags anda. Ég hef
viðhaldið barnatrúnni og lít á Krist sem sendiboða og
spámann sem lét lífið fyrir syndir okkar.“
„Allir trúa innst inni á eitthvað. . . . Kristur Jósefs-
son er vitrasti maður, sem kynstofn vor hefur getið
af sér.“
18. Sækir þú kirkju?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
26 89
Enginn þeirra sem sagðist sækja kirkju gerði það
að staðaldri, og margir tóku fram eitthvað svipað og
sá sem sagði: „Aðeins á jólum og þó ekki á hverjum
jólum. Ég þarf ekki milligöngu ríkisstarfsmanna, þ. e.
presta, til að ná sambandi við drottin. . . .“
„Nei, ekki er það, en ég hef engu að síður áhuga á
því hvernig þessar trúarathafnir fara fram.“
Það bar nokkuð á því að þeir sem tóku þátt í könn-
uninni létu í ljós megna andúð á prestum yfirleitt, er
kom að þessari spurningu og enn meira er kom að
spurningu númer 22. Fyrst skulum við þó taka spurn-
ingu númer 19.
19. Telur þú æskilegt að fólk sæki kirkju?
JÁ NEI ÓÁKVEÐIÐ
43 21 51
Fyrst þau vilja ekki fara í kirkju sjálf, þótti okkur
nauðsynlegt að komast að hvort það var nokkurt vit
í, að þeirra dómi, að vera að fara í kirkju yfirleitt og
þá fyrir fólk yfirleitt. Þeir óákveðnu sögðu að sér
20 VIKAN
26. tbl.