Vikan


Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 24

Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 24
ÖNNUR GREIN UM LÍF OG STARF TANCREDS IBSENS Tancred Ibsen freistaSi gæfunnar í Banda- ríkjunum, varS aS hætta viS töku kvikmyndar um Leif heppna vegna andróSurs kaþólikka og sneri aS lokum baki viS Hollywood. SíSan varS hann einn helzti frumkvöSull kvikmyndagerSar heima í Noregi. 4 Tancred Ibsen og frændi hans, Björn Björnson, á flughátíöinni í Kaupmannahöfn. Á leiðinni til Bandaríkjanna heyrðu þau Tancred og Lillebil í fyrsta sinn í útvarpi. Það var útsending frá leik hljómsveitar Pauls Whitemans í New York. Og þegar þau komu þangað, tóku fréttamenn frá útvarpi viðtal við þau. En útvarpið var aðeins eitt af mörgum tækniundrum, sem komu ímyndunarafli fólks á hreyfingu á þriðja tug aldarinn- ar. Enn meiri ævintýraljómi lék um kvikmyndina, sem sigraði heiminn á tíu árum. Meðan Lillebil var á leiksvið- inu, fór Tancred Ibsen í bíó. Hann hreifst svo af kvikmynd- unum og möguleikunum er hann 4 Tancred og Lillebil ásamt móður hennar, Gydu Christensen, áður en þau lögðu af stað til Ameríku. sá í þeim, að hann lét skrá sig á námskeið í kvikmyndatækni. Ungu hjónin fengu íbúð í Sex- tugustu og sjöundu götu, rétt hjá Central Park. í annarri íbúð í sama húsi bjó kona Rudolphs Valentinos, og þegar Valentino kom til New York litu þau hjón oft inn til Ibsensfólksins. Film- hetja þessi sem naut sannkall- aðrar guðsdýrkunar var ósköp yfirlætislaus hversdags. Hann kenndi Lillebil að búa til „spag- hetti al sugo“ og var í staðinn boðið að skandinavísku smur- brauðsborði. Tancred Ibsen fer að kvikmynda Margir vina Ibsens um þetta leyti voru beint eða óbeint í tengslum við kvikmyndagerð. Meðal þeirra var Kendal mála- færslumaður, sem átti Capitol Theatre, stærsta kvikmyndahús í New York. Ibsenhjónin hittu líka fólk á borð við sérvitring- inn George Eastman, manninn á bak við Kodak. Hann var þá þeg- ar farinn að gera tilraunir með

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.