Vikan


Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 31

Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 31
aldrei ætlun mín að hafa slæm áhrif á einn eða neinn. — Já, þetta með „plastikpíurnar" var heilmikill misskilningur. Stelp- urnar tóku þetta sem einhverja sneið til sín, en það sem ég átti við í þessu viðtali við VIKUNA var þessi pía sem við mættum. Ég sakna þess að hafa ekki spilað í Tónabæ lengi, en það hefur bara ekkert verið að ske þar í sumar. Við höfum mest verið útá landi í sumar, en förum að færa okkur ( bæinn þegar haustar. — Ég er hrifinn af öllu kvenfólki, nema þessum „rauðsokkum". Það er hlutur sem mér lízt ekkert á. Þær ætla sér bara að breyta öllu því sem hefur verið að þróast í gegnum ald- irnar. Það á ekkert að vera að breyta „damerne först". Mér er líka sem ég sæi þessar maddömur fara út á tog- arana — eða I malbikunina! Kven- fólk er ekkert í það, enda vilja þær vera veikari aðilinn. — Þegar við stofnuðum þessa hljómsveit, átti þetta bara að vera tómstundagrín,- við ætluðum að spila einu sinni í viku eða svo, og þá bara til að skemmta fólki. Nú, svo jókst þetta alltaf smátt og smátt, og eftir að við unnum þessa popphátíð í fyrra, varð alveg vitlaust að gera hjá okkur. Þá fórum við líka að gera meiri kröfur til okkar sjálfra, og við fcrum að flytja efni sem krafðist meira af okkur en áður. — Til að byrja með vorum við eiginlega eingöngu í Tónabæ og fyrir þann aldursflokk, og svo þegar við fórum að spila fyrir eldra fólk, þá var fyrirfram búið að dæma okk- Á popphátíðinni miklu i Laugardals- höllinni fyrir ári síðan, þegar Ævin- týri varð „Popphljómsveit ársins 1969“ og Björgvin „Poppstjarna ársins 1669“. Nú syngjum við fjórir í hljómsveit- inni; Siggi trommuleikari er farinn að syngja bassaraddir. — Annars lenti ég í alveg ofsa- lega undarlegu ástandi um daginn. Ég held að það hafi verið Guð eða eitthvað . . . Við vorum að spila í Borgarnesi, eða ætluðum að spila þar, en veðrið var svo gott að við hættum við ballið og fórum út í kvöldsólina með kassagítar og fórum að syngja þarna rétt fyrir utan samkomuhúsið. Já, bara gamla slagara og þessháttar. Áður en við vissum af var fólk komið allsstaðar út í glugga og sumt HEYRA MÁ Cpó íægra látO ÖMAR VALDIMARSSON ur vonlausa bítastráka sem ekkert kynnu. Hluti af þessu fólki sem sæk- ir vínveitingastaðina hér í bænum og víðar, þykist hafa svo óskaplega mikið vit á músík; prógressív, pró- gressív, prógressív! Stór hópur af þessu fólki hefur ekki hugmynd um hvað það er að tala, og þegar það er búið að drekka nokkur glös þá syngur það „kúlutyggjómúsíkina" hærra en nokkur annar. En til að sýna og sanna þessu fólki og öðru, þá höfum við þurft að æfa, svo nú vinnum við í rauninni sem atvinnu- menn, þó við séum að vinna með þessu. — Nú erum við farnir að gera svolítið af því að vera með meiri sönglög, og höfum tekið lög bæði frá Crosby, Stills, Nash & Young og Simon & Garfunkel. Þetta er eitthvað svo mannleg tónlist, og maður hefur óskaplega gaman af að syngja þetta. spratt upp í kringum okkur — og allt söng með og ruggaði sér. Ég man sérstaklega eftir gamalli konu sem stóð neðar í götunni; hún brosti og ruggaði sér í takt við músíkina og tók meira að segja nokkur dans- spor. Þarna var ekkert af þessu leið- inlega sem fylgir böllum, brennivín og tóbaksstybba, heldur hreint, ís- lenzkt fjallaloft og allir elskuðu alla. Mér fannst þetta svo stórkostlegt að sjá alla brosa svona í einskærri lífs- hamingju, að mér fannst þetta endi- lega vera. Guð. Það er alveg stór- kostlegt þegar maður kemst svona í snertingu við fólkið og náttúruna í kringum sig . . . . ^Hljómplötu gagnrýni PQP-FESTIUAL '70 Loksins er hún komin, Festival-platan langþráða, sem fyrst var farið að tala um fyrir ári síðan. Það hefur gengið á ýmsu í sambandi við þá plötu: Að minnsa kosti þrír aðilar (Náttúra, Ævintýri og Rúnar Gunnarsson) hættu við, einhverra hluta vegna, en aðrir — í tveim tilvikum náskyldir — komu í staðinn. Allt frá því að fyrst var farið að tala um þessa plötu, ætlaði maður að þarna myndu hinar ýmsu hljómsveitir og söngvarar reyna að gera skemmti- leg hluti, sem væru dæmigerðir fyrir þá og þeirra tónlistarsmekk/stefnu. Á plötunni eru það aðeins Blues Company, Júdas og Heiðursmenn, sem gera það, hinir eru með útlendar tuggur, sem margar hverjar hafa verið vinsælar hér áður, og undirleikur er brezkur í helmingi laganna. íslenzk „popp-festival" plata hefði átt að hafa að geyma íslenzk lög flutt af ís- lenzkum listamönnum eingöngu. Manni er næst að álykta að þessir hljóð- færaleikarar okkar hafi nú í eitt skipti fyrir öll sannað þá kenningu, sem þeir hafa sjálfir barizt við að afsanna, að þeir séu fyrst og fremst ( „bransanum" til að apa eftir öðrum. Þetta er fyrsta LP-plata Tónaútgáfunnar og eiga forráðamenn heiður og þökk skilið fyrir að hafa lagt þetta erfiði á sig, þv[ það er með góðu móti hægt að fallast á það sem Jón Ármannsson skrifar á innsíðu umslags: „Með útgáfu þessarar hljómplötu er brotið blað í hljómplötuútgáfu hérlendis . . ." En á plötunni er ekkert að „ske", eins og það er kallað, ( þeirri meiningu að þar komi fram nýir og skemmtilegir hlutir. Lögin eru öll þokkaleg og flutningur sömuleiðis, í heildina, en mjög fáir hafa lagt sig fram við það sem þeir voru að gera. Það er Björgvin Halidórsson, sölumet Tónaútgáfunnar sem fyrsta lagið syngur (á A-hlið), og er það vel til fallið. En „Komdu í kvöld, ástin m!n", er ekki nægilega gott lag fyrir hann og hann gerir því ekki góð skil. Undirleikurinn liggur of lágt, svo á köflum dettur röddin niður í ekki neitt. Þá vandar Björgvin sig heldur ekki nándar nóg og í heild er þetta heldur slappt allt saman. Með honum syngja þeir Arnar Sigurbjörnsson og Birgir Hrafnsson og er lítið annað um þá að segja. Texti við þetta lag, sem er erlent að uppruna og með erlendu undirspili, er eftir Birgi Marinós- Framhald á bls. 39 37. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.