Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 34
Á NÆSTU
OLYMPÍULEIKJUM ..
Framhald af bls. 15.
STEFNIR AÐ ÞVÍ AÐ KOM-
AST Á OLYMPÍULEIKANA í
MÚNCHEN 1972!
Rúmt ár var Abebe á Stoke
Mandeville sjúkrahúsinu. Þeg-
ar hann kom þangaS kunni
hann ekki orð í ensku, en þeg-
ar hann kom heim til sín í ág-
úst 1970, talaði hann ensku
eins vel og móðurmálið — ama-
rinja.
— Ég er glaður og þakklátur
fyrir að hafa fengið fullt vald
yfir búknum. Það getur orðið
til þess að ég komist á Olym-
píuleikana í Miinchen, en auð-
vitað ekki til að taka þátt í
minni grein, maraþonhlaupinu.
En ég kem til með að taka þátt
í leikjum hinna fötluðu, sem
alltaf eru haldnir eftir aðal-
leikana. Hljóti ég verðlaun í
ping-pong og sem bogaskytta,
þá verður það meira virði fyr-
ir mig en olympíugullin. Því
að nú þarf ég að leggja mikið
að mér. Ég er viss um að Etio-
pia á eftir að eignast fleiri
methafa á Olympíuleikunum í
maraþon. Mammo Wolde, sem
Onni Niskanen er nú að þjálfa,
er mjög góður.
Það er ekki hægt að merkja
nokkurn biturleika í rödd Bi-
kila.
— Ég er þakklátur yfir að
’ afa fengið að upplifa svo mik-
iðr meðan fætur mínir gátu
borið mig. Ég hef séð mikið af
heiminum. En nú er líf mitt
komið í annan farveg. Ég get
sökkt mér niður í alls konar
málefni, ég hef nógan tíma til
að hugsa um það sem getur
létt okkur lífið. Konan mín og
drengirnir eru mér eitt og allt
og sameiginlegt áhugamál okk-
ar hjónanna er að veita drengj-
unum sem haldbezta menntun,
það er mikils virði, lykillinn
að betra lífi.
Bezti vinur Abebe Bikila er
Svíinn Onni Niskanen, en hann
kann líka að meta aðra, sem
hafa gert mikið fyrir þjóð hans.
Abebe Bikila er ennþá þjóð-
hetja. í Kosice í Tékkóslóva-
kíu heíur nonum verið reist
minnismerki, stytta af honum
sjálfum. Hann hefur líka full
laun ennþá, svo hann þarf ekki
að hafa áhyggjur af daglegu
brauði.
- Ég hlakka ef til vill meira
til leikj-anna 1972, en þeirra
síðustu, segir hann hugsandi.
Nú get ég hugsað til þeirra
og horft á þá úr sjónmáli hjóla-
stólsins, og þá veit ég að eftir-
leikarnir fyrir þá fötluðu verða
frá íþróttasjónarmiði reikn-
ingsskil. Þeir sem hafa komizt
svo langt að þeir hljóta rétt-
indi til keppni, sýna baráttu-
kjark, sem er ekki venjulegur.
- - Fái ég verðlaun í Mún-
chen 1972, þá veit ég að ég hef
barizt fyrir þeim, það verður
ekki léttunninn sigur.
☆
MIOA
PRENTUN
Takið upp hina nýju aðferð og látið prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer,
tilkynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír.
Höfum fyrirliggjandi og útvegum með
stuttum fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox
LEITIÐ UPPLYSINGA
HILNIRhí
Skipholti 33 — Sími 35320
STJÖRNUSPÍ
HRÚTS-
MERKIÐ
21. MARZ
20. APRÍL
Lífið heima fyrir verð-
ur hversdagslegt, en á
vinnustað verður
óvenju skemmtilegt.
Þér verður boðið á
skemmtistað. Frændi
þinn leitar á náðir þín-
ar með einhverjar
skriftir. Eigðu ekki við
nein meiriháttar við-
skipti.
NAUTS-
MERKIÐ
21. APRIL
21. MAÍ
*
Þú virðist vera blindur
fyrir ágöllum eins fé-
laga þíns, sem þú ættir
að vera varkár gegn.
Dveldu sem mest heima-
fyrir og lagaðu til í
kringum þig. Þú steypir
þér í nokkrar skuldir
nú um þessa helgi.
Heillatala er 8.
TVÍBURA-
MERKIÐ
22. MAI —
21. JÚNÍ
Þú vanrækir eitthvert
verkefni, sem kemur
þér innan tíðar mjög
illa, ef þú tekur þig
ekki á. Þú hefur gott af
því að gagnrýna störf
þín vel og vandlega.
Vinur þinn sýnir þér
fremur óviðkunnanlega
framkomu.
KRABBA-
MERKIÐ
22. JÚNÍ —
23. JÚLÍ
Þú færð heimsókn per-
sónu, sem biður þig að
hjálpa sér og sem, ef þú
mögulega getur, ættir
að liðsinna. Þú þarft að
verjast ágangi forvit-
ins fólks. Talan 4 getur
skipt mjög miklu máli
um helgina.
LJONS-
MERKIÐ
24. JÚLÍ —
24. ÁGÚSl
Einhverjar breytingar á
högum þínum eru
væntanlegar og ef þú
leggur þig fram gæt-
irðu komið þér laglega
fyrir. Þú heíur lengi
beðið eftir einhverri
sendingu, en líklega
verðurðu fyrir von-
brigðum með hana þeg-
ar hún loksins kemur.
MEYJAR-
MERKIÐ
24. ÁGÚST —
23. SEPT.
Í
Það grípur þig nokkurt
eirðarleysi og skap-
þyngsli. Þú ættir að
starfa sem mest og ekki
gefa þér tíma til leið-
inda. Þú verður að
sætta þig við gerðar
ákvarðanir vissrar per-
sónu, sem þér falla þó
mjög illa.
VOGAR-
MERKIÐ
24. SEPT.
23. OKT.
Eitthvað skemmtilegt
stendur í nánu sam-
bandi við flutninga. Þú
dvelur að líkindum
fjarri heimkynnum þín-
um um helgina og
sennilega mikið utan
dyra. Maður, sem þú
þekkir lítið, vekur
áhuga þinn á skemmti-
legu áhugamáli.
DREKA-
MERKIÐ
24. OKT.
22. NÓV.
Þú ert heldur sjálfhæl-
inn og gerir mörgum
gramt í geði með remb-
ingslegri framkomu.
Þér er fyrir beztu að
leita þessara galla þinna
og varast þá, jafnvel
þótt það muni kosta þig
talsvert erfiði.
Heillatala er 2.
BOGMANNS-
MERKIÐ
23. NOV.
21. DES.
Með því að hafa augun
opin og fylgjast vel með
geturðu gert afar góð
viðskipti. Þú ættir að
sýna ákveðinni persónu
meiri vináttu og um-
hyggju, eins og þú hef-
ur hugsað þér.
Skemmtu þér mikið og
vel um helgina. #
STEIN- VATNSBERA.
MERKIÐ merkið
H
Þér er eitthvað þungt í Þú hefur átt náðuga
skapi vegna óréttar, daga undangengið en
sem þú hefur verið bráðum verðurðu önn-
beittur. Þú færð óvænta um kafinn. Þú ferð í
vinaheimsókn um helg- smáferðalag og skemmt-
ina, sem kemur þér í ir þér mjög vel. Þú
betra skap. Kunningi verður fyrir einhverju
þinn biður þig bónar, happi á miðvikudaginn.
sem þú átt erfitt með Þú færð kunningja-
að neita. heimsókn eitthvert kvöldið.
FISKA-
MERKIÐ
20. FEB. —
20. MARZ
Þér finnst ekki mikil
ástæða til að vera bjart-
sýnn þessa dagana en
innan skamms muntu
fá ástæðu til þess. Þú
lendir í vandræðum
vegna greiða, sem þú
gerðir kunningja þínum
ekki alls fyrir löngu.
34 VIKAN 4- tw.