Vikan - 06.05.1971, Blaðsíða 4
Winther brihiúl
Þríhjólin vinsælu alltaf fyrirliggjandi.
Einnig reiShjól í öllum stærðum.
örnia
Spítalastíg 8 — Sími 14661 — Pósthólf 671
Rammaoerlii
SENDIR UM ALLAN HEIM
Bjóðið erlendum vinum yðar og ættingjum
að líta á ÍSLENZKA HANDAVINNU og MINJA-
GRIPI í RAMMAGERÐINNI. Aðeins úrvalsvör-
ur. Hiá okkur er alltaf gott úrval af lopa-
peysum og slám, sjölum og hyrnum, húfum
og vettlingum. Gæruskinnstöskur, skór, húfur
og fl. Þjóðlegir silfurskartgripir. íslenzkt
hraunkeramik frá GLIT.
Gæruskinn, hestaskinn, kálfaskinn, hrein-
dýraskinn.
RammaeeröiB
Hafnarstræti 17 og Austurstræti 3 — Hótel
Loftleiðum og Hótel Sögu, Reykjavík.
PGSTURINN
Einn veiðidagur —
sjöundi hluti
mánaðarlauna
Kæri Póstur!
Fyrir tveimur árum tók ég upp
á þeim fjára að fara að veiða
lax og silung. Síðan hef ég ver-
ið forfallinn sportveiðimaður,
þótt tækifærin til veiða hafi
ekki verið ýkja mörg. Ég er
ekkert sérlega vel efnaður en
get þó leyft mér pínulítinn mun-
að — en minna má nú gagn
gera.
Veiðimannafélög eru búin að
hertaka næstum hverja á í land-
inu, og ef mann langar til að
krækja sér í silung — svo að ég
tali nú ekki um lax — þá kostar
einn veiðidagur svona einn sjö-
unda af mánaðarkaupi manns.
Reyndar er hægt að fá fremur
ódýr veiðileyfi í nokkrum vötn-
um, en þar er lítil von á merk-
ari veiði en tröllvöxnum horn-
sílum. Laxveiði er orðin einung-
is fyrir milljónera.
Mig langar að spyrja þig: hvar
eru takmörkin fyrir því, hvað
hægt er að selja veiðidaginn
fyrir mikið? Geta hlutaðeigandi
aðilar sett upp hvað sem þeim
sýnist?
B.S.
Já, það geta þeir víst. Það er
satt að leitt er til þess að hugsa
að lax- og silungsveiði í ám og
vötnum, jafnvinsælt sport og
hún er, skuli að miklu leyfi
orðin sérréttindi þeirra, sem
hafa meiri peninga undir hönd-
um en almennt gerist.
Þegar hann finnur
á sér
Komdu sæll, elsku Póstur minn!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt
og gott. Ég er ein af þessum,
sem eru í vandræðum með
kærastann og ætla ég að biðja
þig, Póstur góður, að hjálpa
mér, en ekki henda bréfinu í
ruslakörfuna.
Þannig er mál með vexti að ég
er alveg ofsalega hrifin af strák,
sem er einu ári eldri en ég. Ég
hef einu sinni verið með hon-
um, en veit ekki hvort hann er
hrifinn af mér. Hann er með
stelpu núna er alltaf mjög al-
mennilegur við mig, þegar
hann er farinn að finna á sér
segir hann svo oft að hann elski
mig og að ég sé bezta vinkona
hans og að honum þyki ofsa-
lega vænt um mig. Hann er
feiminn og ég líka, ég er samt
feimnari en hann. Þegar strák-
arnir hafa spurt hann hvar
stelpan hans sé, hefur hann al-
drei svarað almennilega, þó að
hann viti alveg hvar hún er.
Þegar strákarnir hafa spurt hann
að gamni sínu hvar sú sem hann
elskaði væri, hefur hann sagt
að hann elskaði bara mig, en
mér finnst eins og þetta sé bara
sagt i gríni. Jæja, Póstur minn,
hvað heldur þú? Heldurðu að
hann geti verið hrifinn af mér,
svaraðu mér eins fljótt og þú
getur og hvað ætti ég að gera
í málinu, með fyrirfram þakk-
læti fyrir birtinguna.
Tíma-Tóta.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Okkur finnst nokkuð djarft af
þér að titla hann kærastann
þinn, fyrst þú ert ekki einu
sinni með honum eins og stend-
ur; miklu nær væri að sú, sem
hann er með núna, kallaði hann
sinn kærasta. Trúlega hefur
hann einhverjar taugar til þín,
en varla mjög sterkar, fyrst
hann hætti við þig og fór að
vera með annarri. Nema þú
sért þá svona óskaplega feim-
in? Við eigum við að feimni
þín hafi verið svo áberandi,
þegar þið voruð saman, að
hann hafi misskilið þig og hald-
ið að þér væri ekkert um hann.
Þú ættir að geta gengið úr
skuaqa um þetta, ef þú stappar
i þig svolitlu stáli. Fyrst hann
er svona elskulegur við þig
þegar hann finnur á sér, ætti
þér ekki að verða skotaskuld úr
því að gefa honum nógu skýrt
til kynna, að þú hafir áhuga á
honum. Og sé áhugi hans á þér
einhver að ráði, ætti hann þá
að verða fljótur til að mælast
til sambands við þig á ný.
Skriftin bendir til að þú sért
varfærin og dálítið viðkvæm.
Það er kannski
sleikjulegt
Kæri Póstur!
Ég er í stökustu vandræðum, ég
er nefnilega hrifin af strák, sem
er í sama skóla og ég. Ég var
einu sinni með honum en í skól-
anum ,þegar ég hitti hann,
þorði ég ekki að heilsa honum.
4 VIKAN 18.TBL.