Vikan


Vikan - 28.01.1971, Side 15

Vikan - 28.01.1971, Side 15
”Á næstu Olympiuleikjum Þetta er liðin tíð. Abcbe Bikila (nr. 1) að kcppa við Mammo Woldc, scm að líkindum vcrður eftirmaður hans. sem er stærsti ættflokkurinn í Etiopiu. Hann hafði ekki feng- ið mikla menntun, aðeins stutt- an tíma í trúboðsskóla og var, fyrir tíu árum síðan, hermað- ur í her keisarans. Honum hafði sízt af öllum dottið í hug að hljóta heimsfrægð í íþrótta- heiminum. Hann segir að það sé Svíanum Onni Niskanen að þakka að hann er nú handhafi þrigp’a gullvarðlauna frá Ol- ympiuleikjunum og að einn veggurinn í dagstofunni hans er þakinn verðlaunum frá öll- um heimshornum. Onni Niskanen er fæddur í Finnlandi. Hann kom til Etio- piu árið 1946, til að þjálfa her- menn í her keisarans og kenna þeim íþróttir. Hann átti að sjá um líkamsrækt þeirra. — Við vorum reyndar hraustir, segir Abebe Bikile hlæjandi. — Við vorum þraut- þjálfaðir í göngu og hlaupi. Við áttum enga bíla og mjög fáir gátu veitt sér þann munað að eiga reiðhjól. Það voru heldur ekki neinir vegir til, og eina leiðin til að komast leiðar sinn- ar var að ganga eða hlaupa. Vð vorum vanir að hlaupa fleiri mílur, án þess að- hafa hugmynd um hraðann. Og auð- vitað vorum við berfættir, skórnir hefðu ekki enzt lengi, og við höfðum ekki ráð á að fleygia peningum í skótau. Onni Niskanen hitti Abebe nokkrum mánuðum fyrir Ol- ympíuleikana í Róm, árið 1960. Hann tók tímann hjá honum og varð undrandi yfir árangr- inum. Jafnvel án æfinga var Abebe í metflokki. Það var enginn tími til að venja hann á að hlaupa í skóm, varla tími til að þjálfa hann. En Onni Niskanen vissi að Abebe var öruggur sigurvegari í mara- þonhlaupinu. — Mér var sagt að fara ró- lega af stað. Mér fannst þetta svo auðvelt að ég skildi ekki hvers vegna verið var að gera veður út af því sem ekkert var. Allur heimurinn fékk að siá fætur mína í sjónvarpi. Hvorki ég eða nokkur annar maður frá Etiopiu gat séð nokkuð merkilegt við þetta. ítalski læknirinn, sem skoð- aði Abebe eftir hlaupið var alveg undrandi: „Púls manns- ins var alveg eðlilegur, 88 slög á mínútu. Andardrátturinn venjulegur og augun alls ekki glansandi, eins og hjá flestum íþróttamönnum eftir keppni. Hann sýndi engin merki þreytu op var ekki með eina einustu blöðru á iljunum“. — Þetta var ekkert erfitt, ég tók þessu rólega, segir Abebe. DÁÐ HETJA Við heimkomuna frá Olym- piuleikunum var tekið á móti Abebe sem hetju. Honum var ekið um stræti Addis Ab- eba, með lifandi, tamið ljón á vélhlíf bílsins. Keisarinn gaf honum jarðarpart og íbúðar- hús. Hann var líka gerður að yfirforingja í lífvarðarsveit keisarans. Abebe ræktaði jarðarskika sinn, sem nú gefur af sér nægi- legar afurðir fyrir fjölskyld- una til að lifa af. — Þar sem ég er nú bund- inn við hjólastólinn, get ég ekki sjálfur unnið störfin á bú- garði mínum, en ég hef það góð fjárráð, að ég get fengið starfs- fólk og átt þó nokkuð afgangs. Við höfum leigt út húsið, sem keisarinn gaf mér, í öll þessi ár. Við höfum gott húsnæði, sem er nægilegt fyrir fjölskyld- una. Þau hjónin, Abebe og Am- sale eiga þrjá drengi. Þegar Abebe Bikila slasað- ist tók öll þjóðin þátt í því. Það var hlustað ákaft eftir fréttum frá sjúkrahúsinu: Ab- ebe liggur milli heims og helju, hann mun aldrei geta gengið, þótt hann lifi þetta af. Keisar- inn fylgdist líka vel með. Þeg- ar læknarnir sögðu að það gæti verið von um líf, ef hann hefði möguleika á að komast til Stoke Mandeville endurhæfingarsjúkrahússins, þá hikaði Haile Selassie ekki. Abebe var á lífi en hann var máttlaus og mállaus. — Mér var flogið til Stoke Mandeville og ég var næstum feiminn yfir athyglinni sem fólk sýndi mér. Elisabeth drottning kom í heimsókn til mín á sjúkrahúsið. Eg fékk skeyti frá Nixon forseta og f orsetaf j ölskyldan i Nigeriu sendi mér persónulegar kveðj- ur á jólunum. Abebe lá í gipsi í mánuð. Svo var hann látinn gera erfiðar þj álfunaræfingar, til að koma lífi í vöðva hans. — Eg hafði aldrei áður fundið fyrir erfiði af þjálfun, en nú fannst mér hvert fram- faraskref kosta ótrúlegustu kvalir. Og hafi mér áður fund- izt sigrar mínir auðunnir, þá fékk ég að finna fyrir öðru nú. Og nú var enginn mannfjöldi sem hvatti mig með gleðióp- um, aðeins læknar, nuddlækn- ar og hjúkrunarkonur. Framhald á bls. 34. 4. tbi. VIKAN 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.