Vikan


Vikan - 10.09.1970, Page 11

Vikan - 10.09.1970, Page 11
Húsið stendur uppi i Beverley Hills, þar sem flest fræga fólkið í Hollywood býr. Það er rautt á litinn, með stórri, bjartri dagstofu og geysistórri verönd. En svefnherbergin eru aðeins tvö, svo í fljótu bragði virðist svo sem húsaleigan sc nokkuð liá, miðað við herbergjafjölda, hálf önnur milljón krónur á ári. En i þessu er auðvitað innifalið yndislegt út- sýni og algert næði. Og svo er að sjálfsögðu sundlaug. Þarna var Sliaron Tate síðdegis 8. ágúst í fyrra, heitan og rakan föstudag. Hún lá og sólaði sig við sundlaugarbarm- inn, eða flaut á stórum plasthring, sem hún liafði keypt. Hún var með barni á áttunda mánuði. Hún hafði lient gaman að hinum stóra maga sínum fyrr í vikunni: — Þú ættir að sjá þessa geysilegu kúlu, hún er jafnbrún og hinir hlutar lík- amans. Það verður gaman að sjá hvort barnið verður sól- lirúnt! Föstudagurinn 8. ágúst. Það var siðasti dagurinn sem Sliar- on Tate fékk að sóla sig og láta sig dreyma um ófædda barnið. Það var síðasta sinn sem gestir voru á heimili hennar. Nú biða morðingjar hennar og gesta hennar dóms. Þeir geta ekki látið sig dreyma um annað en gasklefa. Sharon Maria Tate fæddist 24. janúar 1943 og ólst up]) sem „hermannsbarn“, faðir hennar var liðsforingi. Hún vann fyrstu fegurðarkeppni sina, þegar hún var sex mánaða, vann nokkrum sinnum í fegurðarkeppni, þegar liún var sextán ára, var kjörin fegurðardrottning skólans 17 ára, og 18 ára gömul lagði hún af stað til Hollywood. Það var mjög sak- laus pabbastúlka, sem fór til Hollywood, þvi að faðir henn- ar liafði á henni nánar gætur, passaði að hún kæmi heim á réttum tíma á kvöldin og að piltarnir gerðust ekki of nær- göngulir við hana. Hún var heppin, í og með vegna þess að hún hitti Martin Ransohoff, sköllóltan, feitan kvikmyndaframleiðanda. Hann sagði vinum sínum hvers vegna hann liefði ráðið Sharon Tate: — Vegna þess að mig hefur lengi langað til að liitta svona fallega stúlku, sem er algerlega óþekkt, og gera hana að stjörnu, sem allir eru hrifnir af. .. . Fyrsta kvikmyndin sem liún lék i Iijá Ransohoff, hét ein- faldlega „13“, og fjallaði um svarlagaldur og ti’úarmorð. Þessi kvikmynd var eiginlega alveg fallin í gleymsku, þang- að til í fyrra að hún var myrt og morðið minnti á trúar- morð, átta árum siðar. 1 næstu mynd lék hún á móti Tony Curtis, og það var ekki svo lítill frami. Þriðju kvikmynd- inni, sem hún lék í, stjórnaði 33 ára gamall pólskur flótta- maður, sem heitir Roman Polanski, og var búinn að vinna sér alþjóðafrægð fyrir starf sitt, áður en hann flúði frá heimalandi sínu. Hann er Gyðingur. Móðir hans liafði látið lífið í hinum alræmdu fangabúðum í Auschwilz, og sjálfur var liann stöðugt á flótta þangað til í striðslok. Óttatilfinn- ingin frá æskuárunum gerði hann næman fyrir hrollvekj- andi atburðum. Kvikmyndin, sem Sliaron Tate lék í, var tekin í London og fjallaði um blóðsugur. Kynni liennar af Roman Polanski gerbreyttu hfi hennar. Fyrsta kvöldið sem þau hittust, bauð liann henni heim i íbúð sína, slökkti ljósið, kveikti á einu kerti og hvarf á brott um stund, en kom svo og fleygði sig yfir liana með ógurlegu I»essi mynd af Sharon Tate vai tekin í London, og var hún þá komin fimm | mánuði á leið. 37. tbi. VIKlAN 11

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.