Vikan


Vikan - 10.09.1970, Page 33

Vikan - 10.09.1970, Page 33
komnir fyrir hornið greip hann fast í öxl Tinos. — Þú vogar þér ekki að opna munninn, nema ég leyfi þér það. Skilurðu það? — Já, herra, svaraði Tino og skildi ekki neitt. En hann var orðinn sjö ára, svo hann vildi vita eitthvað hvað var að ske. — En hversvegna, herra? — Vegna þess að ég skipa þér það. Eða viltu að ég sendi þig til Carlo frænda? — Nei, ég vil fara heim til pabba. — Jæja! Þá höldum við áfram. — Förum við til pabba? — Já. Þetta veitti Tino meira þrek, svo hann herti gönguna. — Carlo frændi er vondur, sagði hann. — Hann laug að þér. Hann er ekki frændi þinn. Hann er glæpamaður. Morðingi. — Og þú bjargaðir mér! Þú ert góður. Ég skal segja pabba að þú hafir bjargað mér. Bjargar þú oft börnum? — Á hverjum degi! En nú er nótt og öll börn eru í fasta svefni. — Og ert þú afskaplega ríkur? spurði Tino. — Ríkur? Hversvegna heldurðu það? — Jú, þau sögðu að þau ætluðu að fá fimmtíu milljón lírur hjá þér. Ég á hundrað lírur í sparibauknum mínum. Þinn sparibauk- ur hlýtur að vera stór eins og hús, ef þú átt svona mikið af peningum. — Ég verð að koma honum heim, heilu og höldnu, hugsaði Enrico. — Það hlýtur að verða talið mér til góðs, ef þeir ná í mig. Það verður ekki hægt að saka mig um flóttann, það var gert eftir skipun. — Hversvegna batt hann mig, — þessi Carlo? spurði Tino. — Glæpamenn eru þannig. „Bogota“ var næturklúbburinn kallaður, en það var nú svo og svo, með næturlífið inn- an þeirra veggja. Hann var í tveggja hæða húsi í einum af úthverfum Florenz. f salnum var dansgólf og lítill pallur fyrir hljómsveit. Barinn tók mikið pláss. f sófunum kringum dansgólfið sátu liðlegar stúlkur, sem ekki voru á móti því að fá góða viðskiptavini. Samkomulag náðist venjulega niðri, en nán- ari kynni voru í herbergjunum á efri hæð. Enrico smeygði sér liðlega inn um dyrnar. Maðurinn í fatageymslunni hallaði sér fram, forviða á svipinn. — Þetta er þó aldrei... Mama mia, þetta er Enrico Rocca. — Sæll, Sandro! Enrico hnippti kumpán- lega í hann. — Er Pia inni? — Já, það held ég. En hvaðan kemur þú? Hefirðu verið náðaður? — Eitthvað í þá áttina. Passaðu þennan dreng fyrir mig stundarkorn. Hann gekk inn fyrir þung tjöldin. Hávaði og hlátrasköll mætti honum. Því skyldi fólk ekki skemmta sér, hugsaði hann. Hann gekk að barnum, bað um drykk og hvolfdi í sig úr glasinu. Barþjónninn var nýr í starfinu og þekkti hann ekki. Hann bað um annan til, hvolfdi honum í sig líka og borg- aði með peningunum frá Silva. Síðan gekk hann að dyrum, sem voru merktar „Privato“, stökk upp stigann, sem lá upp að annarri hæð, tók tvö þrep í skrefi og flýtti sér inn ganginn. Þarna var herbergi Piu. Hann heyrði hlát- ur fyrir innan dyrnar og hrinti þeim upp. Svo stóð hann grafkyrr fyrir innan dyrnar. Það var þungt loft í herberginu, bæði af ilm- vatns- og áfengislykt. Pia sat í sófanum, við hliðina á ungum manni. Hann var frekar ræfilslegur í krumpuðum fötum. Svarti kjóll- Framhald á bls. 43 Hann sá ekki lögregluþjóninn nógu snemma til að smeygja sér inn í húsasund. farinn að hrasa aftur og aftur, fæturnir báru hann ekki lengur. Það var fyrst, þegar dreng- urinn sleppti þumalfingri hans og datt, að hann mundi eftir honum. Han nlyfti honum upp, nokkuð hranalega, slengdi honum yfir öxl sér, eins og hann væri poki og hraðaði sér áfram. Hann sá ekki lög- regluþjóninn nógu snemma, til að ná því að smeygja sér inn í húsasund, svo hann nam staðar og hjartað barðist í brjósti hans. — Hvað eruð þér að gera með drenginn? Hvert eruð þér að fara með hann? — Hvað? Voruð þér að segja eitthvað? Hann var þurr í munninum og það var með naumindum að hann gat komið upp nokkru orði. — Já, hvað er að drengnum? Er hann veik- ur? Er þetta sonur yðar? Enrico hló og lét drenginn renna niður á fæturna, en hélt honum fast að sér. — Nei, hann er ekki veikur. Við vorum á ferð og það er orðið framorðið. Hann er þreyttur og þarf að komast í rúmið. Lögreglustj órinn brosti og klappaði Tino á kinnina. — Góða nótt, báðir tveir. — Pabbi minn er fangelsisstjóri, sagði Tino. — Jæja, sagði lögregluþjónninn, rétti úr sér og sagði: — Góða nótt, herra! — Góða nótt! sagði Enrico. Hann dró Tino með sér og gnísti tönnum. Þegar þeir voru 37. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.