Vikan


Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 31

Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 31
hann lendi í bílslysi. Hann lofaði mér að vera kominn hingað mjög snemma. —Við getum hæglega skálað fy,r- ir framtíð þeirra og hamingju, áð- ur en þau koma, sagði Áke. — Já, auðvitað. Ég hefði nú átf að geta haft hugsun á þessu sjálf. Og Börje er ekki heldur kominn'. Ellen beit á vörina. Henni geðj- aðist ekki að því, að veita Áke áfengi, en þegar hann bað um það sjálfur, hvað gat hún þá gert? Hún opnaði hurðirnar á fagra maghonyskápnum, þar sem flösk- urnar stóðu. — Ofurlítið koníak væri ágætt, sagði Áke og renndi augum yfir hillurnar fleytifullar af girnilegum vínflöskum. Það munar ekki um það, hugsaði hann. Og Börje, sem átii að heita bindindismaður! Hvað skyldi fólk segja, ef það sæi inn í þennan skáp? — Börje hefur sínar föstu regl- ur og fylgir þe:m, sagði Ellen kuldalega. — En við fáum oft gesti, og það eru ekki allir sama sinnis og hann. Hún rétti Áke koníaksglas og horfði um leið á Lajlu. En hún hristi höfuðið og Ellen lét því flöskuna aftur í skápinn. — Segðu okkur svolítið meira frá unga fólkinu, sagði Lajla kurt- eislega. — Ja, það er ekki svo marat, sem ég veit um þau enn. Þau tala um að gifta sig á þessu ári, og satt að segja sé ég ekki, eftir hverju þarf að bíða með það. Mikaela hlýtur að þrá ákaft að eignast sitt eigið heimili, enda þótt hún segist vera lítið gefin fyrir húsmóðurstörf. Þær bjuggu víst alltaf einar saman, hún og móðir hennar. Ég býst við, að þau búi hérna, þegar þau koma aftur úr brúðkaupsferðinni. Auðvitað bara á meðan þau eru að byggja sitt eigið hús. — Svo að þau ætla þá ekki að kaupa sér tilbúið hús? — Ætli arkitektinn vilji nú ekki sjálfur ráða sínu eigin húsi? Þau geta rætt um það tímunum saman, hvernig húsið þeirra eigi að vera. En auðvitað vill hún, að hann ráði útlitinu að mestu leyti, þar sem þetta er nú hans fag. Hún segist ekki vilja annað en það, sem hann vill, og mér fannst hún meina það fullkomlega. — En það er dálítið skrítið, skaut Áke inn í hugsandi, — þetta með arfinn. Ég á við, að Melander gamli skyldi ekki hjálpa systur sinni og barni hennar, á meðan hann var á lífi. Og samt arfleiðir hann stúlkuna að öllu saman. — Hann átti nú bara engan annan ættingja, sem hann gat arf- leitt, svaraði Ellen. — Og kannski hann hafi skammast sín fyrir að hafa verið svona harðbrjósta við þær. Ég vona það að minnsta kosti. Vesalinas Elisabet væri áreiðan- lega enn á lífi, ef hún hefði fengið einhverja aðstoð í tíma. Auðvitað fór hún og giftist gegn vilja hans og giftist þar á ofan liðónýtum manni. En það er nú ekki svo hræðileg synd, að Melander gamli gæti ekki fyrirgefið systur sinni og hjálpað henni, þó ekki væri nema barnsins vegna. Mikaela bjó við erfið kjör í Stokkhólmi, eftir að móðir hennar lézt. En þá fékk hún skyndilega einn góðan veður- dag tilkynningu um þennan mikla arf. Það er skiIjanlegt að hún sé enn dálítið rugluð við svo skyndi- lega breytingu. — Hvað segir Börje um trúlof- unina? — Auðvitað er hann hæst- ánægður. — Þessi hálfa milljón hennar hefur nú hvað sem þú segir haft sín áhrif, sagði Áke og glotti. — Fólk segir, að þangað leiti auður- inn, sem hann er mestur fyrir,_ og það er hverju orði sannara. Hvern- ig gengur annars nýja málið í Stokkhólmi? — Vel, svaraði Ellen stuttlega. — Börje hefur lagt hart að sér vegna þess og á eftir að fara marqar ferðir til Stokkhólms út af því. Hann tekur svo alvarleqa öll verkefni, sem hann þarf að leysa. — Það er leiðinlegt fyrir hann, að Ingvar skyldi ekki verða lög- fræðingur, eða er það ekki? — Leiðinlegt og ekki leiðfnlegt. Það er nú svosem ekki slorlegt starf að vera arkitekt. Þegar Börie varð lióst, að Ingvar hafði ein- göngu áhuga á því starfi, þá gerði hann allt sem hann gattil að hjálpa honum. Hann ætlar reyndar að kaupa hann inn í hið stóra Ryttres- fyrirtæki, en það er nú víst leynd- armál enn. — Ég skil. — Já, sagði Ellen og rauðir flekkir komu fram í kinnar henni. Ingvar hefur verið okkur góður sonur, og við getum verið stolt af honum. En Börje er lika góður faðir. Góður faðir og tryggur son- ur. Mér dettur aftur í hug þetta leiðinlega mál með Sigfrid Sten- ing — það var eingöngu Börje að þakka, hve vel tókst að þagga það niður. Og hann hikaði ekki við að blanda sér í málið, svo hættulegt sem það var nú, enda þótt hann væri ekki hið minnsta viðriðinn það. Áke drakk í botn úr glasi sínu og lét það frá sér. Flaskan stóð í skápnum, svo að hann gat ekki fengið sér aftur í glasið. Það leit heldur ekki út fyrir, að Ellen hefði hugsað sér, að hann fengi meira. — Það er gott fyrir Börje, að allir lita þannig á málið, sagði hann ísmeygilega. — En var virki- lega ekkert, sem benti til þess, að vel hefði farið á með þeim Sigfrid og Börje? — Áke, gættu að hvað þú seg- ir, hrópaði Lajla. Bllen fölnaði, en reyndi að harka af sér. — Ég skil mætavel, hvað Áke á við, sagði hún. — En ef þú ger- ir fleiri athugasemdir af þessu tagi, þá hlýt ég að draga þá álykt- un, að koníakið hafi stigið þér til höfuðs og að þú talir af eintómri öfund. Allir vita, að Börje og vesalings Sigfrid voru vinir og skólabraaður, alveg eins og Greta og ég. Börje var einfaldlega rækt- arsamur við sinn æskuvin, og hann hlýtur almennt lof fyrir það. Sunnudaginn eftir jarðarför Sig- frids talaði presturinn líka við aftansönginn um trygglyndi hjart- ans og ég er viss um, að söfnuð- urinn hefur skilið, hver tilgangur hans var með predikuninni. Lajla stóð á fætur og tók undir handlegg Ellenar. — Hlustaðu ekki á það sem hann Áke segir. Þetta var heimsku- legt þvaður hjá honum eins og alltaf. Það var svo sjaldgæft, að Lajla snerist til andstöðu við mann sinn, að jafnvel Áke gerði sér Ijóst, að honum höfðu orðið á mistök. Hann reyndi því að bæta fyrir þau. En hann vissi, að Ellen mundi aldrei gleyma því, sem hann hafði sagt. f rauninni hafði þeim aldrei geðj- ast hvort að öðru. Hann hafði alla tíð fundið fyrirlitningu hennar á honum, af því að hann var ekki talinn stakur bindindismaður eins og eldri bróðir hans. Hann var þessvegna feginn, þegar hann heyrði, að Lajla stakk upp á, að þau skyldu bíða eftir nýtrúlofaða parinu úti i trjágarðinum. Þau gengu saman út, og ekkert þeirra heyrði í bíl Ingvars, þegar hann litlu siðar ók upp að tröppunum. Mikaela fann, að hendur henn- Framhald á bls. 43. *■ ™ VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.