Vikan


Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 6

Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 6
Kr. 1440.00 Hátíðaplatti '70 Kr. 817.00 Jólaplatti '70 Kr. 536.00 Mæðradagsplatti ,70 Bing «fl (röiHlÉI postilins- vönr Kaffistell Matarstell Vasar Styttur Veggplattar Rammiigerðin Hafnarstræti 17 ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. 6 VIK'AN 6i. tbi. Burt með klámið Kæri Póstur! Mér líkar yfirleitt vel við Vik- una og kaupi hana alltaf. En í þetta sinn verð ég að láta í ljós óánægju mína, vegna efnis, sem blaðið birti fyrir nokkru. Það átti víst að vera hin svokallaða „kynfræðsla“ eins og farið er að nefna’ klámið nú til dags. Ég get varla lýst vonbrigðum mínum yfir því, að Vikan skyldi þurfa að fara að birta efni af þessu tagi. Það er engin afsökun fyrir blaðið, þótt klám vaði nú uppi bæði erlendis og hér á landi undir yfirskini „fræðslu". Vikan er heimilisblað, sem allir í fjöl- skyldunni lesa, ekki sízt börn og unglingar. Eg var svo heppin að fá fyrst þetta eintak af Vikunni í hendur. Þegar ég hafði lesið umræddan bókarkafla eftir þennan danska lækni, þá reif ég óðara síðurnar úr blaðinu til þess að krakkarnir mínir kæm- ust ekki í þetta. Fyrst þið birtið svona efni, þá er auðséð, að þið hafið ekki hugmynd um, hvílík áhrif svona óþverri getur haft á börn og unglinga. Kannski bíða þau þess aldrei bætur. Jæja, ég ætla ekki að hella meira úr skálum reiði minnar að þessu sinni, en ég vil eindreg- ið skora á Vikuna að birta ALDREI neitt efni, sem talizt getur ósiðlegt. Látið ekki glepj- ast af því stundarfyrirbæri sem þessi klámtízka hlýtur að vera. Hugsið um börnin og hugsið um þá ábyrgð sem hvílir á ykkur gagnvart þeim. Börnin kynnast grimmd og ljótleika lífsins nógu snemma. Reynið að birta efni, sem er jákvætt og skemmtilegt og umfram. allt uppbyggilegt. Að svo mæltu þakka ég Vik- unni margar ánægjustundir á liðnum árum og vona, að hún taki til greina þessa góðfúslegu ábendingu mína. Ég er ábyggi- lega ekki eini lesandinn, sem er hneykslaður á umræddri grein. Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. S.G. Nei, það er hverju orði sann- ara, „S.G.“ er víst ekki eini les- andinn, sem hefur hneykslazt á umræddri grein. Nokkrir hafa hringt og látið okkur fá orð í eyra. Við fáum ekki séð, að kafl- inn úr bók dr. Olufs Poulsens h'afi á neinn hátt verið klám- fenginn. Hér er aðeins verið að skýra frá vandamáli á sviði kyn- ferðislífs og meira að segja frá sjónarhóli viðurkennds læknis. En hvað um það. íslendingar virðast mjög viðkvæmir gagn- vart tali um kynferðismál og sérstaklega áhyggjufullir vegna barna sinna. Hér skal enginn dómur á það lagður, hvor hóp- urinn hefur rétt fyrir sér: þeir sem eru hlynntir kynfræðslu á borð við myndina í Hafnarbíói, eða hinir, sem telja alla þessa „fræðslu" hættulegt klám. Alltaf í sama kjólnum Kæri Póstur! Mig langar til að leggja fyrir þig vandamál, sem er svosem ekki stórvægilegt, en veldur mér þó miklum heilabrotum og áhyggjum. Þannig er mál með vexti, að ég á vinkonu, sem ég er mikið með. Við förum alltaf saman út að skemmta okkur. Við höfum líkan smekk, lík áhugamál og rífumst aldrei. Eini munurinn á okkur er sá, að hún er af flugríku fólki, en það er ég hins vegar því miður ekki. Vinkona mín á mjög marga fal- lega kjóla, miklu fleiri, dýrari og fallegri föt en ég. Hins vegar er það svo, að þegar við förum saman út, þá er hún alltaf í sama kjólnum og það meira að segja kjól, sem er lang simplasti og Ijótasti kjóllinn hennar. Hann fer henni alls ekki vel. Ég skil þetta ekki og hef hugs- að fram og aftur hvað hún eig- inlega meini. Er henni alveg sama hvernig hún er klædd. Ætti ég að segja henni fínlega frá því, að hún ætti nú ekki að vera alltaf í sama kjólnum, þegar hún á fullan fataskáp af fínum fötum heima hjá sér? Eða er hún kannski að gera þetta mín vegna? Er hún að koma í veg fyrir, að hún sé miklu betur klædd en ég? Finnst henni leið- inlegt að vera rík, af því að ég er það ekki? Ef svo er, þá mis- tekst henni hræðilega, því að fá- ar stúlkur eru svo fátækar nú á dögum, að þær eigi ekki föt ut- an á sig til skiptanna. Og þótt és segi sjálf frá er ég yfirleitt miklu smekklegar klædd en hún, þegar við förum út að skemmta okkur. Hins vegar pæti hún allt- af verið miklu smartari en ég — ef hún vildi. Ég botna ekkert í bessu..Kæri Póstur, gefðu mér nú gott ráð. Þetta er kannski svo ómerkilegt mál, að þér finnst ekki taka bví að hugsa um það. En gerðu það fyrir mig. Eg kaupi þis í hverri viku og les þig spjaldanna á 030060

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.