Vikan - 06.05.1971, Blaðsíða 6
Bok fwpir
allt íkrúttafðlk
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
POSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
MIG ÐREYMÐI
Að bera Betu og Pusa
Kæri draumráðningaþáttur!
Um daginn dreymdi mig draum
sem stendur mér svo Ijóslega í
hugskotssjónum, að ég aatla að
biðja ykkur að ráða hann fyrir
mig ef þið teljið hann tákna
eitthvað. Hann var á þessa leið:
Ég hafði nýfrétt andlát afa míns,
sem er hátt á áttræðisaldri og
vinnandi ennþá þrátt fyrir að
hann sé farinn að tapa bæði
heyrn og sjón. Ég labbaði niður
Laugaveginn, berandi (ásamt
þremur öðrum) Betu drottningu
og Pusa manninn hennar í há-
sæti. Þegar við komum að Ið-
unnar apóteki sleppti ég tæk-
inu (það virtist samt ekki skipta
neinu) og gekk að dyrunum.
Þegar ég opnaði þær fannst
mér ég koma inn í undirgang,
stuttan þó, og stórt port blasir
við mér. Þá sá ég hvar frænd-
fólk mitt kom labbandi í áttina
til mín og skildist mér þá að
jarðarförin væri afstaðin. (Mér
fannst ég þá fyrst skilja að afi
væri í raun og veru dáinn, en
hann er lifandi, eins og áður
hefur komið fram. Brast ég þá
í grát, en þá kom Gunnar
frændi minn og leggur hönd á
öxlina á mér og sagði: „Þetta
er allt í lagi, ég gerði þefta
líka, vina mín."
Með fyrirfram þökk og von um
að þetta lendi ekki í ruslakörf-
unni óséð. Þakka líka batnandi
blað í heild.
Virðingarfyllst, H. G.
Fyrst af öllu viljum við þakka
þér fyrir hlý orð í garð blaðs-
ins, en síðan er bezt að snúa
sér að efninu:
Til að koma hreint til dyranna
þá teljum við ekki ólíklegt að
þessi andlátsfregn gæti rætzt.
Aðalatriði draumsins er þó ekki
það, heldur að þú átt eftir að
verða fyrir mikilli upphefð,
hljóta mikinn heiður, og verða
fyrir mikilli ánægju — sennilega
í því sama sambandi. Frændi
þinn boðar þér hins vegar það
að þú verður að berjast fyrir
þínu . . .
Drukknaði í höfninni
Kæri Draumráðandi!
Ég hef ekki skrifað þér fyrr, en
nú langar mig að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi eina nóttina.
Mér fannst ég vera niður á
bryggju (það var ein af þessum
gömlu trébryggjum) og ég hafði
heyrt að maður hefði drukknað
þar. Skammt undan lá stórt, er-
lent skip og ég ætlaði að fara
um borð í það. En þá var sjór-
inn svo þykkur af mengun, að
ég gat hlaupið út í skipið. Utan
á skipinu var eins konar pallur
sem var nægilega stór fyrir
mig til að standa á. Þar stóð
ég smá stund en gekk svo með-
fram skipinu og á endanum
stakk ég mér í sjóinn og ætlaði
að synda til lands, en þá var
sjórinn svo þykkur að ég gat
ekki synt, heldur sökk smátt og
smátt þar til ég drukknaði á
endanum.
Vertu svo blessaður og sæll.
Einn sem dreymir sjaldan.
Þessi draumur er skýr og eigin-
lega alveg afdráttarlaus. ÞaS
mun koma að því fljótlega að
þú verSir fyrir því aS verSa
ákaflega hissa, satt aS segja
svo undrandi að þig hefur al-
drei óraS fyrir öSru eins. En í
kjölfarið fylgja áköf óþægindi,
að öllum likindum fjárhagsleg
og er ekki séð fyrir endann á
þeim.
Hvítir ormar
Kæri Draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig að ráða
eftirfarandi draum fyrir mig:
Það hafði ekkert kalt vatn verið
í skólanum um daginn en þeg-
ar það kom fékk ég mér vatn í
glas, og drakk af því. En þegar
ég sá i botn á glasinu hellti ég
því á útivegg (að mér fannst),
því það var hvitt og ( þessu
hvíta skriðu hvítir ormar.
Þá fór ég að hugsa tii þess að
ég hafði drukkið vatnið en mér
varð ekkert meint af því.
Eg vona að þú ráðir þennan
draum fyrir mig sem fyrst, því
mig langar að vita hvað hann
boðar.
Með fyrirfram þökk.
M.G., Varmalandi.
í þessum draumi eru tvö stríS-
andi öfl, bæSi mjög öflug
Allt um það; innan skamms
leggur þú upp í ferSalag sem
verður þér mjög ánægjuríkt. En
í þessu ferðalagi kynnist þú
persónu sem tekur þér með
opnum örmum og kemur fram
við þig eins oq bezta vin. ViS
viljum ráðleggja þér aS taka
þessum fleðulátum meS mestu
varúS, því ormarnir boða þér
fals og fláræði, en aftur er
vatnið fyrir velgengni í hví-
vetna.
6 VIKAN 18. TBL.