Vikan - 28.01.1971, Qupperneq 14
Hann vakti mesta athygli á Ölympíuleikjunum í Róm,
náttúrubarnið, sem vann hið klassiska maraþonhlaup berfættur.
Hann náði því að næla sér í þrenn Ólympiugull, áður en
umferðarslys batt hann við hjólastólinn. En hann ætlar til Munchen
árið 1972 til að keppa í Ölympiuleikjunum fyrir fatlaða.
Svíinn Onni Niskanen FANN þenn-
an furðulega hlaupara og þeir eru
ennþá miklir vinir.
Það var umferðarslys fyrir
utan Addis Abeba, nótt eina í
maí 1969, sem batt endi á
frægðarferil methafans í mara-
þonhlaupinu frá Olympíuleikj-
unum í Róm, Abebe Bikila.
Hann var á leiðinni frá búgarði
sínum, sem er fimmtán mílur
fyrir utan höfuðborgina. Hann
hafði ekið um ellefu mílur,
þegar hann mætti Land Rover
á mjóum, krókóttum vegi.
Land Roverinn ók með fullum
ljósum á Volkswagen Abebe,
sem flaug út af veginum og
niður bratta brekku. Mennirn-
ir í Land Rovernum námu ekki
staðar, heldur óku burt frá
slysstaðnum, og ennþá hefur
ekki tekizt að hafa upp á þeim.
Abebe situr í hjólastól fyrir
utan húsið sitt í útborg Addis
Abeba. Það er ósköp líkt öðr-
um smáhúsum, en samt er um-
hverfið með öðrum hætti en
við þekkjum til. Grasflötina
þarf ekki að slá, húsdýrin;
kindur, geitur og ein kýr, sjá
um að bíta grasið. f „bílskúrn-
um“ er enginn bíll, en þangað
flýja húsdýrin, þegar hitabelt-
isnóttin dettur á. Húsið er úr
leir, en það er miðstöðvarhit-
un í því. Abebe segir; — Sg
man að ég blindaðist, að ég
fann höggið, sem kom á bílinn
og að ég greindi óljóst tvo
menn í Land Rovernum, áður
en ég valt yfir vegbrúnina. Svo
varð allt svart.
Þetta skeði um ellefuleytið.
Abebe Bikila rankaði við sér
einstaka sinnum, en fulla með-
vitund fékk hann ekki fyrr en
í dögun.
— Eg reyndi hr°Trfa mig.
en gat það ekki. E<? fann ekk-
ert til og ég var ekki hrædd-
ur. Eg vissi ekki að ég hafði
hálsbrot.nað op að taugar mínar
voru óvirkar. Sg var aleerlega
lamaður.
Maður sem ók fram hjá sá
bílflakið, ætlaði í fyrstu að
aka áfram, en þá kom hann
auga á handlegg, sem hékk út
úr flakinu, svo hann flýtti sér
á slysstaðinn.
— Ég gat hvorki talað eða
hreyft mig. Maðurinn gat náð
mér út, en svo varð allt svart
fyrir augum mér aftur. Eg
vaknaði ekki til meðvitundar
fyrr en ég var kominn á her-
siúkrahúsið í Addis Abeba.
BARN NÁTTÚRUNNAR
Abebe Bikila er 38 ára og
hann á sér merkilega sögu.
Hann er af ættflokki Amaha,
14 VIKAN «• tw.