Vikan - 28.01.1971, Síða 22
Akureyri var mestur
kaupfélagsbær og frægust
iðjustöð samvinnuhreyfing-
arinnar á landi hér, en eigi
að síður reyndist Sjálfstæð-
isflokkurinn næsta sigur-
sæll þar í alþingiskosning-
um langa hríð. Gafst hon-
um vel að tefla fram hæg-
Iátum og varfærnum mönn-
um gegn öðrum eins köpp-
um og Vilhjálmi Þór, Þor-
steini M. Jónssyni og Kristni
Guðmundssyni, sem hugð-
ust vinna höfuðstað Norð-
urlands í umboði Fram-
sóknarflokksins, en mis-
tókst ætlunarverkið. Sig-
urður E. Hlíðar dýralækn-
ir var kjörinn þingmaður
Akureyringa 1937 og hélt
þar jafnan velli, unz hann
gaf ekki kost á sér til fram-
hoðs 1949. Virtist Sjálfstæð-
isflokknum ærinn vandi á
höndum að velja eftirmann
hans, þar eð mjóu hafði
munað undanfarið og aug-
Ijóst talizt, að Sigurður
EITIRIÚP0S
ætti þingmennskuna frem-
ur að þakka persónulegum
vinsældum en flokksfylgi.
Vakti því undrun, er til
hardagans gekk af hans
hálfu ungur lögfræðingur,
Jónas G. Rafnar, og spáðu
ýmsir honum óförum sem
litlum dverg í stórum og
sterkum höndum Kristins
Guðmundssonar, ef þulur-
inn reiddist. Úrslitin urðu
hins vegar þau, að Jónas
sigraði með yfirburðum
þennan risavaxna keppi-
naut og aðra andstæðinga
í viðureigninni. Sannaðist
þar, að kemst þó að hægt
fari.
Jónas Gunnar Rafnar
fæddist á Akureyri 26. ág-
úst 1920, og eru foreldrar
lians Jónas Rafnar fyrrum
yfirlæknir á heilsuhælinu í
Kristnesi, sonur Jónasar
prófasts og rithöfundar á
Hrafnagili í Eyjafirði, en
siðar kennara á Akureyri,
og kona hans, Ingibjörg
Rjarnadóttir prests í Stein-
nesi í Húnaþingi. Jónas nam
við menntaskólann á Akur-
eyri og varð stúdent þar ár-
ið 1940, en las síðan lög við
Háskóla íslands og laulc
prófi vorið 1946. Réðst
hann því næst í þjónustu
Sjálfstæðisflokksins sem
framkvæmdastjóri hans
norðan lands og austan
með aðsetri á Akureyri.
Jafnframt sinnti hann um
skeið lögfræðistörfum í
kaupstaðnum fagurskrýdda
við Eyjafjörð og var þar
bæjarfulltrúi og átti sæti i
hæjarráði 1958—1962. Jón-
as var settur bankastjóri
við Útvegsbanka Islands
um skeið haustið 1961 í
fjarveru Jóhanns Hafsteins,
meðan hann rækti lands-
stjórnarstörf, en ráðinn í
það emhætti 1963, þegar
.Tóhann varð ráðherra til
framhúðar, og hefur gegnt
því síðan. Jónas G. Rafnar
hefur starfað í ótal nefnd-
um og ráðum og orðið sér
úti um marga væna flís af
feitum sauð.
Vafalaust hefur Jónas
einkum notið föðurættar
sinnar og vinsælda hennar
í Eyjafirði, er hann vald-
ist framhjóðandi Sjálfstæð-
isflokksins i höfuðstað
Noi ðurlands 1949 ungur og
óreyndur. Hann fagnaði
góðum sigri, hlaut 1292 at-
kvæði og 221 umfram
Kristin Guðmundsson, en
það var drjúguin meiri
munur en í þrennum und-
anförnum alþingiskosning-
um á Akureyri. Þó dró enn
sundur með honum og
Kristni Guðmundssyni, þeg-
ar Akureyringar endurkusu
Jónas þingfulltrúa sinn 1953
með 1400 atkvæðum, en
Kristinn varð að láta sér
nægja 877. Virtist Jónas G.
Rafnar þá orðinn fastur í
sessi, en stundum er
óvæntra tíðinda von í
heimi íslenzkra stjómmála,
22 VIKAN 4 tbi.