Vikan - 06.05.1971, Blaðsíða 50
/ nœstu
SUMARGETRAUN
VIKUNNAR. Vinningar eru
100 Agfa-myndavélar aS
verðmæti um 200 þús. krónur.
í næsta blaði hefst SUMARGETRAUN
VIKUNNAR. Vinningar eru glæsilegri en
nokkru sinni fyrr: Hvorki meira né minna en
100 Agfa-myndavélar, samanlagt að verð-
mæti um 200 þúsund krónur. I síðustu get-
raun Vikunnar, sem var jólagetraun með 500
leikfanga-vinningum, var þátttakan meiri en
nokkru sinni fyrr. Rúmlega 4 þúsund lausnir
bárust. Það er von okkar, að þátttakan verði
ekki minni að þessu sinni. Getraunin verður
i fimm blöðum.
Þeireru tákn
samvizku
heimsins
Þýzki nasistafor-
inginn Albert Speer
hefur nýlega gefið
út endurminningar
sínar, og hafa þær
vakið mikla athygli.
Við birtum grein í
næsta blaði um
Speer og tvo aðra
menn, sem teljast
mega tákn sam-
vizku heimsins.
Þjófnaðir í kjörbúðum
Þjófnaðir í hinum stóru kjörbúðum nútim-
ans eru vandamál, sem allir kaupmenn þurfa
að glíma við. Það er miklu meira um slíka
þjófnaði en flesta grunar. í næsta blaði segj-
um við frá aðferðum Svía til að stemma stigu
við þeim.
Ný og spennandi
framhaldssaga
Ný framhaldssaga hefst í næsta blaði og
nefnist „Þar til dauðinn aðskilur". Eins og
aðrar framhaldssögur Vikunnar í seinni tið
er hún spennandi frá upphafi til enda. Fylg-
izt með frá byrjun!
Söngvarinn
Ivan ámm
Rebroff
Ivan Rebroff telst Zjk '
nú frægasti bassa-
söngvari heims. jjjjSÉp: r f
Hann vakti fyrst at-
hygli fyrir fáum ár- r 7
um, er hann söng í ^jRj-:: *t jý.
Fiðlaranum á þak-
inu. Ivan Rebroff
er lítt þekktur hér IgK Sk
á landi ennþá, en
við kynnum hann
ofurlítið.
HITTUMST AFTUR - I NÆSTU VIKU
A UPPLEIÐ
Framhald, af bls. 32.
pening út úr „garginu" og
þegar þeir vilja skemmta sér
þurfa þeir svo sannarlega á
músík að halda. En þetta var
útúrdúr.
Aðspurður sagði Pálmi að
þau hefðu gætt þess að koma
ekki fram fyrir unga fólkið
fyrr en þau hefðu efni sem
væri full boðlegt, og því hefðu
þau lagzt í það að æfa kafia
úr „Superstar“. „Við vorum
áreiðanlega einar 3 eða 4 vik-
ur í þessu' eingöngu,“ sagði
hann, „og ég hef aldrei lent í
öðru eins erfiði. En mér finnst
þessi ópera alveg stórkostleg
og tel hana hiklaust betri en
HAIR, það er að segja músík-
in. Textarnir eru líka stórkost-
legir.
Nú erum við að reyna að
komast til útlanda,“ hélt Pálmi
áfram, „og teljum okkur hafa
sæmilega von. Það yrði þá
Þýzkaland sem yrði fyrir val-
inu, en hér er maður að nafni
Wolfgang Strauss og það er í
gegnum hann sem þessi von
hefur kviknað hjá okkur. Við
• myndum þá fara í júní-júlí, en
eins og ég segi, þá er ekkert
ákveðið í þessu.“
P.S. Adam var svo sem ekki
lengi í Paradís og hlaut að vera
eitthvað bogið við ást útvarps-
ins á „Jesus Christ — Super-
star“. Þau Pétur og Dóra ætl-
uðu að kynna hluta úr verk-
inu í þætti sínum á laugardag-
inn fyrir páska, en voru stöðv-
uð af. Þótti útvarpsmönnum
þegar komið nóg af og neit-
uðu að óperan yrði kýnnt frek-
ar sem einhver „gaddavírs-
músík“. Þetta átti að kynna á
þann hátt að textinn yrði lát-
inn sitja fyrir og músíkin ein-
göngu notuð til að koma hon-
um á framfæri.
Hefðu þessir ágætu herrar
kynnt sér verkið og sjónarmið
höfunda þess, hefðu þeir kom-
izt að því að þeir líta sjálfir á
verkið sem eina heild og tvær
sér og sitt í hvoru lagi. I við-
tali sem brezkt blað átti við
þá nýlega héldu þeir því fram
að þeir hefðu byrjað með tvær
ólíkar hugmyndir en síðan
samræmt þær þó með það fyr-
ir augum að textinn og tón-
listinn gætu staðið sér og án
hins helmings heildarinnar.
Misskilningur útvarpsins er
því lítilvægilegur í þetta skipti
en nú er orðið greinilegt hvað
hrjáir stofnunina: Eins kónar
menningarsnobb. 6. vald.
50 VIKAN 18. TBL.