Vikan


Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 9

Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 9
r t Sumarið hófst með fyrstu alþjóðlegu listahátíðinni hér á landi, og má með sanni segja, að ekki hefur í annan tíma verið blómlegra menningarlíf hér í höfuðborginni en meðan hún stóð yfir. Hlutur tón- listarinnar var fyrirferðarmestur, en einnig setti myndlistin sinn svip á hátíðina. Einn af ótalmörg- um liðum Listahátíðar var útisýning höggmynda á Skólavörðuholti, sú fjórða í röðinni, en sýningar þessar eru nú orðinn fastur og ómissandi þáttur í borgarlífinu. Flestir munu ljúka upp einum munni um, að þessar útisýningar hafi orðið íslenzkri högg- myndalist mikil lyftistöng. Áður var skúlptúrinn venjulega sýndur ásamt málverkum og varð þá hálf- gerð hornreka, og að auki ógerningur að sýna stærri verk nema utandyra. Að þessu sinni voru sýnd 25 verk eftir 19 myndhöggvara. Fjölbreytni verkanna og nýstárleiki sumra þeirra leiddi glöggt í ljós, hversu mikil gróska er í höggmyndalistinni hér á landi um þes-sar mundir. — VIKAN birtir hér nokkr- ar svipmyndir frá útisýningunni á Skólavörðuholti. LJÓSMYNDIR: EGILL SIGURÐSSON. 111 |||g|||||| 1111111I tV- <1 { : I •: Ragnar Kjartansson, for- maður sýningarnefndar, dregur fána að hún á Skólavörðuholti og opnar þar með fjórðu útisýning- una, sem haldin er hér á landi. Ragnar var einn að- al hvatamaður þessara sýninga, sem nú eru orð- inn ómissandi liður í menningarlífi höfuðstaðar- ins, en hugmyndina mun Asmundur Sveinsson hafa átt. Verk Jóns Gunnars Árna- sonar var heiðgult að lit og hét Poitiskur realismi. Það er gert úr stáli, plasti og gleri. Oðru stóru verki eftir Jón Gunnar var kom- ið fyrir á Hagatorgi, rauðu auga, sem snerist í hring. 29. tbi. VIKAN 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.