Vikan


Vikan - 10.09.1970, Page 48

Vikan - 10.09.1970, Page 48
HÉh Þessi mynd er af þeim atburði sem Ferenc Puskas segir að alltaf komi til með að vera sér einna hjartfólgnastur. Er hann og Lev Yashin báru Sir Stanley Matthews af leikvelli eftir kveðjuleik þess síðastnefnda. Snír Puskas aftur tieim til llunverialauds? Öðru hverju ganga sögusagnir um það að hinn frægi knattspyrnumaður Ferenc Puskas hyggist flytja aftur heim til Ungverjalands eftir fjórtán ára búsetu í Suður-Evrópu, fyrst á Italíu og síðan á Spáni, en hann flúði land f uppreisninni árið 1956. Þá fylgir það yfirleitt þessum sögu- sögnum að hann eigi að taka við embætti yfirmanns allra íþróttamála Ungverjalands. Er Puskas var spurður að sann- leiksgildi þessara sögusagna fyrir skömmu, vísaði hann þeim algerlega á bug og fullyrti að það hefði al- drei á þessum fjórtán árum hvarfl- að að sér að flytja aftur til Ungverja- lands. Og sú getgáta að Puskas hyggist snúa heim vegna þess að hann þrái að hitta ættingja sína er einnig al- gerlega tilhæfulaus. Hann er í mjög nánu sambandi við móður sfna og systur sína og hennar fjölskyldu, sem enn búa í Ungverjalandi. Og fyrir skömmu gerðu þær sér ferð til Madrid til að heimsækja hann. Eitt er það atriði f sögu þessa fræga knattspyrnumanns sem menn hafa lengi velt vöngum yfir. „Er hann markhæsti maður í heimi?" Það fer ekki á milli mála að almennt eru hin rúmlega 1000 mörk hins stórkostlega Pele álitin metið. En hvar er Puskas í röðinni? Ymsar áreiðanlegar staðreyndir benda til þess að Puskas hafi gert fleiri mörk en Pele. Puskas hélt sjálf- ur aldrei neina skrá yfir afrek sín, og er ekki það stórlátur að hann vilji vera að mikla sig yfir þeim, en að- spurður „heldur" hann að hann hafi gert fleiri mörk en Pele á sínum stór- brotna knattspyrnumannsferli. Til eru nákvæmar skrár yfir mörk hans síðan hann yfirgaf Ungverja- land, en áreiðanlegar skýrslur vant- ar yfir veru hans með Honved. Þær skýrslur sem til eru sína, að hann hefur gert 25 mörk í ýmsum vináttu- og góðgerðarleikjum, eftir að hann hætti að leika með Real Madrid, en með því gerði hann 324 mörk, 31 mark í ýmsum úrvalsleikj- um á Spáni, m.a. landsleikjum, 90 mörk með ungverska landsliðinu og 54 mörk með Honved keppnistíma- bilið 1945-46. Hinsvegar eru engar áreiðanlegar skýrslur }il yfir keppnistímabilin 1943—45 og 1946—56, en á þess- um árum var Puskas sá framlínumað- ur í Ungverjalandi sem vakti hvað mestar hrellingar er hann nálgaðist mark andstæðinganna. Ýmsir knattspyrnuáhugamenn á Spáni, sem safnað hafa tölum yfir mörk Puskas, segja að hann hafi gert 1 176 mörk og sverja þeir að þessar tölur séu réttar. Ferenc Puskas er fæddur 2. apríl 1927 og á sínum uppvaxtarárum lærði hann hin ýmsu undirstöðuatriði . knattspyrnunnar af föður sínum, sem var á yngri árum mjög efnilegur miðvörður. A sínum langa keppnis- ferli lék Puskas aðeins með tveim félögum, Honved og Real Madrid. Aðspurður kveðst Puskas hafa gerst leikmaður Honved 1943, þá 16 ára gamall. Félagið hafði áður heitið Kispest, eftir útborg Budapest. Er stríðið braust út 1939 bannaði ríkis- stjórnin allan einkarekstur og tók þá herinn við stjórn félagsins og var þá nafni þess breytt í Honved. Árið 1945 varð Puskas í fyrsta skipti markahæsti maður Ungverja- lands, gerði hann alls 54 mörk í 22 leikjum. Næstu 1 1 árin var hann alltaf markahæsti maður landsins, eða allt til ársins 1956 og er þetta afrek hans trúlega einsdæmi í knatt- spyrnusögunni. Sinn fyrsta landsleik lék hann árið 1945 gegn Austurríki og var þá strax á skotskónum og gerði hann sigurmarkið í leiknum fyrir Ungverja. Var hann síðan val- inn í næstu 84 landsleiki og tókst alls að gera 90 mörk í landsleikjum. Þetta var gullaldartímabil í sögu ungverskrar knattspyrnu og átti Pus- kas ekki hvað sístan þátt í því, en öllum á óvart tapaði landsliðið úr- slitaleik heimsmeistarakeppninnar 1954 fyrir V-Þjóðverjum, en vann hinsvegar marga ótrúlega sigra, eins og á enska landsliðinu, 6—3 í Eng- landi og 7----1 í Búdapest. Tveim árum síðar kaus hann að búa ( útlegð og hvarf algerlega af sjónarsviðinu. Hans var leitað að skipan ungverskra valdamanna. En á sama tíma leituðu af honum aðr- ir aðilar og það í mun friðsam- legri hugleiðingum. Þeir leituðu um alla Evrópu að lágvöxnum náunga sem talinn var með beztu knatt- spyrnumönnum heims. Og loks fundu þeir hann á Ítalíu. Puskas lýsir þessum atburði þann- ig: „Kvöld nokkurt snemma árs árið 1958 hringdi sími minn. Ég var 48 VIKAN tw.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.