Vikan


Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 29

Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 29
sjúkrahússhliðið stóð opið. Hann dró andann djúpt og hökti út án þess að litast um. Hann komst í samband við fornvini í Berlín, og þeir hjálpuðu honum til Búdapest. En þar voru tím- arnir breyttir. Foreldrar hans voru látnir, auður þeirra farinn veg allrar veraldar, svo og hestar fjölskyldunnar, listasafn, svissneski bankareikning- urinn, borðsilfrið. Svíþjóð hafði tekið að sér að hjálpa upp á Ungverja á hrakhól- um, og með sænskt vernd- arvegabréf í vasanum og nokkra örsmáa brilljanta saumaða í frakkafóðrið yf- irgaf Elmyr Ungverjaland fyrir fullt og allt og lagði af stað áleiðis til Frakk- lands. Brilljantarnir dugðu ólíkt betur en sænski pass- inn er komast þurfti yfir markalínur landa og her- námssvæða. í september 1945 var hann aftur kom- inn til Parísar. Vinir hans voru þar enn, en annað vantaði sem meira máli skipti.' Elmyr átti enga peninga lengur. Og svo kom Lady Malcolm Camp- bell til hans eins og engill af himnum sendur. Skömmu síðar trúði El- myr góðum vini sínum, tuttugu og tveggja ára gömlum Frakka að nafni Jacques Chamberlin, fyrir allri sólarsögunni um fals- anirnar er þeir sátu yfir glasi á Café Flore. Chamb- erlin var álíka blankur og Elmyr sjálfur og var þegar með á nótunum. Faðir hans, ríkur iðnrekandi í Borde- aux, hafði verið þekktur fyrir að safna verkum im- pressjónista. Því safni hafði Obergruppenfiihrer úr SS stolið og farið með til Ber- línar, þar sem það týndist í sprengjuárásunum á þá borg. Nú kom Chamberlin fram með þá snjöllu hug- mynd að Elmyr gerði stæl- nú í ferðalag til Brussel, Amsterdam, Lundúna, Genfar, Lausanne og Zúr- ich og enduðu á Rívíerunni. Þeim gekk eins og í sögu að falsa teikningar eftir Pi- casso og selja þær. Lífið lék við þá og þeir höfðu ráð á hvaða víni sem var, jafnvel beztu árgöngunum. Vinátta þeirra fór for- görðum í eitt skipti fyrir öll dag einn er Elmyr leit inn í sýningasal einn í Lundúnum, sá þar hanga eina af sínum eigin Pi- cassomyndum og spurði um verðið. Það var svo hátt að jafnvel Elmyr, sem að eðl- isfari er kærulaus og ótor- trygginn, hlaut að sjá að Chamberlin hafði snuðað hann hroðalega. Það var í fyrsta en ekki síðasta skipt- ið sem hann uppgötvaði að hermigáfa hans var mis- brúkuð. De Hory sleit fé- laginu við Chamberlin, flaug til Stokkhólms, gerði þar fyrrnefndan sölusamn- ing við Nationalmuseum kófsveittur af taugaóstyrk, stakk á sig hagnaðinum guðsfeginn og hvarf á vit nýs lífs í Rómönsku-Ame- ríku. Fjárupphæðin sem de Hory fékk hjá National- museum opnaði honum heilan heim af nýjum möguleikum. Hann kom til Rio de Janeiro um það leyti sem ríkir túristar frá Evrópu fóru að slæðast þangað aftur eftir stríðið. Brasilíska yfirstéttin tók honum opnum örmum. — Hann málaði nokkrar and- litsmyndir, sem bæði voru vel borgaðar og giltu lika sem aðgöngumiðar að hóp- um þeim er hann hafði áhuga á. Hann hafði pen- inga og þurfti ekki að gera neinar Picasso-teikningar. Meðan hann hafði peninga forðaðist hann að hugsa um það, sem hann hafði gert og myndi gera jafn- skjótt og veskið færi að t*kafalsarínn tnikli / Modigliani eftir Elmyr ingar af verkum impres- sjónista og Chamberlin seldi þær sem leifar af . safni fjelskyldunnar. Ch- amberlin hafði nógu góð sambönd til að geta útveg- að Elmyr franskt vegabréf, en til þessa hafði hann látið sænska verndarpass- ann duga. Þeir tveir fóru þynnast. Sá möguleiki var honum eins konar líftrygg- ing, og um líftryggingar sínar hugsar maður ekki á hverjum degi. Ekki leið á löngu áður en Elmyr gerðist leiður á Rio. í ágúst 1947 flaug hann til New York, sæmi- lega búinn út með kynn- Matisse eftir Elmyr ingarbréf frá Léger og þeim áhrifamestu af nýju vinunum í Rio. Hann hafði aldrei komið til Banda- ríkjanna fyrr. Hann var forvitinn. Vegabréfsáritun- in hans var fyrir þrjá mán- uði. Hann átti fyrir hönd- um að dvelja í landinu ell- efu ár eftir að hún var út- runnin. Framhald síðar.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.