Vikan


Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 32

Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 32
HEYRA MA Cþó íægra látO OMAR VALDIMARSSON N? PLATA MEÐ HEIMI OG JÖNASI. I næsta mánuði verður tekin upp tólf laga plata með þeim félögum Heimi Sindrasyni og Jónasi Tómas- syni, en fyrri plata þeirra náði mikl- um vinsældum, enda þægileg í alla staði. I þetta skiptið syngja þeir meira af þjóðlögum og lögum [ þeim stíl en áður, og enn sem fyrr njóta þeir aðstoðar Vilborgar Arna- dóttur, en það var hún sem m.a. söng með þeim í ,,Hótel Jörð". Olafur Haraldsson í Fálkanum sagði að nú þegar væri farið að æfa fyrir plötuna og gengi vel, en þó þýddi þetta ekki að þeir félag- ar ætluðu að fara að koma fram opinberlega á nýjan leik. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær það verð- ur sem platan kem'ur út, en það er vafalaust mörgum tilhlökkunarefni. ☆ MD ERWEGT AD IADA UFSCATMA Á gönguferS í náttúrunni með náttúrubarninu Shady Owens I minningargreinum er oft kom- ist svo að orði að það sé „sjónar- sviptir" að einum eða öðrum. Þetta á ekki að verða minningargrein um Shady Owens, en það er ekki hægt að neita því að það er sjónarsviptir að henni héðan úr íslenzka popp- lífinu, nú þegar hún er hætt og á leið til Ameríku þar sem hún ætlar að dvelja um óákveðinn tíma. Shady gekk við hjá mér á rit- stjórn blaðsins rétt áður en hún söng með Trúbrot í síðasta sinn, og við fengum okkur gönguferð sam- an. Það var óvenjuleg dagstund, því Shady er mjög óvenjuleg stúlka, og maður hrífst ósjálfrátt af næm- leika hennar, góðvild og hrein- skilni. Ef það væru til fleiri eins og hún, væri heimurinn betri. — Ég sagði upp í hljómsveitinni einfaldlega vegna þess að mig langar út til að sjá hvort mér gsng- ur eins vel þar. Já, vissulega er það ætlunin að reyna að syngja þar eitthvað og þá verð ég að fara. Ég kemst aldrei að því hér! Mestan hug hef ég á því að fara að syngja svipaða tónjist og Simon og Garfunkel eru með — hún á einhvernveginn betur við mig; hef- ur meira að segja. — Jú, ég kem til með að sakna þeirra mjög, en það kemur að því fyrr eða síðar að maður verður að breyta til, og ég held að það sé rétti tíminn til þess núna. Þetta eru mjög góðir strákar og ég hef lært mikið af þeim. Mestum áhrifum hef ég sennilega orðið fyrir frá Gunnari Þórðar, og þá Pétri Östlund. Þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að gera, þó hvor á sinn hátt, og það sama má segja um Jökulinn. — Ég hef verið mjög ánægð með þessa hljómsveit og hún hefur upp- fyllt allar þær kröfur og óskir sem ég gerði til hennar í upphafi. En við höfum aldrei náð nógu vel sam- an — það er ekki nóg að við náum saman í músíkinni, við verðum að ná saman persónulega líka. — New Yorfc-ferðin fannst mér það stórkostlegasta sem við gerð- um. Eftir það breyttist allt saman, allur okkar hugsunarháttur og l!fs- viðhorf. Þar vorum við ein heild og fundum okkur í því sem við vorum að gera. Það var líka þar sem við kynntumst því fyrst að tónlistin í dag er orðin raunveru- leg. Fólk er farið að hlusta á okk- ur og er farið að taka tillit til ann- arra, um leið og það tekur hlut- ina eins og þeir koma fyrir. — Unga fólkið í dag sigrar að lokum — það er að segja hugsjón- ir þess og vonir. Tökum til dæmis Woodstock-hátíðina sem haldin var í New York í fyrra. Hún er strax orðin nokkurskonar þjóðsaga; nærri því hálf milljón ungs fólks sem var þar saman og hélst nærri því í hendur allan tímann. Ég held ao Woodstock verði minnst sem eins merkilegasta atburðar veraldarsög- unnar. Við ætluðum að vera þar, þegar við vorum í New York í fyrra, en þá vorum við búin að ráða okkur til að skemmta hér um þyþ-:-*;; RÍÖ í EVRÖPU. Hið geysivinsæla Ríó-tríó er um þessar mundir á ferðalagi um Evrópu, nánar tiltekið Svíþjóð, Dan- mörku, Þýzkaland, Austurríki og Ungverjaland, í fylgd félaga úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, sem eru á nokkurskonar sýningarferða- lagi. Kemur tríóið fram með döns- urum á sýningum og skemmtunum og hefur að auki sitt eigið prógram, sem aðallega samanstendur af ís- lenzkum þjóðlögum. Hófst ferðin hinn 23. júní, síð- astliðinn, og mun að öllum líkind- um standa til 23. þessa mánaðar, en þá taka þeir til við að æfa fyrir LP-plötu sem tekin verður upp í Háskólabíói seinni hluta ágústmán- aðar, að viðstöddum 1000 manns. — Nýútkomin plata þeirra, „Við vilj- um lifa" hefur hlotið hinar ágæt- ustu viðtökur, enda létt og skemmti- leg. Myndin var tekin af þeim fél- ögum á Akureyri í vetur sem leið. ☆ 32 VIKAN í9- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.