Vikan - 06.05.1971, Side 5
Mér finnst hann horfa dálítið
einkennilega til mín, það er
kannski ímyndun. Hvað á ég að
gera, Póstur minn, á ég að
hringja í hann, ég veit síma-
númerið hjá honum. En það er
kannski sleikjulegt. Nú legg ég
allt mitt traust á þig, kasri Póst-
ur. Ég vonast eftir svari fljót-
lega.
Fyrirfram þökk fyrir ráðlegging-
ar og birtingu. Ein ástfangin.
P.S. Hvernig eiga tvíburarnir og
hrúturinn saman?
Um tvennt gæti verið að ræða.
í fyrsta lagi að áhugi hans
væri ekki sterkur eða kannski
enginn, í öðru lagi að hann sé
feiminn. Fyrst þið hafið ekki
verið meira saman en þetta, er
líklega hæpið fyrir þig að
hringja í hann, betra væri að
sæta lagi og ná tali af honum
þess utan, til dæmis í skólan-
um. Það ætti að vera vegur,
fyrst þið eruð í sama skóla.
Hrút og tvíbura tekst yfirleitt
vel til saman. Þeir hafa örvandi
áhrif hvor á annan og lif þeirra
saman verður oft árangursríkt.
Rifið í hár og
sparkað
Kæri Póstur!
Fyrst ætla ég að þakka þér fyr-
ir allt gamalt og gott og kem
nú að efninu. Ég er ofsaskot-
inn í stelpu og veit ekki hvern-
ig ég á að krækja mér í hana
og hvað táknar það ef stelpur
eru alltaf að rífa í hárið á
manni og sparka í mann, og
góði Póstur, segðu mér hvernig
ég á að krækja í hana, og þú
verður að afsaka hvað ég skrifa
illa og vertu nú blessaður og
sæll, Póstur minn.
Einn ástfanginn.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni og
hvernig passa vogarmerkið og
tvíburamerkið saman. — Bless,
bless.
Við lestur. bréfsins kom okkur
fyrst í hug vísa eftir kunna
skáldkonu norðlenzka, sem
byrjar svona: Hanga þeir í hár-
um manns / hamast þeir og
jaga. Hér er að vísu átt við hátt-
erni karlmanna í skiptum við
hitt kynið, en kannski fylgir
það vaxandi jafnrétti að konur
séu einnig farnar að taka þetta
upp, eða til þess gæti bréf þitt
bent. En í alvöru talað, þetta
atferli stelpnanna er nauðaal-
gengt hjá unglingum af báðum
kynjum, og stafar sjálfsagt oft-
ast af feimni og óvissu um eig-
in tilfinningar. Þessir krakkar
hafa enn ekki áttað sig á því,
sem í þeim grasserar, eða þá
að þau eru of feimin til að
túlka tilfinningar sínar á skikk-
anlegri máta, og þá fær þetta
stundum útrás í svona vand-
ræðalegum kjánaskap.
Ef stelpan sem þú svermar fyrir
hegðar sér þannig, gæti það
táknað að hún væri eitthvað
.smáskotin í þér, en einhvern
veginn leggst það í okkur að
svo sé ekki, heldur farirðu eitt-
hvað sérstaklega í taugarnar á
henni, að hún fyrirlíti þig og
hafi einhverja meinfýsna ánægju
af að hrjá þig. Til að fá breyt-
ingu á því ástandi væri ekki úr
vegi fyrir þig að gefa henni til
kynna á ákveðinn hátt, að þú
afbiðjir þér svona háttarlag. Það
gæti leitt til þess að hún færi
að sjá þig í nýju Ijósi.
Vog og tvíburi fara yfirleitt
ágætlega saman. Skriftin er
heldur bágborin og fráleitt að
reyna að lesa nokkuð úr henni.
Svar til B.G.
Tviburi og fiskur eru yfirleitt vin-
samlegir hvor öðrum, þótt þeir
eigi erfitt með að komast að
gagnkvæmum skilningi. — Vel
getur verið til í þessu sem þú
segir um Smart-seríuna, en því
verður varla neitað að Smart spæj-
ari er skemmtilegri en flestir nót-
ar af því tagi; þarna vottar til
dæmis hvergi á þessari klúru og
hvimleiðu hetjudýrkun, a la Bond.
AidIísíid irí Nýíi BólslirDirOini
Bello dagstofusófasettið 1971 fæst í verzluninni að Laugarvegi 134
■
Fáanlegt meS
2ja, 3ja og 4ra sæta
sófum, lágbak-
stólurn og
hábakstólum,
meS stálfótum og
tréfótum. -
ATHS.: Öll húsgögn
okkar eru unnin
af fagmönnum.
Úrval áklæða.
GREIÐSLU-
SKILMÁLAR
NVJA BOLSTUIGERDIN IAUGARVEG 1M SIM116541
18. TBL. VIKAN 5