Vikan


Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 49
Hér sézt Ellert (nr. 5) í eitt af ótalmörgum skiptum í leiknum vinna skallacinvígi. Það cr Guðni Kjartansson (nr. 4), sem er til- búinn að grípa inn í leikinn, en þess gerðist ekki þörf. liðinu frá hinum tíðu og oft stóru töpum fyrri ára, en með þessari leikaðferð, sem liðið leikur nú eftir — og virðist í sumum til- fellum ekki valda — mun það hvorki gera mörg mörk né vinna marga sigra. Vörn íslenzka landsliðsins í leiknum stóð sig með stakri prýði, að vísu reyndi lítið á Þor- berg Atlason í markinu, en í þau skipti sem til hans kasta kom gerði hann það sem gera þurfti. Ellert Schram og Guðni Kjart- ansson stöðvuðu flest upphlaup Dana upp miðjuna; auk þess byggði Ellert upp flestar sókn- arlotur íslenzka liðsins með góð- um sendingum, og dreifði spil- inu vel. Hefur Ellert sjaldan verið betri en í þessum leik og bar hann af öðrum leikmönnum á vellinum. Báðir bakverðirnir, Einar Gunnarsson og Jóhannes Atla- son, stóðu sig einnig vel. Brotn- uðu margar sóknarlotur Dana á hörku þeirra og var Einar auk þess vel opinn fyrir því að grípa inn í til hjálpar á miðjunni — í „sína“ stöðu — í þau fáu skipti sem Ellert eða Guðni voru yfir- spilaðir. Helzt vantaði hjá bak- vörðunum að sækja meira upp kantana og taka virkari þátt í sókninni. Að vísu brá þessu fyr- ir hjá Einari Gunnarssyni, en Jóhannes sást sjaldan taka sína frægu spretti. Hann bætti hins veear vel fyrir það þegar hann tók hin löngu innköst. frá hæ-'ri hliðarlínu, sem sköpuðu oft mikla hættu við mark Dana. Tengiliðirnir. þeir Haraldur Sturlauesson. Eyleifur Hafsteins- son orr Ásgeir Elíasson, sem spil- aði meirihluta leiksins sökum hess að Elmar Geirsson meidd- ist — höfðu sannarleea ekki öf- "ndsvert hlutv-'rk í þessum leik. Þoir át.t.u að byggia upp leik ís- lenzka liðsins, en þar sem fram- línumannanna þriggja var vel gætt af varnarmönnum danska liðsins og íslenzku bakverðirnir sóttu ekki nóg fram, eins og að framan er getið, áttu þeir erfitt með að gefa frá sér góðar send- ingar. Reyndu þeir þá að leika aftur til varnarmannanna, og þá sérstaklega á Ellert, sem oft reyndi að leika sig frían fyrir tengiliðina. Hins vegar misnot- uðu þeir sér þennan möguleika mjög oft og gáfu á Ellert jafn- vel þegar hann var með tvo danska leikmenn yfir sér og komu honum þá í hin megnustu vandræði. Hefðu tengiliðirnir at- hugað það nógu snemma að leika ekki jafn þvert og þeir gerðu, heldur draga einn manninn framar eins og nokkrum sinn- um kom fyrir í seinni hálfleik, þegar Eyleifur uppgötvaði auða svæðið sem myndaðist fyrir aft- an tengiliði danska liðsins, hefði leikur þeirra orðið mun jákvæð- ari. Útherjarnir í íslenzka liðinu, Akurnesingarnir Guðjón Guð- mundsson og Matthías Hall- grímsson, léku í þessum leik báðir nokkuð undir getu. Þeir voru báðir of óduglegir að leika sig fría og þá er þeir höfðu bolt- ann var Guðjón of bráður að "cfa hann frá sér aftur og Matt- hías oft of seinn að skila hon- um til samherja. Hermann Gunnarsson undir- strikaði það vel í þessum leik að hann er okkar bezti fram- línumaður í dag. Var það oft og tíðum furðulegt hve miklu hann fékk áorkað, miðað við það að hafa tvo af sterkustu leikmönn- um Dana alltaf yfir höfði sér. Hefði hann haft annan mann með sér á miðjunni í framlín- unni hefði ekki vantað mörkin í þennan 10. landsleik íslend- inga og Dana. \ þessari mynd sjást bæði liðin auk dómarans og línuvarðanna fyrir leikinn. íslenzku leikmennirnir eru, talið frá vinstri: Ellert Schram, fyrirliði, Guðni Kjartansson, Eyleifur Hafstcinsson, Matthías Hallgrímsson, Guðjón Guðmunds- son, Haraldur Sturlaugsson, Elmar Geirsson, Einar Gunnarsson, Jóhannes Atlason, Þorbergur Atlason og Hermann Gunnarsson. Þegar myndirnar hér að neðan voru teknar í fyrri hálf- Hér kemur Þorbergur Atlason leik var útlltið ekki bjart fyrir islenzka liðið. Elmar markvörður vel inn í fyrirgjöf Geirsson liafði þurft að yfirgefa völlinn vegna meiðsla, fyrir íslenzka markið og bægir er um fimmtán mínútur voru liðnar af leik og þá gerðist aðsteðjandi hættu frá. atburðurinn sem þessar myndir sína. Eilert og danski miðframherjinn voru á hlaupum cftir boltanum, en Þor- bergur markvörður koin hlaupandi út úr markinu og greip boltann. í sömu andrá ýtti danski lcikmaðurinn ólöglega með olnboganum á bak Ellerts, sem féll við það yfir Þor- berg og lenti illa á bakinu. Dómarinn sá ekki brot þess danska og lét lcikinn halda áfram um stund. Sem bctur fer voru meiðsli Ellerts ekki það alvarleg að hann þyrfti að yfirgefa völlinn og lék hann að stakri prýði það sem eftir var leiksins og gerði þcnnan leik að sínum. LJÓSMYNDIR: EGILL SIGURÐSSON. RABBAO OM KNATTSPYRNU f UMSJÖN ÓLAFS BRYNJÖLFSSONAR í tæp þrjú ár hefur íslenzk knattspyrna liðið fyrir þann skugga sam á hana féll, er ís- lenzka landsliðið tapaði fyrir því danska í Kaupmannah. hinn 23. ágúst 1067 með fjórtán mörkum gegn tveimur. Það var því ekki að undra að beðið væri með ó- þreyju næsta leiks þessara liða. Ólu menn með sér í brjósti þá von að bæta mætti fyrir þau mistök, sem þar áttu sér stað, i landsleiknum sem fram fór á Laugardalsvellinum fyrir rúmri viku síðan. Eftir þann leik eru víst fáir í vafa um, að rétt hefur verið á málum haldið í þeim efnum ef það eitt er haft í huga að forða SÆTUR „SIGUR"?

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.