Vikan - 28.01.1971, Side 49
Svör viÖ hvenær, hver, hvar:
•juteAAw
ejj jrusnegjou-jsne i ja jnpunjpr
gl||e|-j -spue|S| s6e|f jedj^sujjg
jjpjjsjog ja Ja||pw Jsjjo 'Jenuej
'22 uujBepepupq e jsgaq uujjjoq
Ást og friður
Ást, friður, kærleikur, — slitin
slagorð sem ungt fólk ber á torg,
oftast með yfirgangi og hefndar-
þorsta og segja, eins og sagt hefir
verið frá örófi alda:: — Ást og
friður sigra aðeins með valdi. Þeir
sem eldi eru, og kannski efa-
blandnir, geta nú keypt stóla, með
slagorðum í bakinu, til að hvíla
sig á meðan beðið er. Stólarnir
fást í sjö litum í verzlunum í New
York.
Hótun um barnsrán
Það getur nú verið svo og svo
að vera frægur maður á þessum
síðustu og verstu tímum, það
fengu þau Tina Moore og maður-
inn hennar að finna nýlega. Bobby
Moore, fyrirliði West Ham United
knattspyrnuliðsins, er þekktur um
allan heim . . . sömuleiðis Tina
konan hans og börnin tvö, Dean
og Roberta. Nýlega fengu þau
hótunarbréf um að börnum þeirra
yrði rænt, ef þau greiddu ekki
200.000 sterlingspund strax! Nú
er lögregluvörður um þau dag og
nótt, en Tina reynir að láta börnin
ekki verða vör við það og leikur
við þau í garðinum.
Við óskuðum eftir upplýsingum
um þessa gömlu mynd, sem við
völdum úr myndasafni Vikunnar.
Og það stóð ekki á hjálpsemi les-
enda. Margir hringdu og nokkrir
skrifuðu. Itarlegastar upplýsing-
ar var að finna í eftirfarandi bréfi:
„Kæru Vikumenn og konur!
Ég vil byrja á því að þakka
ykkur allt gott í ykkar annars
ágæta blaði og óska ykkur alls
góðs um ókomin ár. Þið óskuðuð
eftir því hjá lesendum ykkar, að
þeir fræddu ykkur um mynd, sem
birtist í 1. tbl. 33. árg.
Ég get frætt ykkur svolítið um
þessa mynd og efast ekki um, að
þeir verði fleiri, sem það geta.
Því miður þekki ég hvorki mann-
inn né hestinn, en myndin er tek-
in á Sogavegi, rétt við Borgar-
myndasafn vikunnar
gerði, sem hét reyndar Borgarveg-
ur í gamla daga, þegar maður átti
heima þarna í sveitinni. Þá þótti
nefnilega fínt, ef götuheitin end-
uðu á vegur, en nú á þessum
stresstímum þykir ekki fínt, nema
þau endi á braut, leiti, gerði,
mýri, hlíð o.s.frv.
Jæja, þá er að byrja á húsunum.
Það fyrsta og næst okkur á mynd-
inni er Melbær. Þar bjó Halldór
Júlíusson, fyrrverandi sýslumað-
ur, en hann var að ég held sýslu-
maður í Strandasýslu. Halldór heit-
inn er mér alltaf minnisstæður fyr-
ir það, hvað okkur krökkunum
þótti hann frekur. Það brást ekki,
þegar hann kom í strætisvagn og
við krakkarnir sátum, þá kippti
hann alltaf einhverjum upp úr sæti
og settist sjálfur. Maður skilur
þetta betur núna, þegar maður er
farinn að eldast, en karlinn var
orðinn nokkuð fullorðinn og þung-
ur á sér í þá daga. Kassinn, sem
er á burstinni fjær, það er loft-
varnaflauta, sem lét okkur sveita-
vargana í Sogamýrinni vita, þeg-
ar flugmenn Hitlers sáluga voru á
ferðinni.
Þá er komið að næsta húsi,
þessu með tvær burstir (en það er
það fyrra líka), en þær eru ekki
alveg sambyggðar, heldur rani á
milli. Þetta hús er Réttarholt, og
þar bjó Eiríkur, sem alltaf er
kenndur við nafnið á húsinu. Ei-
ríkur í Réttarholti er frægur fyrir
það, að þau hjónin eiga fimmtán
dætur. Það var sagt í dentíð, að
hann hefði alltaf verið að reyna að
búa til strák til þess að taka við
búinu, en hefði orðið að láta í
minni pokann fyrir forsjónlnni.
Þá er komið að því þriðja, en
það heitir Brekka og þar bjó Þor-
steinn. Það er eins með Þorstein
heitinn, hann var alltaf kenndur
við Brekku. Vel gæti ég trúað, að
farartækið fremst á myndinni
væri frá Brekku, en þeir feðgarnir
heyjuðu alltaf mikið, enda með
stórt bú, mikið af fé og kúm. Ei-
ríkur í Réttarholti og Halldór á
Melbæ voru með mikið af hænsn-
um, en fáar kýr. Beint á móti
Réttarholti bjó þá Helga Larsen,
sem nú er kennd við Engi í Mos-
fellssveit. Viss er ég um, að Helga
gæti frætt ykkur um manninn og
hestinn.
Þá er mitt minni tæmt varðandi
viðkomandi mynd, og bið ég ykk-
ur vel að lifa.
Ævinlega blessaðir.
Eggert Jósefsson,
Hjarðarhaga 56."
Við þökkum kærlega þetta
greinargóða bréf. Varðandi mann-
inn á hestvagninum, þá fengum
við þær upplýsingar, að hann væri
Jón Aðalsteinn Jónasson, kaup-
maður í Sportval. Jón var um
skamman tíma mjólkurpóstur á
Bústöðum, bænum sem Bústaða-
hverfi er kennt við, og ók mjólk
til viðskiptamanna í bænum. Hest-
urinn heitir Stóri'-Rauður, og á
myndinni er hann með heyvagn.
Að lokum viljum við endurtaka
áskorun til lesenda um að senda
okkur gamlar myndir, sem þeir
kunna að eiga í fórum sínum.
hvenser
hefst Þorrinn?
hver
er forstjóri Eimskipafélags íslands?
hvar
á landinu er fjallið Jörundur?
r--------------------------------------N
vísa vikunnar
Eftirfarandi vísa barst í botnasamkeppnina:
Hassis þeirra heillar sál,
herófnið lokkar,
inn f þetta ógnarbál
unglingurinn rokkar.
Egill Halldórsson,
Sörlaskjóli 86.
4. tbi. VIKAN 49