Vikan - 10.09.1970, Side 49
fremur tregur til að anza, en gerði
það loks og var mjög undrandi að
heyra að það var Emil Osterreicher,
sem hringdi. Kvaðst hann vera að
leita mín ásamt Ramon Saporte (fjár-
hagslegum framkvæmdastjóra Real
Madrid) að skipan D. Santiago Berne-
deu (stjórnarformanni Real Madrid)
og var erindi þeirra við mig að fá
mig til að leika með Real Madrid.
Imyndið ykkur! Allt þetta var ákveð-
ið með aðeins tveggja mínútna sím-
tali."
Þannig gerðist það að Puskas sem
þá hafði farið huldu höfði á annað
ár gerði samning við félagið sem
var bezta félagslið Evrópu um tíu
ára skeið (1955—65). Þarna kvnntist
Puskas fjórum öðrum stjörnuleik-
mönnum, þeim Kopa, Rial, Di Stef-
ano og Gento og síðar áttu þeir eftir
að mynda beztu framlínu sem
nokkru sinni hefur leikið saman.
Puskas gerði strax í öðrum leik
sínum með Real Madrid þrjú mörk
(gegn Gijón), en alls lék hann 372
leiki með Real Madrid og qerði í
þeim 324 mörk og vann öll eftir-
sóttustu verðlaun sem knattspyrnu-
maður getur unnið, nema gullverð-
laun heimsmeistarakeppninnar
A sínum langa keppnisferli hlaut
hann aðeins einu sinni alvarleg
meiðsli. Það var í leik gegn Real
Mallorca árið 1961. Markvörður Real
Mallorca kastaði sér á fætur hans í
sama mund og tveir varnarmenn
liðsins klemmdu hann illilega á milli
sín með þeim afleiðingum að þrjú
rifbein brotnuðu og kostaði þessi
árekstur það að hann gat ekki leikið
það sem eftir var keppnistímabilsins.
Það þyrfti víst margar síður til að
telja upp öll afrek hans. En sjálfur
segir hann að mesta virðing, sem
honum hafi hlotnast og sem alltaf
muni vera honum hjartfólgnust, sé
sú er hann og Yashin hinn rússneski
báru Sir Stanley Matthews á herðum
sér af leikvelli kveðjuleiks Sir Stan-
leys, hins frábæra útherja Black-
pool, Stoke City og enska landsliðs-
ins, sem þá var rúmlega fimmtugur
að aldri.
☆
Eini karlmaðurinn í hópi kvennaiiðsins frá Miinchen er Petcr Lorenz
þjálfari. Hér er hann að leggja frúnum síðustu ráðin.
-^- Þessi mynd er frá fyrsta knattspyrnuleik kvenna á íslandi. Það eru reyk-
vísku stúlkurnar sem eru í sókn, en þær keflvísku hafa myndað varnarvegg
að hætti kunnáttumanna.
Knattspyrnuekinera uporeisn
„Þegar ég kem þjótandi, þá spark-
ar þú boltanum til hægri með hægri
fæti, en varaðu þig, ég hlífi þér
ekki!"
Þetta sagði Georg Bschorr, vinstri
bakvörður, við konu sína, þegar þau
voru háttuð kvöldið fyrir kappleik-
inn. Hann langaði greinilega til að
hjálpa henni. Frúin var hin róleg-
asta. „Hafðu engar áhyggjur, vinur
minn, ég er í toppþjálfun".
Það kom á daginn, hún þurfti
engu að kvíða, frúrnar unnu leikinn
með 2:1.
Þetta er örlítið brot úr lýsingu
v-þýzks vikublaðs frá knattspyrnu-
leik er fram fór í Munchen, en eins
og áður var sagt vann „veikara"
kynið hann með tveim mörkum gegn
einu.
Það færist nú mjög í vöxt að
kvenfólk taki að iðka knattspyrnu
og fór meðal annars fyrsti leik-
ur af slíku tagi fram hér fyrir
skömmu og vöktu tilburðir stúlkn-
anna talsverða athygli og hrifningu
áhorfenda, en í leik þessum mættust
lið stúlkna úr Keflavík og Revkiavík
og vann síðarnefnda liðið leikinn
verðskuldað með einu marki gegn
engu.
Þá er og nýlokið fyrstu heims-
meistarakeppni í knattspyrnu kvenna
sem fram fór á Italíu og vann danska
landsliðið keppnina. Unnu dönsku
stúlkurnar v-þýzka landsliðið 6—1 í
fyrsta leik keppninnar, í næsta leik,
sem var undanúrslitaleikur unnu þær
enska landsliðið með 2—0 og ( úr-
slitaleik keppninnar sigruðu þær
ítölsku stúlkurnar með 2—0
Mikil sorg ríkti á Italíu eftir þenn-
an ósigur heimamanna, en þetta var
annar úrslitaleikurinn í knattspyrnu
sem ítalskt landslið tapaði á fáeinum
dögum.
Dönsku stúlkurnar eru allar úr
sama félaginu, en það nefnist Fem-
ina og eru einmitt um þessar mundir
10 ár síðan félagið var stofnað.
Eftir sigurinn í keppninni fengu
stúlkurnar boð hvaðanæva að um
að koma og sýna listir sínar og er
álitið að þær muni þiggja boð um að
ferðast um Bandaríkin og Brasilíu.
Til gamans má geta þess að vinstri
bakvörðurinn í danska liðinu, hin 19
ára gamla Joan Annet Thomsen er
aðeins 45 kg að þyngd og 1.50 m
há, og er hún trúlega bæði léttasta
og lágvaxnasta manneskja sem
nokkru sinni hefur unnið til gull-
verðlauna í heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu.
Fyrstu hcimsmeistarar i knattspyrnu kvenna. Hér sjást dönsku stúlkurnar
fagna sigri yfir þcim ítölsku og hampa þær bikarnum sem fyigdi vegsemdinni.
37. tbi. VIK'AN 49