Vikan


Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 30
HEYRA MÁ Cþó tægra látO OMAR valdimarsson Arftaki Janis Joplfn: IHaggfie Bell Þessi kvensa heitir Maggie Bell, og syngur með hljómsveit- inni „Stone the Crows“. Þykir Magga sérdeilis frábær blues- söngkona, og hefur meira að segja verið sagt um hana að hún sé arftaki Janis Joplin. Allavega eru þær álíka ruddalegar í fram- komu, en það er sagt um Möggu að hún drekki ekki á sviðinu og sé alveg dauðhrædd við allt sem er sterkara en Winston. Hún er yfirleitt ekkert að hafa fyrir því að klæða sig í sunnudagafötin sín áður en hún fer á sviðið, og er því ætíð íklædd gallabuxum og ódýrum bolum — með hárið svona rétt eins og því sjálfu sýn- ist. Hún er 25 ára gömul og hef- ur verið atvinnusöngkona síðan hún var 19 ára. Glasgow er fæðingarborg hennar og þegar í barnaskóla var hún álitin dálítið sérstök, því hún hafði alls ekki gaman af Cliff Richard og Adam Faith, en lá marga tfma yfir gatslitnum plötum með Ray Charles. Von- andi heyrum við fljótlega í Mag- gie Bell. TREMELOES í KLÍPU Brezka hljómsveitin Tremelo- es, sem hér kom einu sinni, á nú í miklum útistöðum við aðdá- endur sína í heimalandi sínu, það er að segja fyrrverandi að- dáendur sína. Eins og kunnugt er hefur hljómsveitinni gengið mjög vel í seinni tíð, enda verið með ákaflega skemmtileg og auðlærð lög, svokallaða „comm- ercial“ vöru. En þá birtist við- tal við þá í brezku blaði þar sem þeir lýstu því yfir að þeir teldu alla þá sem keypt hefðu þessar plötur sínar ,,asna“, því efni þessara plata hefði í raun- inni ekki verið neitt nema bölv- að rusl, sem þeir hefðu vitað að hægt var að græða á. Og bættu þeir félagar því við, að þeir hefðu alltaf hlegið að „aðdáend- um“ sínum, þegar plötur þeirra þutu hraðbyri upp vinsældalist- ana. En nú virðist heldur horfa illa fyrir þeim, því lesendur brezkra blaða eru illir, já, alveg ösku-, sjóðandi-, hringlandi vitlausir, og lýsa því yfir að héðan af megi Tremeloes sjálfir éta sinn skít. Við skulum sjá til hvort ís- lenzkir hljómplötukaupendur ætli að halda áfram að láta kalla sig „asna“. TYRANNOSAURUS REX. hafa breytt nafni hljómsveitarinnar, vegna þess að „BBC á sífellt í erfiðleikum með að bera fram Tyrannosaurus“. Héðan í frá heitir hljómsveitin ein- faldlega T. REX. Og ekki er úr vegi að geta þess að LEAPY LEE, sá sem gerði „Little Arrows“ svo geysilega vinsælt í fyrrasumar, er kominn í fangelsi og á að vera þar næstu l>rjú ár. Hann var dæmdur fyrir að taka þátt í al- varlegri líkamsárás á klúbbeiganda nokkurn í Lundúnum. NV PLATA MEÐ DYLAN Þessa dagana er að koma á markaðinn ný LP-plata með Bob Dylan, og ber hún heitið „New Morning“. Þykir hún vera lítið síðri en hin frábæra „Self- Portrait", og hefur því verið spáð að þetta eigi enn að vera til þess að krýna Bob konung allra konunga. Öll 12 lögin eru ný, nema „Blonde on Blonde", sem er af samnefndu „double- albumi" Dylans, sem út kom fyr- ir nokkrum árum. Nafn hinnar nýju plötu, „New Morning“ á að vera táknrænt fyrir það sem Dylan er að að- hafast þessa dagana, en hann er nýr maður, breyttur og betri (já, það er hægt að gera gott betra) og megum við því hlakka til að heyra þessa nýju plötu með snillingnum.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.