Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 8
ÚttlokaS er talið að þessi steinrisi í Tiahuanaco á hásléttu Bólivíu hafi ver-
ið höggvinn út og snyrtur til með steinöxum og tréfleygum einura verkfæra.
Er hann verk fornaldarrisa, sem bjuggu yfir ævintýralegri tæknikunnáttu?
Allir tímar eiga sér sínar
þjóðsögur, og til allrar guðs-
lukku er okkar vélræna öld
þar engin undantekning. Og
eins og vænta mátti eru þær
af þjóðsögnum okkar aldar,
sem hvað mest kveður að,
ekki sízt tengdar verum
utan úr geimnum — og vel að
merkja fer því fjarri að allir
líti svo á að þær sögur eigi sér
stoð í hugmyndaheiminum ein-
um saman. Einn þeirra sem
lítur á geimverur og heimsókn-
ir þeirra til jarðarinnar okkar
sem annað og meira en science
fiction og sjónvarpsgaman er
maður að nafni Erich von
Daniken, sem heldur því fram
að þegar áður en sögur hófust
hafi jörðin verið heimsótt af
verum utan úr geimnum. Bók
hans um þetta efni hefur vak-
ið heimsathygli, og vissar nið-
urstöður rannsókna um þetta
efni hafa þótt styðja kenning-
ar hans.
í svissneska hljóðvarpinu
háði von Ðaniken fyrir skömmu
kappræður um þetta efni við
fornfræðing starfandi við há-
skólann í Bern, dr. Mottier að
JÖTNAR
HIMINGI
Eric von Daniken er einn þeirra, sem trúir
því fyrir fullt og fast að risar hafi búið
á jörðinni til forna, og hann er meira að segja
þeirrar skoðunar að þeir hafi komið
hingað utan úr geimnum. Bók von Danikens
um þetta hefur vakið mikla athygli, og
þótt fullyrðingar hans virðist ótrúlegar,
verður því þó ekki neitað að ýmislegt rennir
undir þær stoðum, bæði vitnisburðir
úrfornritum, svo sem Biblíunni, og nýjir
fornleifafundir.
nafni. Dr. Mottier, sem er kona,
mótmælti harðlega þeirri kenn-
ingu von Dánikens að nokkru
sinni hefðu verið uppi á jörð-
unni jötnar, sem þangað hefðu
komið utan úr geimnum. Engir
steingervingar, sem gætu rennt
stoðum undir þessa kenningu,
hefðu fundizt.
Allt annarrar skoðunar er
franskur vísindamaður að nafni
Lovis Burkhalter, doktor að
nafnbót einnig, sem 1950 skrif-
aði í Revue du Musée de Beý-
routh. Hann segir: „Svo mikið
er að minnsta kosti hægt að
fullyrða að tröllauknar mann-
legar verur hafa verið uppi á
Acheuléen-tímanum (kafli úr
eldri steinöld, kenndur við bæ
nokkurn í austanverðu Frakk-
landi). Það má teljast vísinda-
lega sönnuð staðreynd.“
Hver er annars sannleikur-
inn í þessu máli? Fundizt hafa
verkfæri svo geysistór að
óhugsandi er að manneskjur af
venjulegri stærð og kröftum
hafi mátt valda þeim.
Við Sasnytsj (sex kílómetra
frá Safíra í Sýrlandi) hafa
fornfræðingar grafið upp stein-
fleyga, nærri fjögur kíló að
þyngd. Og svipaðir fleygar sem
fundizt hafa í Aín Frítissa í
Marokkó austanvert eru held-
ur ekkert til að skammast sín
fvrir: þrjátíu og tveggja senti-
metra langir, tuttugu og tveir
á breidd og þyngdin rúm fjög-
ur kíló. Sé miðað við eðlilega
stærð og krafta nútímamanna,
verður að gera ráð fyrir að
fólk sem hafi brúkað þessi
verkfæri og önnur eins hafi
verið eitthvað nálægt fjórum
metrum á hæð.
Fyrir utan áhöld þessi liggja
fyrir að minnsta kosti þrír aðr-
ir fundir, sem benda til að ein-
hvern tíma hafi jötnar búið á
jörðu hér. Það er að segja:
1. Jötunninn frá Jövu.
2. Jötunninn frá Suður-Kína.
3. Jötunninn frá Suður-
Afríku (Transvaal).
Heyrðu þessir náungar kann-
ski til algerra undantekninga?
Höfðu þeir orðið til vegna
einhverra óeðlilegra efnaskipta
í líkamanum?
Voru þeir afkomendur tröll-
aukinna vera utan úr geimn-
um?
Voru þeir óvenjugreindar
verur með framúrskarandi
tæknilega þekkingu?
Fornleifarnar sem fundizt
hafa gefa engin ákveðin svör
við þessum spurningum. En
alltaf er annað veifið eitthvað
nýtt að finnast, oftast fyrir til-
viljun, sem kastar nýju ljósi á
eáturnar, þótt þær ráðist seint
til fulls.
Skrifað stendur . . .
Sé blaðað í fornum bókum
má finna ýmislegt til rökstuðn-
ings umræddri kenningu. I
fyrstu bók Móse, sjötta kapí-
tula, fjórða versi stendur skrif-
að:
„Á þeim tímum voru risarn-
ir á jörðunni, oe einnig síðar,
er synir Guðs höfðu samfarir
við dætur mannanna og þær
fæddu þeim sonu; það eru
8 VIKAN 4- tw.